| • Úthlutunarreglur |
|
Starfsreglur Umhverfisstofnunar um úthlutun hreindýraveiðileyfa Ákvörðun og auglýsing um hve mörg hreindýr megi veiða árið eftir skal tekin fyrir 1. desember og er nánar fjallað um þau efni í 6. grein reglugerðar um stjórn hreindýraveiða.
Þegar ákvörðun liggur fyrir auglýsir Veiðistjórnunarsvið Umhverfisstofnunar öll veiðileyfi til sölu í byrjun janúar. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar ár hvert. Berist fleiri umsóknir á hvert veiðisvæði en heimilt er að veiða á svæðinu er dregið um röð þeirra umsækjenda sem uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til veiðimanna. Öllum umsækjendum er raðað í númeraröð. Er það gert í tölvuforriti sem gefur hverri umsókn slembitölu á bilinu 1-100.000. Umsóknunum er síðan raðað eftir hækkandi röð þar sem umsóknin með lægstu töluna raðast fyrst o.s.frv.
Í fyrstu er einu dýri úthlutað pr. veiðimann en séu laus leyfi eftir það gefst veiðimönnum kostur á að kaupa aukadýr. Umsóknir sem berast eftir 15. febrúar eru settar í tímaröð og séu enn laus leyfi eftir 1. apríl þá eru þau boðin til sölu í þeirri tímaröð sem umsóknir bárust eftir 15. febrúar.
Þeim umsækjendum sem fá úthlutað veiðileyfi er send staðfesting á úthlutun og hyggist þeir nýta leyfið skulu þeir greiða staðfestingargjald, sem nemur 25 % af verði veiðileyfis fyrir 1. apríl. Lokagreiðsla skal hafa borist fyrir 1. júlí. Leyfishafar greiða upphæðina inn á sérstakan bankareikning eftir þeim leiðbeiningum sem þeir fá.
Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt þótt umsækjandi hætti við að kaupa veiðileyfið. Hyggist veiðimaður ekki nýta veiðileyfi sem greitt hefur verið að fullu endurgreiðir hreindýraráð sem nemur 3/4 hlutum gjaldsins enda takist ráðinu að endurselja leyfi. Að öðrum kosti fæst veiðileyfið ekki endurgreitt. Veiðileyfi á kálfa eru ekki seld sérstaklega en ætlast er til þess að kálfar frá felldum kúm séu skotnir. þeir eru síðan greiddir eftirá.
Til að koma í veg fyrir misnotkun á úthlutunarreglum er þeim sem fær úthlutað veiðileyfi skylt að fara á veiðar með leiðsögumanni, undir engum kringumstæðum má framselja leyfi til annarra veiðimanna. Einungis er úthlutað til veiðimanna, sem hafa gilt veiðikort og leyfi til hreindýraveiða. þarf slíkt að liggja fyrir áður en umsóknarfrestur rennur út. --------------------------------- |
|
|
|