| 1. ágúst 2009 (mynd) |
|
Fyrsti dagur ágústmánaðar, fyrir hreindýraskyttur merkir sá dagur það að hefja má veiðar á kúm og kálfum er undir þeim ganga. Laugardagur og verslunarmannahelgi en veðrið á Austurlandi eins og síðustu daga, þoka og rigning í nótt en nú hefur heldur rofað til á víða á veiðislóð. Á svæði 2 eru nokkuð margir leiðsögumenn farnir til að fella kýr. Óskar Bjarna með tvo, Jón Hávarður með einn, Björn Ingvars. með einn, Siggi Aðalsteins með einn og Albert með einn. Gunnar Gutt fer með einn tarfamann. Á svæði 5 fer Sævar með þrjá veiðimenn í tarfa og Stebbi Kristmanns með tvo í kýr. Ómar fer einnig þangað með einn í tarf. Siggi Eymunds fór á sv 8 með einn tarfamann.
|
| |
|
Hilmar Stefánsson með sína fyrstu hreinkú. Felld á Vesturöræfum. Leiðs. og ljósm. Sig. Aðalsteinss.
|
|
Veiðiveður var með allra besta móti í gær og gengu veiðarnar þokkalega. Á svæði 2 voru hópar kúnna í kringum Þrælaháls og stór hópur í Syðra Dragi á Vesturöræfum um 160 dýr. Tarfahópur með um 40 törfum milli Nýpnaháls og Miðheiðar. Felldar voru sex kýr á sv 2 og einn tarfur. Þokunni létti á sv 5 og sáust dýr víðar. Menn með Sævari felldu tvo tarfa á Viðfjarðarfjalli og menn með Stefáni Kristmanns tvær kýr aðra í svokallaðri Sveif. Á svæði 8 var felldur einn tarfur. Veiðimaður með Skúla Ben felldi kú á svæði 6 seint í dag. Undir kvöld fór aftur að rigna víða á veiðisvæðum og þokan lagðist yfir. Veiðimenn með Stefáni Helga felldu tvær kýr á svæði 8 í gærkvöldi.
 |
|
Skrifað 01.08.09 |
|