| 12. sept. 2009 (myndir nýtt) |
|
Þegar þessi dagur er liðinn eru eftir þrír dagar af veiðitímabilinu. Veðurguðirnir hafa loks bænheyrt hreindýraveiðimenn og aðra hér á Austurlandi, einn af betri dögum sumars og hausts er í dag. Margir halda til veiða í dag. Á svæði 1 fer Eiríkur Skjaldar með tvo í tarfa og Jón Egill með tvo í tarfa einn í kú. Á svæði 2 fara Siggi Óla með einn í kú, Siggi Aðalst. með einn í kú, Einar Axels með einn í kú, Einar Eiríks með þrjá í kýr, Alli með einn í tarf, Tóti Borgars með einn í kú, Hjörtur Kjerúlf með einn í kú, Ómar með einn í kú og Bjarni Bergþórs með einn í kú. Á svæði þrjú fer Skúli Sveins með síðasta manninn í kýr, á svæði 4 fer Ólafur Örn með tvo í tarfa og einn í kú og Haraldur Árnason með einn í kú. Á svæði 5 fer Sævar með tvo í kýr og einn í tarf og Þórir með einn í tarf. Á svæði 6 fer Magnús Karls með síðasta manninn í tarf á sv. 6. Á svæði 7 fer Guðmundur með tvo menn í kýr, Stefán Gunnars með tvo menn í tarfa, Þorri með tvo menn í kýr, Guðmundur Valur með tvo menn í kýr og Ragnar með einn mann í kú. Á svæði 8 fer Sigurður á Borg með tvo í tarfa og Sigurður Eymundss með einn í tarf. Halldór með menn á svæði 9.
|
| |
|
Þórir Schiöth með glæsilegan tarf felldan í Vöðlavík á sv.5. Með honum á myndinni eru eiginkonan og sonur. Leiðsögn: Sævar Guðjónsson
|
|
Vel gekk að fella enda veðrið eins og best verður á kosið. Á svæði 1 voru felldir fjórir tarfar og ein kú. Á svæði 2 voru felldar 12 kýr og einn tarfur. Kvótinn á svæði 3 kláraðist er síðarsta kýrin var felld í Botnsdal. Á svæði 4 voru felldir tveir tarfar og tvær kýr í Asknesdal. Þar á eftir að veiða tvær kýr af kvótanum. Á svæði 5 voru felldir tveir tarfar í Vöðlavík og tvær kýr í Seldal. Á svæði 6 kláraðist kvótinn seinasti tarfurinn felldur á Öxi. Á svæði 7 voru felldar 8 kýr og þrír seinustu tarfarnir, fellt var inn við Brattháls, í Geithellnadal og Starmýrardal. Á svæði 8 voru felldir þrír tarfar. Á svæði níu var felld ein kýr við Hafrafell.
 | |
Magnús Baldur Kristjánsson með hornprúðan tarf sem vóg 100 kg. Felldur á svæði 4 í Asknesdal í Mjóafirði. Leiðsögn: Ólafur Örn.
 | |
Engilbert Runólfsson við fallegan 105 kg. tarf sem hann felldi innan við Urg á Fljótsdalsheiði sv. 2. Leiðsögumaður hans var Aðalsteinn Jónsson í Klausturseli.
 |
|
Skrifað 12.09.09 |
|