| 2. ágúst 2009 |
|
Mikil rigning búin að vera á Héraði í nótt og þokuloft. Besta veiðiveðrið er nú á svæðum 8 og 9. Dálítið óljóst um hvernig veður verður á öðrum veiðisvæðum í dag en gæti verið betra inn til landsins heldur en út við stöndina. Sigurður Eymunds fer með einn mann í kýr á sv 8. Veiðimenn bíða enn átekta á öðrum veiðisvæðum og sjá hvort þokunni léttir. Reimar farinn með einn veiðimann í kýr, Siggi Aðalst. með tvo í kýr og Siggi Óla með einn, allir á svæði 2. Valur fór með einn mann í tarf á sv. 7 og felldi sá veiðimaður tarf um hádegi. Veiðimaður með Reimari milli Þrælahálss og Eyvindarfjalla þar var 100 dýra hjörð. Veiðimenn með Sigga Aðalssteins felldu á Tungunni inn af Þuríðarstaðadal. Tvær kýr felldar á svæði 5 seint í gær, veiðimenn með Sævari og Páli Leifss. Veiðm. með Sigga Eymunds felldi einnig kýr á svæði 8.
|
| |
|
|
Skrifað 02.08.09 |
|