| 10. ágúst 2009 (myndir) |
|
Mánudagar eru oft rólegir á hreindýraveiðum. Nú eru farnir á stað nokkrir veiðimenn með sínum leiðsögumönnum. Á svæði 2 eru farnir með veiðimenn sem ætla að fella kýr: Ómar með einn, Emil með einn, Jónas Bjarki með einn, Einar Eiríks með einn og Alli með einn. Siggi Aðalsteins fer með einn í tarf, Tóti með einn í tarf og Dagbjartur með einn. Reimar fer á svæði 1 með tvo tarfamenn. Rúnar fer með einn mann í kýr á svæði 7. Sævar fer með tvo menn í kýr á svæði 5. Óli Örn fer með einn mann í kýr á svæði 4. Helgi Jenss. fer með einn tarfamann á sv. 3. Eiríkur Skjaldar fer með þrjá menn í kýr á sv. 2.
|
| |
|
Jón Gunnar Mýrdal og Steinunn Gunnarsdóttir við 85 kílóa tarf Jóns sem felldur var á Fljósdalsheiði. Skotinn á 200 m færi með Cal 308. Leiðsögn: Dagbjartur Jónsson.
|
|
Vel gekk að veiða. Fleiri tilkynntu sig á veiðar á sv. 2 er líða tók á dag. Fellt var á tveimur stöðum á Fljótsdalsheiðinni: Við Þórfellið nyrðra og norðvestan við Urginn. Á báðum stöðum voru stórar hjarðir um 300 dýr við Urginn og 500 við Þórfellið. Gott veður var á svæðinu en þó miklar rigningardembur. Felldar voru 10 kýr og 3 tarfar. Ekki gekk að finna tarfan á svæði 1. Einn tarfur var felldur á svæði 3 í Urðardal inn af Njarðvík. Á svæði 4 var þokan mönnum erfið. Á svæði 5 voru felldar 3 kýr í Suðurfjallinu í Vöðlavík. Á svæði 7 var felld ein kýr í Geithellnadal.
 | |
|
Denis Viet Jacobsen með hornprúðan tarf sem felldur var vestan í Urgi á sv.2. Leiðsögn Þórhallur Borgarsson.
|
|
 |
|
Skrifað 10.08.09 |
|