| 23. ágúst 2009 |
|
Mun færri á veiðum í dag enda búið að spá rigningu er líður á dag. Þokan að koma á sum svæðin. Á svæði 1 fara: Hafliði Hjarðar með einn í tarf, Snæbjörn með einn í tarf og Helgi Jensson með tvo í tarfa. Á svæði 2 fara Ragnar og Árni með tvo menn í kýr, Stefán Geir með einn í kú, Danni með einn í kýr, Benni Óla með einn í kú á svæði 2. Jón Hávarður með tvo menn í kú og tarf, Ómar tvo menn í tarf og kú, Einar Axelsson með einn í kú, Siggi Aðalst. með tvo menn í kú og tarf, Björn Ingvarss með einn í kú. Stebbi Kristmanns fór með þrjá menn í kýr á sv. 5. Guðmundur Valur og Stefán Gunnars með tvo menn í tarfa á sv. 7.
|
| |
Þokkalega gekk að fella. Nú virtust dýrin á Fljósdalsheiðinni vita í sig norðaustanrigninguna og vindáttabreytinguna sem spáð var. Hóparnir stefndu út og niður í Flótsdalsbrúnir. Ekki bætir rigningin sem var í nótt slóðirnar. Fellt var við Bessastaðavötnin og þar utan við. Einnig var fellt innan við Snæfell fyrri hluta dags. Á svæði 2 voru felldar 8 kýr og þrír tarfar. Á svæði 2 voru felldir tveir tarfar í Hjarðarhagaheiði. Á svæði 5 var felld þrjú dýr í Njörvadal, tvær kýr og einn tarfur. Á svæði 7 voru felldir tveir tarfar í Berufirði.
 |
|
Skrifað 23.08.09 |
|