| 18. ágúst 2009 (myndir) |
|
Enn einn veiðidagur runninn upp. Bjart og fallegt veður á Héraði en lágskýjað á Fjörðum og þar gæti þokan gert mönnum erfitt fyrir. Á svæði 1 fer Eiríkur með einn mann í tarf. Á svæði 2 fer Tóti Borgars með þrjá í kýr, Einar Haralds með þrjá í kýr, Guðmundur Péturss. með einn í kú, Danni með tvo í kýr, Kolbeinn með tvo í kýr, Gunnar Gutt. með einn í kú, Siggi Aðalsteins með tvo í tarfa. Dagbjartur fer á svæði 3 með tvo menn í tarf og kú. Sæmundur fer með einn mann á sv. 4 í tarf. Sigurgeir, Sævar og Stebbi Kristmanns fara með samtals 7 menn í kýr á sv. 5. Ómar fer með einn mann í kú á sv. 7. Siggi á Borg fer með einn mann í kú á sv. 9. Fleiri eiga sennilega eftir að tilkynna sig er líður á dag.
|
| |
|
Friðrik Ingi Ágústsson við sína fyrstu hreinkú fellda austan Bessastaðavatna á Fljótsdalsheiði á sv. 2. Leiðsögn: Þórhallur Borgarsson.
|
|
Vel gekk að fella - felld voru samtals 31 dýr. Á svæði 1 var felldur einn tarfur. Þrettán kýr og tveir tarfar voru felld á Fljótsdalsheiðinni á sv 2. Veitt var við Fitjahnjúk, austan við Þrælaháls, við Gilsárvötn og út með Bessastaðavötnum. Á svæði 3 var felld ein kýr nærri Beinageit. Einn tarfur felldur inn af Skógum í Mjóafirði þar voru 10 tarfar. Á svæði 5 voru felldar 8 kýr og einn tafur, allt í Vöðlavík. Ein kýr var felld á svæði 7 og tveir tarfar, annar í Búlandsdal og hinn á Öxi. Ein kýr var felld í Heinabergsdal á svæði 9 það er fyrsta dýrið sem er fellt á því svæði
 | |
|
Sigurður Orri Steinþórsson við kú sína fellda austan Bessastaðavatna á sv. 2. Leiðsögn: Þórhallur Borgarsson.
|
|
 |
|
Skrifað 18.08.09 |
|