| 28. júlí 2010 (myndir) |
|
Hæg norðaustanátt á Austurlandi, þoka og rigning víða um hreindýrasvæðin í nótt. Menn halda til veiða og vona að þokan lyfti sér er líður á dag. Skúli Sveins fer með tvo menn á svæði 3, Ómar með einn á svæði 2, Snæbjörn með einn á svæði 2, Reimar með tvo á svæði 2, Eiríkur Skjaldar með einn á svæði 1 ef þokunni léttir, Rúnar með einn á svæði 7, Jóhann Steindórs með einn á sv. 6, Sigurgeir með einn á svæði 5, Sævar með tvo á svæði 5 og Páll Leifss með einn á sv. 5. Veiðimenn á svæði 3 með Skúla felldu innan við Sand í Hjaltastaðarþinghá, þar voru 7 tarfar. Veiðimaður með Rúnari á sv 7 felldi við Smjörkoll. Veiðimenn Sævars og Páls felldu í Svínadal þrjá tarfa úr 12 tarfa hópi. Veiðimaður Ómars felldi sunna við Snæfell og veiðimenn Reimars og Snæbjörns felldu á Eyjabökkum austan Jökulsár. Ekki fundust tarfar í Breiðdalnum á svæði 6 né á svæði 1 en þoka var að skemma fyrir á þeim svæðum.
|
| |
|
Sigurbjörn Úlfarsson við tarf sinn felldan á svæði 5. Fallþungi tarfsins mældist 93 kg og veiddist í um 550 metra hæð innarlega í Svínadal ... ,,Ganga dagsins var um 10 km og drógum við dýrið á “töfrateppi” niður bratta hlíðina og út dalinn um 5 km.
|
|
 | |
Tarfurinn dreginn frá veiðistað. Leiðsögumaður Sævar Guðjónsson
 |
|
Skrifað 28.07.10 |
|