| 27. júlí 2009 |
|
Norðaustan áttin að sækja í sig veðrið hér fyrir austan. Nokkrir veiðimenn ætla sér að fella tarfa í dag og tóku daginn snemma til að sleppa við þokuna sem örugglega á eftir að sækja á er líður á dag. Reimar, Albert Jenss. og Ómar fóru á svæði 2 með eina skyttu hver. Sævar fór á sv. 5. með einn veiðimann og Sigurgeir á sv. 4 með einn. Þorri fór með skyttu á svæði 6 seinnipart dags.
|
| |
Um hádegi var komin þoka og rigning víða um veiðisvæðin og jókst er líða tók á daginn. Veiðimaður með Reimari felldi við Gilsárvötn á sv.2 þar voru tveir tarfahópar samtals um 30 dýr.Sigurgeir hætti með sínum manni á sv. 4 í þoku og rigningu. Veiðimaður með Þorra felldi í Ljósárdal í Breiðdal. Þar voru um 10 tarfar en flestir ungir.
 |
|
Skrifað 27.07.09 |
|