| 16. ágúst 2009 (mynd) |
|
Þá eru eftir fjórar vikur af veiðitímanum, vonandi verður veðurfar hagstætt þar sem enn er eftir að fella meir en tvo þriðju hluta kvótans. Veður virðist ætla að vera þokkalegt í dag, þokan að lyfta sér víðast hvar. Á svæði 2 eru farnir: Siggi Óla með tvo, Siggi Aðalst með tvo, Ómar með einn, Magnús Karls með einn, Einar Eiríks með einn, Agnar Eiríks með einn, Dagbjartur með einn, Helgi Jenss með tvo, Kolbeinn með einn, Danni með einn, veiðimenn þeirra ætla að fella kýr. Árni Jónss fer með tvo í tarfa á sv. 2 og Óli Örn með einn í tarf á sv. 1. Tóti Borgars fer með tvo í tarfa og einn í kú. Á svæði 3 ætlar Óttar með einn í kú og Stebbi Kristmanns með annan, Þorri ætlar á sv 7 með þrjá menn í kýr og Sveinn Ingimars með tvo í tarfa. Ragnar Eiðss fer með einn í tarf á svæði 7 og Guðmundur á Þvottá með tvo. Jónas Bjarki fer á sv. 6 með tvo í tarfa og Siggi á Borg með tvo í kýr á sv. 8 og Stefán Gunnarsson einnig með tvo í kýr. Sævar fór með tvo í tarfa á sv. 5 og Þórir með einn.
|
| |
|
Feðgarnir Haukur B. Sigmarsson og Sigmar B. Hauksson við tarf sem Haukur felldi í Nýpnahálsi á Fellaheiði sv. 2. Leiðsögn: Þórhallur Borgarsson.
|
|
Þokkalega gekk að fella í dag. Fellt var víða á sv.2 Hjarðirnar eru dreifðar um svæðið. Fellt var við Eyvindarfjöll þar voru tvær hjarðir, um 200 dýr. Einnig var fellt við Hólmavatn og út í Fellaheiði. Einnig voru felldir tveir tarfar inn á Eyjabökkum stór hjöð milli 200 og 300 dýr heldur sig út á Þóriseyjum. Samtals eru komnar upplýsingar um 9 felldar kýr og og fjóra tarfa. Ein kýr var felld á sv 1 á Brúardölum og einn tarfur á sv. 1 í Sunnudal í Vopnafirði. Á svæði 3 voru felldar tvær kýr í Sandadal. Á svæði 5 voru felldir tveir tarfar á Barðsnesi. Á svæði 6 voru felldir tveir tarfa annar í Stöðvarfirði og hinn í Eydalafjalli. Ein kýr felld á svæði 2 og komnar fréttir um einn felldan tarf. Fjórar kýr voru felldar á svæði 8 tvær þeirra í Bæjardal. Kannski einhverjir eftir að tilkynna felld dýr. Upplýsingar bárust um tvær felldar kýr í viðbót á sv. 2 og tvo tarfa í Búlandsdal á sv. 7. Það voru þá 31 dýr sem voru felld.
 | |
Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir með fallegan tarf felldan í Búlandsdal sv.7. Leiðsögumaður: Guðmundur Kristinsson.
 |
|
Skrifað 16.08.09 |
|