| 2. sept. 2009 |
|
Nú er að birta yfir á öllum veiðisvæðum. Hægviðri og þurrt að mestu. Vonandi nýta menn daginn vel því tíminn styttist og mikið á eftir að fella af útgefnum kvóta. Á svæði 1 fer Snæbjörn með tvo í tarfa, Á svæði 2 fara eftirtaldir: Magnús Karlss. með einn í kú, Alli með tvo í kýr, Eiríkur með einn í kú, Einar Eiríks með tvo í kýr, Agnar Eiríks með einn í kú og Benni Óla með einn í kú. Á svæði 3 fer Dagbjartur með einn í kú, Skúli Sveins með einn í kú og Jón Egill með einn í tarf. Þorsteinn Aðalsteins ætlar á sv.4 með einn í kýr. Á svæði 5 fer Óli Gunnar með þrjá í kýr, Friðrik með einn í kú, Sigurgeir með tvo í kýr, Óli Gunnar með þrjá í kýr og Stebbi Kristmanns með einn í tarf. Á svæði 7 fer Jónas Bjarki með tvo menn í kú og tarf. Guðmundur Valur með tvo í tarfa, Sigvaldi með einn í tarf og Rúnar með einn í kú. Siggi á Borg fer með einn í tarf á sv.8, Stefán Gunnarsson með tvo í kýr og Sig. Eymundss með tvo í kýr.
|
| |
Vel gekk að fella. Alls eru komnar upplýsingar um 30 dýr. Á svæði 2 voru kýrnar á sömu slóðum fyrir ofan Hnefilsdal og Gauksstaði, þar voru felldar 9 kýr. Tveir tarfar voru felldir á svæði 1 í Tungufelli. Einn tarfur felldur á sv. 3 í Eiðaþinghá. Þrjár kýr felldar á svæði 5. Tveir tarfar felldir á svæði 7 og þrjár kýr. Á svæði 8 voru felldar 7 kýr og einn tarfur.
 |
|
Skrifað 02.09.09 |
|