| 12. ágúst 2009 (myndir) |
|
Enn er hæglætisveður á Austurlandi. Þokan lætur frekar undan á Fjörðunum ef kemur vindur þannig að veiðimenn vona að eitthvað gerist í þá áttina er líður á dag. Á svæði 2 eru farnir nokkrir leiðsögumenn með veiðimönnum. Guðmundur Péturss. með þrjá tvo í kýr og einn í tarf, Ómar með einn og Magnús Karlss með einn. Alli í Klausturseli ætlaði með sína þrjá veiðimenn á stað er liði á morguninn. Reimar ætlar með tvo menn í kýr. Siggi Aðalsteins fer með einn tarfamann. Snæbjörn ætlaði á svæði 1 með einn mann í tarf og tvo í kýr. Þorsteinn Aðalst fer með einn mann í kú á sv. 5 og Sævar með þrjá. Valur á Lindarbrekku fer með tvo menn á sv. 7 í tarfa. Stefán Helgi fer á sv. 8 með þrjá menn tvo í tarfa og einn í kú. Sigurður Eymunds ætlaði einnig með sömu menn og í gær sem náðu ekki vegna þoku.
|
| |
|
|
Árni Leósson með sinn fyrsta tarf sem felldur var á Vesturöræfum á sv. 2. Leiðsögn Guðmundur Pétursson.
|
|
Þokkalega gekk að veiða en þokan var mönnum samt erfið á sv. 5. Á svæði 2 voru felldar 11 kýr og tveir tarfar Um 300 dýr voru á Vesturöræfum, um 80 dýra hópur við Kofaöldu og um 100 dýr í Klausturselsheiði. Einn tarfur var felldur á svæði 1 þar heldur um 150 tarfa hjörð sig mjög utarlega. Á svæði 5 voru felldar tvær kýr önnur fyrir innan Eskifjörð og hin í Sveifinni. Á svæði 7 voru felldir 4 tarfar. Þrír þeirra í Fossárdal. Á svæði 8 var felld ein kýr.
 | |
|
Jóhann Kári Enoksson og G. Valur Gunnarsson leiðsögumaður.
|
|
 | |
|
Valur Sveinbjörnsson og G. Valur Gunnarsson leiðsögumaður.
|
|
Myndin hér að ofan og við hliðina, eru úr veiðiferð sem þeir frændur Jóhann og Valur fóru á svæði 7 með tarfaleyfi sín. Tarfarnir voru felldir í Fossárdal á svæði 7. Annar á 300 m færi og hinn á 280 m. Riffill: Sako 308, 85 hunter, Sjónauki: Euro diamond 3X12. 50mm, Kúla: Nosler 140 gr.
 |
|
Skrifað 12.08.09 |
|