| 22. ágúst 2009 (myndir nýtt) |
|
Bjart og stillt veður, gott til veiða á öllum svæðum. Á svæði 1 fer Eiríkur með þrjá menn í tarfa, Siggi Aðalsteins með tvo í tarfa og Andrés með einn í tarf. Á svæði 2 eru margir leiðsögumenn og margir veiðimenn með þeim, Siggi Óla, Ragnar Arnarss. Árni Vald, Einar Axelsson, Stefán Geir, Jón Hávarður, Árni Jónsson, Skúli Ben, Danni, Þorsteinn Jóhannss, Pétur í Teigi, Ólafur Örn, Helgi Jenss. og Jón Egill. Með þessum leiðsögumönnum eru 15 menn að veiða kýr og 5 að veiða tafa. Á svæði 3 fara Skúli Sveins og Dagbjartur með samtals 5 veiðimenn. Þorsteinn Aðalsteins fer á svæði 4 með tvo tarfamenn og Stebbi Kristmanns með einn í kú. Á svæði 5 fer Sævar Guðjónss. með þrjá menn í kýr. Á svæði 6 fer Jónas Bjarki með tvo tarfamenn. Á svæði 7 fer Sigvaldi með tvo menn í kýr, Guðmundur Valur með einn í kú, Albert með einn í kú, Rúnar með tvo í kýr, Jóhann Steindórss með einn í tarf. Siggi á Borg fer með þrjá menn í kýr á sv. 8 og Sigurður Eymundsson með einn. Halldór Guðmundss. fer með einn í kýr á sv. 9.
|
| |
|
Jónas Bjarki Björnsson með tarf sinn. Leiðsögumaður: Jóhann Steindórss.
|
|
Virkilega góður veiðidagur. Gott veður og góð veiði. Á svæði 2 voru felldar 16 kýr og 7 tarfar.Dýrin voru aðallega á Vesturöræfum, Snæfellssvæðinu og utan við Vegufs. Á svæði 1 voru felldir fjórir tarfar utan við Sandfell. Á svæði þrjú voru felldar fjórar kýr og einn tarfur í Norðdal. Þar var um 150 dýra hjörð. Á svæði 4 voru felldir tveir tarfar við sunnanverðan Mjóafjörð utan við Reyki. Þar var 50 dýra blönduð hjörð. Ein kýr var felld í Austdal í Seyðisfirði, þar voru einnig um 10 góðir tarfar. Á svæði 5 voru felldar þrjár kýr í Vöðlavík. Á svæði 6 voru felldir tveir tarfar í Flöguskarði. Á svæði 7 voru felldar 7 kýr flestar í Geithellnadal og einn tarfur. Á svæði 8 voru felldar fjórar kýr.
 | |
Pétur Pétursson við gullfallegan tarf felldan á svæði 6 í Flöguskarði. Tarfurinn var 108 kg. Færi var um 180 m. Felldur með Sako 6,5X55, 140 gr kúlu. Leiðsögumaður Jónas Bjarki.
 | |
Grétar Steindórsson við tarf sinn felldan á sama stað og tarfurinn hér að ofan. Hornprúður tarfur sem vigtaði 95 kg.
 | |
Jason Guðmundsson við kú sína felld við Vegufs á Fljóstdalsheiði svæði 2. Leiðsögn Þórhallur Borgarsson.
 | |
Bjarni Guðmundsson við kú sína felld við Vegufs á Fljóstdalsheiði svæði 2. Leiðsögn Þórhallur Borgarsson.
 |
|
Skrifað 22.08.09 |
|