| 17. ágúst 2009 (myndir) |
|
Fallegt veður á Austurlandi og þokan hefur látið undan síga síðustu daga. Margir ætla því á hreindýraveiðar í dag eins og undanfarna daga. Á svæði tvö eru farnir eftirtaldir leiðsögumenn og veiðimenn þeirra. Ómar með einn í kú, Einar Eiríks með tvo í kýr, Árni Jónss. með einn í kú, Jón Hávarður með tvo í kýr, Alli í Klausturseli með tvo í kýr, Danni með einn í kú, Tóti Borgars með einn í kú. Snæbjörn ætlaði á sv. 1 með þrjá í kýr og Eiríkur með einn í tarf. Helgi Jenss. fer með einn í tarf á sv. 1 og tvo í kýr. Á svæði 3 fer Óli Örn með þrjá í kýr og Skúli Sveins með einn í tarf. Björn Ingvarss. fer með einn í tarf á sv. 4 og Dagbjartur með tvo í kýr. Sævar fer með þrjá í tarfa á sv. 5 og Þórir með einn. Stebbi Kristmanns fer með tvo í kýr á svæði 5 og Sigurgeir einnig með tvo. Á svæði 7 fer Stefán Gunnars með einn í kú. Þorri fer með tvo í kýr á sv. 7. og Rúnar með einn í kú. Guðmundur Valur fer með tvo í tarfa á svæði 7.
|
| |
|
Jón Ingi Guðmundsson ásamt leiðsögumanni sínum Sævari Guðjónssyni með 97 kg tarf felldan í Sandvík fyrir ofan Gerpisvatn.
|
|
Vel gekk að veiða. Felld voru samtals 39 dýr og er það veiði eins og á góðum degi um helgi. Á svæði 2 voru felldar 20 kýr. Flestar þeirra í kringum Eyvindarfjöllin og þrjár í Álftavatnshæðum og þar utar. Um 200 dýr voru í tveimur hjörum við Eyvindarfjöll. Ein hjörð fannst svo inn á Vesturöræfum, þar voru felldar tvær kýr og einn tarfur. Á svæði 1 var felldur einn tarfur og þar heldur tarfahjörðin sig á svipuðum slóðum út undir Smjörfjöllum Vopnafjarðarmegin. Á svæði 3 voru felldar fjórar kýr í Hraundal - Héraðsmegin og einn tarfur upp af Borgarfirði. Um 100 kýr voru í þessum hópi og víða sáust tarfar í litlum hópum. Á svæði 4 var felldur einn tarfur í Þverárdal og einnig tvær kýr. Þar voru 18 fallegir tarfar og nokkrar kýr. Á svæði 5 voru felldir 4 tarfar í Sandvík. Á svæði 7 voru felldir tveir tarfar í Búlandsdal þar voru um 20 fallegir tarfar. Ein kýr var felld í Hofsdal og tvær inn undir Bratthálsi.
 | |
|
Björn Gunnarsson við tarf sinn sem vigtaði 83 kg. Felldur í sömu veiðiferð.
|
|
 | |
|
Jón Árni Árnason við 93 kg tarf sem er hans fyrsta fellda hreindýr. Felldur í sömu veiðiferð og hinir hér að ofan. Leiðsögumaður þeirra allra var Sævar Guðjónsson.
|
|
 | |
Bjarki Heiðar Harðarsson með kú og kálf fellt á svæði 7. Vopn Savage 270 WSM. Leiðsögn Þorri Magnússon.
 | |
Ingimundur Sigmundsson með glæsilegan tarf sinn felldan á svæði 3. Leiðsögumaður Björn Ingvarsson.
 |
|
Skrifað 17.08.09 |
|