| 3. ágúst 2009 (mynd) |
|
Enn er þokuloft og rigning á Héraði og einnig á Fjörðunum. Heldur er þó að létta til. Mjög blautt er orðið í öllum slóðum og besti skófatnaður þessa dagana eru stígvélin. Margir veiðimenn stefna á að veiða á svæði 2 í dag. Allmargir leiðsögumenn eru farnir á stað. Óskar Bjarna, Siggi Aðalsteins, Ómar, Emil, Skúli Ben. Reimar og Gunnar Gutt. eru samtals með 12 veiðimenn. Flestir eru að fara að fella kýr. Jónas Bjarki fer með mann á sv. 7 í kýr og einnig Siggi Eymunds á svæði 8 með mann í kýr. Sævar og Þorsteinn Aðalsteins ætla á stað á svæði 5 ef þokunni léttir með tvær skyttur. Sigvaldi fór með veiðimann í tarf á sv. 7. Stefán Kristmanns ætlaði að kíkja á sv. 3 með tvær skyttur í kýr. Eiríkur fór með tvo tarfamenn á sv. 2. Komið besta veiðiveður á Fljótsdalsheiðinni.
|
| |
|
Björn Hjálmarsson með væna kú 38 kg og kálf 21 kg, fellt var í Geithellnadal á sv. 7 . Leiðsögn: Jónas Bjarki.
|
|
Flestir náðu að veiða í dag. Á svæði tvö voru felldar 9 kýr. Fellt var á Vesturöræfum við Sauðá, við Þrælaháls og inn við Folavatn. Einnig voru felldir 5 tarfar á svæði 2. Tveir á Hallormsstaðahálsi, einn í Fellaheiði, einn við Þrælaháls og einn við Folavatn. Ein kýr felld á svæði 7 í Geithellnadal og önnur á svæði 8 á Vatnsskerjum. Einn tarfur var felldur á svæði 7 í Flugustaðadal. Aðeins sáust tarfar á svæði 3. Einn tarfur felldur á sv. 5 í Sandvík.
 |
|
Skrifað 03.08.09 |
|