| 29. ágúst 2009 |
|
Margir á veiðum í dag. Á svæði 1 fara Stefán Geir, Eiríkur Skjaldar og Tóti Borgars alls með 5 menn í tarfa og þrjá í kýr. Á svæði 2 fara með menn í kýr: Reimar með tvo, Ómar með tvo, Óskar með þrjá, Einar Axelsson með tvo, Bjarni Bergþórs með tvo, Siggi Aðalsteins með tvo, Guðmundur Pétursson með þrjá, Magnús Karlsson með þrjá, Einar Eiríksson með þrjá og Pétur í Teigi með einn. Hjörtur Kjerúlf með tvo í tarfa og einn í kú, Siggi Óla með tvo í kýr og einn í tarf. Dagbjartur með einn í tarf, Emil með einn í tarf. Jón Sigmar fór með einn mann í kýr á sv. 3. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo menn í kýr og einn í tarf, Hafliði með einn í tarf, Þorsteinn Aðalsteins með einn í tarf, Stefán Kristmanns með einn í kú og Óli Gunnar með einn í tarf. Á svæði 7 eru Albert og Helgi, Þorri með þrjá í kýr, Guðmundur Valur með einn í tarf. Á svæði fer Skúli Ben með þrjá í kýr, Siggi á Borg með tvo í tarf og kú, Stefán Helgi með þrjá í kýr.
|
| |
Vel gekk að fella hreindýrin í dag. Á svæði 1 voru felldir tveir tarfar og ein kýr norður undir Gnýsstaðabrúnum. Á svæði 2 voru felldar átján kýr og þrír tarfar, menn voru á dýrum á mörgum stöðum. Fellt var á Víðivallahálsi, inn á Hraungarði, við Húsárkvíslar ofan Hnefilsdals og út í Teigarselsheiði dýrin voru á ferð inn Jökuldalsbrúnir upp í Norðvestanáttina. Á svæði 5 var felldur einn tarfur og ein kýr í Hellisfirði. Þeir sem fóru í Sandvík gistu þar og ekki er vitað hvort búið var að fella. Á svæði 6 var felldur einn tarfur. Á svæði 7 var verið að veiða austan við Brattháls, þar náðust þrjár kýr og einnig var felld kýr í Geithellnadal. Á svæði 8 var fellt á Lónsheiði, Vatnsskerjum og víðar, alls 11 kýr og 5 tarfar.
 |
|
Skrifað 29.08.09 |
|