| 30. júlí 2009 |
|
Þokan er heldur að lyfta sér á Héraði og einnig á Fjörðunum. Skytturnar bíða og vona að skyggni verði betra í gær. Rúnar ætlaði á stað með tvo veiðimenn á sv.7 ef létti til. Eiríkur fer á sv. 2 með einn, Siggi Aðalsteins með tvo menn og Ómar með einn. Sævar ætlar með tvær skyttur á sv. 5. Skúli Sveins fer með mann á sv. 3 . Magnús Karlsson fer á svæði 6 með tvo menn. Viðar Péturss. fer með einn mann á sv. 6
|
| |
Veiðin í dag. 2 tarfar felldir á svæði tvö í Teigarselsheiði, tveir á svæði 7 í Búlandsdal. Tveir á svæði 6 annar í Skriðdal og hinn í fjallgarðinum milli Stöðvarfjarðar og Breiðdals. Einn tarfur felldur á sv. 3 út í Hjaltastaðarþinghá. Þokan gerði mönnum víða erfitt fyrir og dagurinn er stuttur er þokunni léttir ekki fyrr en langt er liðið á dag og leggst svo aftur yfir seinni partinn.
 |
|
Skrifað 30.07.09 |
|