| 13. sept. 2009 |
|
Þá eru aðeins þrír dagar eftir af veiðitímabilinu. Veður gott á öllum svæðum og virðist ætla að vera þokkalegt til loka. Á veiðisvæði 1 fer Hafliði Hjarðar með mann í kú og tarf, á svæði 2 fer Reimar með einn í kú, Siggi Aðalst með tvo í kýr, Alli með einn í tarf og tvo í kýr, Ragnar Arnars með einn í kú, Skúli Sveins með einn í tarf. Á svæði 7 fer Guðmundur Kristinss. með einn mann í kú. Fleiri eiga örugglega eftir að fara á stað er líður á dag.
|
| |
Vel gekk að veiða eins og undanfarna daga. Á svæði 1 var felldur einn tarfur og ein kýr, á svæði 2 voru felldar 8 kýr og tveir tarfar. Dýrin voru komin inn undir veg og inn á Vesturöræfi. Á svæði 5 var felld ein kýr, á svæði 7 voru felldar þrjár kýr og á svæði 8 einnig tvær. Á svæði 9 voru felldar 7 kýr og einn tarfur.
 |
|
Skrifað 13.09.09 |
|