| 30. júlí 2010 |
|
Nú fer í hönd ein mesta ferðahelgi ársins - undanfarin ár hafa verið frekar fáir veiðimenn sem notað hafa þessa helgi til hreindýraveiða. Fjölskyldan virðist hafa forgang fram yfir veiðarnar. Enginn búinn að tilkynna sig á veiðar nú þegar þetta er ritað. Frábært veiðiveður á Héraði en sennilega verður þokan mönnum erfið á Fjörðunum. Guðm. Kristinsson ætlar með mann á svæði 7 ef þokan lyftir sér. Stefán Kristm. fer með einn mann á svæði 4 og felldi sá maður tarf á Mjóafjarðarheiði síðdegis.
|
| |
|
|
Skrifað 30.07.10 |
|