| 23. júlí 2010 |
|
Bjart og fallegt verður en fáir virðast ætla að nýta sér það til hreindýraveiða. Albert fer á svæði 7 með einn mann. Sævar fer með tvær skyttur á svæði 5. Stebbi Kristmanns fer með tvo menn á svæði 4 í Mjóafjörð, Stefán Helgi með einn mann á svæði 8. Veiðimaður með Albert felldi í Hamarsdal. Veiðimaður með Stefáni Helga felldi austan við Almannaskarð á svæði 8. Tarfarnir fundust ekki á svæði 4 þar sem leitað var en annar veiðimaður Sævars felldi á svæði 5.
|
| |
|
|
Skrifað 22.07.10 |
|