| 15. júlí 2010 - Upphafsdagur veiðitímabils tarfa. |
|
Fyrsti tarfurinn var felldur á svæði 7 í Berufirði rétt eftir miðnættið.. Albert var þar með einn veiðimann, Stefán Gunnarsson fór einnig með tvo veiðimenn í Búlandsdal á svæði 7 ekki komnar fréttir frá þeim nema um að annar tarfurinn náðist um kl. 20. Ómar var með mann á svæði 6 og felldi sá tarf á Breiðdalsheiði um hálf tíu í morgun, Viðar Pétursson var einnig með skyttu á sv. 6 og felldu þeir í Breiðdalnum seinni part dags. Skúli Sveins fór með mann á sv. 3 og felldi hann út á Eyjum. Reimar fór á Fljótsdalsheiðina á sv. 2 með tvær skyttur, felldu þeir tarfa við Gilsávötnin. Maggi Karls ætlað með mann á sv 6 undir kvöldið en ekki komnar fréttir um árangur.
|
| |
|
|
Skrifað 10.07.10 |
|