| 28. júlí 2009 |
|
Þoka og rigning á Héraði. Örugglega erfitt veiðiveður nema létti til er líður á daginn. Sennilega bjartara á Suðurfjörðunum og á svæðum 8 og 9. Menn eru í startholum ef léttir til. Magnús Karlss ætlar með mann á sv. 6. Reimar, Albert og Ómar eru einnig til búnir að fara á sv.2 ef léttir til og með þeim fjórar skyttur. Bjartara inn til landsins og ofangreindir farnir með veiðimenn á sv.2. Sigurður á Borg fer með eina skyttu á sv. 8. Sævar farinn á stað á sv. 5 með tvær skyttur þar var ekkert veður né skyggni í gær en hann vonaði að létti meira til er liði á dag.
|
| |
Þokan gerði mönnum erfitt fyrir en þrír tarfar voru felldir á svæði 2 í Álftavatnshæðum seinni part dags og undir kvöld. Þar voru nokkrir tarfahópar að sögn leiðsögumanna sem þar voru á ferð. Ekki fellt á öðrum svæðum.
 |
|
Skrifað 28.07.09 |
|