| 11. sept. 2009 (myndir nýtt) |
|
Ekki gott veiðiveður á syðstu svæðunum en þokkalegt annars staðar. Á svæði 2 fara: Ómar með einn í kú, Siggi Óla með einn í kú, Siggi Aðalsteins með tvo í kýr og einn í tarf, Jón Hávarður með einn í kú og annan í tarf, Alli með einn í kú, Einar Hjörleifur með tvo í kýr, Einar Axels með þrjá í kýr, Guðmundur Péturs með einn í kú, Siggi Þór með einn í kú og Tóti Rögnvalds með einn í kú. Ragnar Arnarson með tvo í kýr og Árni Vald með tvo í kýr. Á svæði 3 fer Skúli Sveins með þrjá í kýr. Á svæði 5 fer Þorsteinn Aðalsteins með einn í kú og Sævar með tvo í kýr. Á svæði 7 bíða menn átekta eftir því að stytti upp og einnig á svæði 8. Á svæði 9 ætlaði Halldór að reyna með sínum mönnum ef stytti upp.
|
| |
|
Páll Á. Pálsson (með riffilinn) við kú sem hann felldi á svæði 2. Leiðsögumaður hans Ómar Ásgeirsson stendur við hlið hans.
|
|
Vel gekk að fella. Þó gekk á með rigningarskúrum og hvasst var víða er leið á dag. Á svæði 2 voru dýrin á leið inn undir Þrælaháls og Eyvindarfjöll, einnig fóru einhverjir hópar inn Fljótsdalsbrúnir. Felldar voru 17 kýr og einn tarfur. Á svæði 3 voru felldir tveir síðustu tarfarnir í kvótanum og einnig þrjár kýr. Á svæði 5 voru felldar þrjár kýr í Seldal. Á svæði 7 voru felldar 5 kýr og tveir tarfar.
 | |
Þorvaldur Helgi Sigurpálsson við kú sína sem hann felldi við Nóntind upp af Seldal á svæði 5. Riffillinn er TRG-22 cal 308. Kúlan sem notuð var Berger 168gr VLD Hunting. Leiðsögn: Þorsteinn Aðalsteinsson.
 |
|
Skrifað 11.09.09 |
|