| 27. júlí 2010 |
|
Þoka og rigning víða á Austurlandi en ætti að létta til suður með fjörðum ef vindur snýst meir til norðausturs. Reimar er farinn á svæði 2 með einn mann og Þórhallur Borgars með annan. Jóhann Steindórsson fer með eina skyttu á svæði 6 í Breiðdalnum þar er þokan frekar neðarlega og erfitt gæti verið um vik að finna tarfana. Veiðmaður með Reimari felldi á Fljótsdalsheiði nærri Hafursflóa hornprúðan tarf og veiðimaður Þórhalls felldi uppúr hádegi í Fellum nærri Birnufelli.
|
| |
|
|
Skrifað 27.07.10 |
|