| 29. júlí 2009 (mynd) |
|
Enn er fremur þungskýjað á Austurlandi en rigningin hefur minnkað frá í gær og víða orðið þurrviðri. Norðaustlægar áttir í kortunum. Ómar farinn á stað á sv. 2 með þrjár skyttur. Siggi Aðalst fer með einn veiðimann einnig á sv. Eiríkur Skjaldar ætlar einni með einn veiðimann á 1 eða 2 fer eftir skyggninu. Einnig fara þeir á stað sem ekki náðu í gær á öðrum svæðum. Maggi Karls á sv. 6, Sævar á sv. 5, og Siggi á Borg á sv.8. en þar fer einnig Siggi Eymunds með einn veiðimann.
|
| |
|
Þórður Bogason t.h. með tarf felldan á sv 8. og leiðsögumaður hans Sigurður á Borg.
|
|
Veiðimenn með Ómari felldu um hádegisbil þrjá tarfa á Fellaheiði sv 2. nærri Sandá vestur af Sandvatni, Veiðimaður með Sigga á Borg felldi á Kjarrdalsheiði sv.8. Skúli Sveins fór með eina skyttu á sv. 3 nú seinni partinn. Ekki meira að frétta enn. Fljótlega upp úr hádegi fór að hellirigna á Héraði og þoka kom í fjöll. Engir fleiri búnir að tilkynna veiðar og flestir komnir af veiðislóð. Ekki gott að segja hvernig veður verður á morgun en gæti samt stytt upp og létt til eftir hádegi.
 |
|
Skrifað 29.07.09 |
|