| 7. ágúst 2009 (mynd) |
|
Veiðiverður mjög gott á svæði 1 og 2. Virðist vera þoka og rigning á öðrum svæðum en sennilega er þokkalegt skyggni á hluta af svæðum 3 og 4. Veiðimenn farnir á stað með sínum leiðsögumönnum á svæði 2: Össur, Ragnar A, Árni Vald., Snæbjörn, Einar Eiríks, Ómar, Siggi Aðalsteins og Danni eru þar með samtals 13 veiðimenn sem ætla að fella kýr. Reimar fer með einn tarfamann og Eiríkur fer á sv 1 með tvo tarfamenn. Albert ætlaði að kíkja á sv. 7 ef veðrið yrði hagstætt með einn mann í kýr. Ástvaldur og Andrés ætla að reyna á sv. 5 ef þokunni léttir eitthvað en rigning og þoka virðist vera á veiðisvæðunum þar. Skúli Sveins fer með tvo veiðimenn í Loðmundarfjörð á sv 3 sem ætla að fella kýr og Jón Hávarður fer með einn mann í tarf á sv. 3. Sævar farinn á stað á sv 5 með þrjá tarfamenn og Óli Örn með einn á sv. 4. Tóti Borgars fór á svæði 3 með einn mann í kýr.
|
| |
|
Sveinn Orri Sveinsson með kú sem hann felldi á Fljótsdalsheiði við Vegufs. Leiðsögumaður hans Árni Valdimarsson stendur að baki honum. Kýrin vóg 44 kg. Vopnið sem notað var Sako 6,5x55, kúla Sierra Spitzer 120 gr.
|
|
Vel gekk að veiða á svæði 2 þar voru felldar 16 kýr og einn tarfur. Dýrin voru að koma inn brúnirnar og var veitt utan við Grjótufsina og þar um kring. Einn tarfur var felldur á sv. 3 við Hól og tvær fyrstu kýrnar á sv. 3 voru felldar í Hraundal.
 |
|
Skrifað 07.08.09 |
|