| 15. ágúst 2009 (myndir) |
|
Opnunarhátíð Ormsteitis héraðshátíðarinnar á Fljótsdalshéraði hófst í gær og næstu 10 dagana verður mikið um að vera á Héraði. Hreindýraskytturnar geta örugglega notið einhverra af þeim viðburðum fyrir eða eftir vel heppnaða veiðiferð. Margir fara til veiða í dag. Á svæði 2 eru farnir eftirtaldir veiðimenn með menn í kýr. Ómar, Emil, Jónas Bjarki, Helgi Jens. , Einar Eiríks, Einar Axels. Siggi Óla, Siggi Aðalst. og Þorri, samtals með þessum leiðsögumönnum eru 11 veiðimenn. Jón Hávarður bættist við með tvo í kýr og Alli með tvo í kýr og einn í tarf. Reimar fer með einn í tarf og annan í kú, Snæbjörn með einn í tarf og Hafliði með einn á sv 2. Eiríkur með einn í kú á sv. 1.. Pétur í Teigi og Óskar Bjarna ætluðu með þrjá tarfamenn á sv 1. Á svæði 3 fer Skúli Sveins með einn, Björn Ingvars með einn og Ólafur Örn með tvo, alla í kýr. Sigurgeir, Sævar og Páll Leifss. fara með samtals 8 menn í kýr á sv. 5. og Þórir með einn. Óttar með einn í kýr á sv. 6. Einar Har. með einn í tarf á sv. 7 og Valur með annan í tarf. Sveinn Ingimars fór með tvo á svæði 7 í tarfa. Rúnar ætlaði að kíkja á sv. 6 með einn tarfamann. Stefán Gunnars með einn í kú á svæði 2. Á svæði 8 fer Siggi á Borg með tvo veiðimenn og Sigurður Eymundss með þrjá allir ætla þeir að fella kýr.
|
| |
|
Vigdís Ylfa Hreinsdóttir við sinn fyrsta hreintarf sem var felldur á Eyjabökkum á svæði 2. Vopn: Sabatti 270, 140 gr.kúla. Leiðsögumaður Snæbjörn Ólason.
|
|
Flestir náðu að fella. Komnar eru upplýsingar um að 44 dýr hafi verið felld þann 15. ágúst. Þrír tarfar voru felldir á svæði 1 vestan við Svartfell. Ein kýr felld á sv. 1 á Brúardölum. Á svæði 2 voru felldar 17 kýr og fjórir tarfar. Mest var fellt í Hafursfelli og þar um kring en þar voru tvær 100 dýra hjarðir. Önnur þeirra fór svo út heiðina í lok dags. Þrjú dýr voru svo felld í Fellheiðinni nærri Mestað sú hjörð fór einnig upp í norðaustanáttina. Á sv 3 voru felldar tvær kýr, önnur í Hraundal. Á svæði 5 voru felldar 8 kýr bæði í Svínadal og í Hellisfirði. Á svæði 6 voru felld kýr og tafur. Kýrin við Hornbrynju en tarfurinn í Breiðdal. Á svæði 7 voru felldar tvær kýr, önnur í Starmýrardal og hin inn við Þrándarjökul, þrír tarfar voru felldir á svæð 7 einn í Búlandsdal og tveir í Flugustaðadal. Á svæði 8 voru felldar tvær kýr á Fagrahjalla.
 | |
|
Kjartan Antonsson með tarf sinn felldan á Búlandsdal á svæði 7. Tarfurinn vóg 105 kg. Leiðsögumaður. Guðmundur Valur á Lindarbrekku.
|
|
 |
|
Skrifað 15.08.09 |
|