| 10. sept. 2009 |
|
Nú er gott veður á öllum veiðisvæðum. Menn að veiða á flestum svæðum. Á svæði 1 fara Eiríkur Skjaldar með menn í kú og tarf, Danni með menn í kú og tarf, Benni Óla með menn í tarf og kú. Stefán Geir með einn í tarf. Á svæði 2 fara: Guðmundur Pétursson með tvo í tarfa, Alli með einn í tarf og einn í kú, Hafliði með einn í kú, Ragnar og Árni Vald með tvo hvor í kýr, Bergur með einn í tarf og einn í kú, Siggi Aðalsteins með þrjá í kýr og Bjarni með þrjá í kýr. Á svæði 3 fer Óli Örn með einn í kýr. Á svæði 5 fer Sævar með einn í tarf og tvo í kýr og Páll Leifsson með einn í kú. Á svæði 6 fer Reimar með einn í tarf. Á svæði 7 fer Ómar með einn í kú, Jónas Bjarki með einn í kú, Guðmundur Valur með þrjá í kýr og Þorri með tvo í kýr. Á svæði 8 fer Siggi Eymunds með einn í tarf. Spá næstu daga er góð og lítur vel út með að náist að fella kvótann á mörgum svæðum.
|
| |
Vel gekk að veiða. Dýrin að færa sig innar á svæði 2 og hjarðir komnar inn fyrir Háreksstaðaleiðina á svæði 1. Á svæði 1 voru felldir fjórir tarfar og þrjár kýr. Í Kollseyrudal, við Rángarlón og í Fjallgörðum. Á svæði 2 var fellt við Hornbrynju, utan við Vegufs og í Klausturselsheiði. Alls 10 kýr og 5 tarfar. Á svæði þrjú var felld ein kýr á Gilsárdal þar var stór hjörð. Á svæði 5 var felld ein kýr og tveir tarfar á Barðsnesi og í Sandvík. Á svæði 6 voru felldir tveir tarfar á Hornbrynjusvæðinu. Á svæði 7 voru felldar 7 kýr, fellt var á Bratthálsi, í Geithellnadal og á Lónsheiði. Á svæði 8 var felldur einn tarfur í Kastadal.
 |
|
Skrifað 10.09.09 |
|