| 21. ágúst 2009 |
|
Fullt af mönnum á veiðum - koma uppýsingar þegar símarnir hætta að hringja. Margir á veiðum í dag. Norðvestanátt, þurrt að mestu en kalt. Á svæði 1 fara Siggi Aðalst með mann í tarf, Benni Óla með tvo menn í tarfa, Eiríkur með einn í kýr og Andrés með einn í kýr. Á svæði 2 fara: Helgi Jenss. með tvo menn í tarf og kú, Björn Ingv. með einn í tarf, Siggi Óla með þrjá í kýr, Ómar með tvo í tarfa og einn í kú, Stefán Geir með einn í kú, Guðmundur Péturss. með tvo í kýr, Einar Axelsson með einn í kú, Jón Egill með einn í kú, Danni með einn í kú, Alli í Klausturseli með þrjá í kýr, Óskar með einn í kú, Tóti með einn í kú, Árni Vald og Ragnar Arnar með tvo í kýr, Þórir með einn í tarf. Á svæði 5 fer Stebbi Kristmanns. með tvo í kýr, Sævar með tvo í kýr og Þorsteinn Aðalsteins með einn í kú. Á svæði 6 fer Árni Jónss, með einn í kú og tvo í tarfa, og Jóhann Steindórs með einn í tarf. Á svæði 7 fer Reimar með einn í kú, Jónas Bjarki með einn í kú, Stefán Gunnars með tvo í kýr, Guðmundur Valur með tvo í kýr og Albert með einn í kú. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með þrjá menn og Ríkarð með þrjá.
|
| |
Vel gekk að veiða en þó var erfitt um vik sums staðar fyrir miklum norðvestanvindi og krapaéljum. Á svæði eitt voru felldar tvær kýr - þá er búið að fella þær 11 kýr sem voru í útgefnum kvóta þar, hugsanlega verður leyft að færa nokkur leyfi á kýr af sv. 2 á svæði 1 er lengra líður á veiðitímann þar sem töluvert er á kúm á svæðinu. Á svæði 1 voru felldir þrír tarfar. Einn á Kollseyrudal og tveir út undir Fríðufelli þar sem stóri tarfahópurinn var. Á svæði 2 gekk erfiðlega að finna dýrin enda hvass vindur og ekki gott skyggni víða. Felldar voru 15 kýr og verður ekki rakið hér hvar. Dýr voru innan við Snæfell, í Dragamótum og í Klausturselsheiði. Á svæði 5 voru felldar 7 kýr í Vöðlavík og ofan við Breiðuvík. Á svæði 6 var felldur einn tarfur. Á svæði 7 voru felldar 6 kýr, tvær af þeim í Starfmýrardal og þrjár í Geithellnadal. Á svæði 8 voru felldar 5 kýr og einn tarfur.
 | |
Hreggviður t.h og Gylfi Sig. t.v við 100 kg tarf felldan á Búlandsdal á svæði 7. Riffill TRG-42 cal 300 Wm. Kúla Nosler BT 165 grs. Færið var um 300 m.
 |
|
Skrifað 21.08.09 |
|