Veiðisvæði 9 verður lokað fyrir allar hreindýraveiðar frá og með 21. ágúst 2010. Svæðið samanstendur af Hornafirði, áður Mýrahreppi og Borgarhafnarhreppi (Suðursveit).Lesa meira... 20.08.10
Nú hafa verið felld 373 hreindýr af kvótanum sem er 1272 dýr. Liðnir eru 35 veiðidagar af veiðitímabilinu. Er þetta svipað hlutfall og á síðasta tímabili þegar búið var að fella 446 dýr af 1333 dýra kvóta.Lesa meira... 19.08.10
Hér má sjá þær breytingar sem gerðar hafa verið á reglugerðinni um stjórn hreindýraveiða vegna lengingar veiðitímabils hreinkúa og friðunar hreinkálfa.Lesa meira... 01.08.10
Nú að morgni þriðjudagsins 27. júlí hafa verið felldir 52 tarfar það sem af er veiðitímabilinu sem hófst þann 15. júlí. Á svæði 2, tuttugu og einn - á svæði 3, sex - á svæði 4, tvo- á svæði 5, fjóra, - á svæði 6, sjö - á svæði 7, sex - á svæði 8, þrjá- á svæði 9, þrjá. 27.07.10
Þeir sem ekki hafa fengið sent veiðileyfi og ætla á veiðar fyrstu dagana ættu að athuga hvort þeir hafa fengið útgefið veiðikort 2010. Ef svo er ekki er það trúlega skýringin. Hafið þá samband við Akureyrarskrifstofuna s 5912000 og gangið frá málunum. 26.07.10
Fyrsti tarfurinn sem felldur er á veiðitímabilinu var felldur þrjár mínútur yfir tólf á miðnætti á svæði 7. Veiðimaður með Albert Jenssyni felldi tarfinn í Berufirði. Meiri fréttir síðar. 15.07.10
Verkunarstöð fyrir hreindýrakjöt er starfrækt á einum stað á Austurlandi. Þar sem hægt er að fá kjötið heilbrigðisskoðað og stimplað af dýralækni. Heilbrigðisstimplun kjöts. Kjöt sem á að selja ber samkvæmt lögum að heilbrigðisstimpla. Ein verkunarstöð þar sem menn geta fengið kjötið heilbrigðisstimplað hefur fengið starfsleyfi og er hún staðsett að Skóghlíð á Fljótsdalshéraði. Hafa skal samband í s. 471-1904 til að fá nánari upplýsingar. Til að kjöt fáist heilbrigðisstimplað verður að koma með dýrið óflegið á stimplunarstað. 14.07.10
Verið er að smíða nýjan skála við Laugarfell á Fljótsdalsheiði, þar eru nokkrir menn við smíðar næstu vikurnar og er leiðsögumönnum og veiðimönnum bent á að sýna sérstaka varúð ef þeir eru við hreindýraveiðar þar í grennd og tryggja að bakland sé öruggt eins og alltaf þegar verið er á veiðum. 14.07.10
Ef einhverjum er það ekki ljóst þá er veiðitímabil hreindýraveiðanna 2010 sem hér segir: Tarfar: Frá 15. júlí - 15. september. Kýr: Frá 1. ágúst til 20. september. 09.07.10
Umhverfisstofnun - veiðistjórnunarsvið - Jóhann G. Gunnarsson Skrifstofa á Egilsstöðum - Tjarnarbraut 39A (við hliðina á FNA) GSM sími 822-4027 og sími 471-2964 Netfang joigutt@ust.is