| Hornamælingar (Nýtt efni) |
|
Hér á þessari slóð má finna nýtt efni frá Hornamælingarnefnd. hreindyr.is/index.php?name=Downloads&req=viewdownload&cid=5
Árið 2004 byrjuðu hornamælingar á íslenska hreindýrastofninum. Þá var stofnuð sérstök hornamælingarnefnd innan F.L.H. (Félag leiðsögumanna með hreindýraveiðum) og hefur hún verið starfandi síðan.
|
|
|
|
|
Meiningin er að gefa út bók eða lista yfir þær krúnur sem mældar eru, en til þess að komast í bók þarf nefndin að fá krúnuna til mælingar. Í bókinni geta menn séð hvað krúnan þeirra mælist, í hvaða flokk hún lendir og hvar á listanum yfir hæst mældu krúnurnar þeir eru.
Hugmyndin er að veita verðlaun (viðurkenningu?) fyrir stærstu krúnurnar og er það hugsað þannig að krúna sem t.d. mælist yfir 360” falli í gullflokk, og krúnur sem mælast á milli 350” og 360” falli í silfurflokk. Krúnur sem mælast undir 350” fá ekki verðlaun en niðurstöður mælinga verða skráðar í bókina ásamt upplýsingum um nafn eiganda, hvar dýrið var veitt og hvenær.
Ekki er þó búið að ákveða nákvæmlega hver lágmörkin verða til að ná krúnu í gullflokk eða silfurflokk en það verður ákveðið eftir komandi veiðitímabil. Þá hafa mælingar staðið í þrjú ár og teljum við okkur vera komin með nógu margar viðmiðunarkrúnur til þess að geta ákveðið lágmörkin.
Eitt af fyrstu verkefnum nefndarinnar var að gera kennslubók um hvernig á að mæla krúnurnar og var henni dreift á alla félagsmenn í F.L.H. Það geta því flestir leiðsögumenn mælt krúnur fyrir veiðimenn.
Myndirnar sem eru undir liðnum ” Hornamælingar “ eru lítið brot af því sem nefndin hefur mælt og eru þær fyrst og fremst settar inn til gamans og einnig til glöggvunar fyrir þá sem kannski luma á stórri krúnu og telja hana eiga erindi í bókina.
Allar nánari upplýsingar veitir nefndin en í henni eru:
Albert Jensson S:893 4013 og 478 8107
Kápugili
765 Djúpavogi
albertdora@simnet.is
Rán Þórarinsdóttir S: 866 5756 og 471 2813
Fjósinu Helgafelli 3
701 Egilsstaðir
ran@na.is
Reimar Ásgeirsson S: 426 8868 og 891 8878
Stekkjartröð 10
700 Egilsstaðir
reimara@simnet.is
 |
|
Skrifað 08.05.06 |
Tenglar sem varða efnið: hreindyr.is/myndabanki/main.php?g2_itemId=20 |