Umhverfisstofnun - hreindýr 
Valmynd
Bullet1 Forsíða
Bullet1 Tenglar
Bullet1 Leita
Bullet1 Upplýsingar
Bullet1 Skráasafn
Bullet1 Arður
Bullet1 Hreindýraráð
Bullet1 Myndasafn
Bullet1 Uppskriftir
Bullet1 Sækja um veiðileyfi
Bullet1 Kort af veiðisvæðinu

Efni
Bullet1 Veiðifréttir 2007
Bullet1 Veiðifréttir 2006
Bullet1 Staða veiðanna 2006
Bullet1 Veiðikvóti
Bullet1 Úthlutunarreglur
Bullet1 Veiðiskýrslur
Bullet1 Um leiðsögumenn
Listi yfir leiðsögumenn
Félag leiðsögumanna
Lög leiðsögumanna
Hornamælingar
Siðareglur leiðsögumanna
Bullet1 Lög og reglur
Reglugerðir
Lögin

Á síðunni núna
gestir inni: 6
áskrifendur inni: 0

Þú ert óskráður notandi. Hægt er að gerast meðlimur með því að smella hérna


Tungumál
Veldu tungumál


Daglegar veiðifréttir á veiðitímabilinu.

Lokadagur - Veiðin 15.9.2006
Síðustu veiðimennirnir á veiðum
     Bullet1Lesa meira...    15.09.06
Veiðin 14.9.2006
Næst síðasti veiðidagur að líða.
     Bullet1Lesa meira...    14.09.06
Veiðin 13.9.2006
Veiðum lokið á sv. 3, sv. 4, sv. 5, og sv.8. Fáir á veiðum í dag.
     Bullet1Lesa meira...    13.09.06
Komið að landi með hreintarfa úr veiðiferð í Hafrafell sv. 9.
Komið að landi með hreintarfa úr veiðiferð í Hafrafell sv. 9.
Veiðin 12.9.2006 (myndir)
Góða veðrið á enda? Samkvæmt veðurspám fer að rigna á suðausturlandi.
     Bullet1Lesa meira...    12.09.06
Sigurður Stefánsson með hreinkú og kálf.   Leiðsögumaður var Björn Ingvarsson
Sigurður Stefánsson með hreinkú og kálf. Leiðsögumaður var Björn Ingvarsson
Veiðin 11.9.2006
Þá er runninn upp fimmti síðasti dagur veiðitímabilsins. Nú verða menn að fara að herða sig ætli þeir að ná sínum dýrum. Eftir er að fella 59 dýr. Á veiðum eru nú leiðsögumenn á flestum svæðum. Á svæði 1 eru: Benni Óla, Reimar og Siggi Aðalst með tarfamenn, á svæði 2: eru Guðm. P., Björn Ingvars, Einar Axelsson og Stefán Geir. Jón Egill ætlaði með síðustu þrjá mennina í tarfa á sv. 3. Á svæði 5 er Sævar að fara með síðasta tarfamanninn. Á svæði 6 er Magnús Karlsson. með tvo tarfamenn. Á svæði 7 er Skúli Ben. með tvo tarfamenn og á sv. 9 er Siggi á Borg með einn. Veðrið er nokkuð gott en gæti farið að rigna á suðursvæðunum. Veiddir voru 5 tarfar á svæði 1 og einn á svæði 2, á svæði þrjú féllu síðustu þrír tarfarnir og veiðum er því lokið á því svæði. Á svæði 5 féll einnig síðasti tarfurinn en þar eru eftir fjórar kýr. Á svæði 6 er eftir einn tarfur og tvær kýr. Á svæði 7 voru felldir tveir tarfar og ein kýr (einnig voru leiðréttar þar tölurnar á kúnum). Á morgun verður farið yfir það sem eftir er á svæði 2 ef skekkjur gætu reynst þar í tölum um veidd dýr.
    11.09.06
Geir Harðarsson ánægður eftir tveggja daga veiðiferð á sv. 9 með leiðsögumanni sínum Sigurði á Borg.
Geir Harðarsson ánægður eftir tveggja daga veiðiferð á sv. 9 með leiðsögumanni sínum Sigurði á Borg.
Veiðin 10.9.2006 (myndir)
Sjötti síðasti dagur veiðitímans er að líða. Á veiðum eru nokkrir í dag enda er veðrið enn gott og verður trúlega einnig á morgun en eftir það gæti farið að koma þoka á sum svæðin. Nú eru á svæði 2: Benni Óla, Þórarinn á Víðivöllum, Eiríkur Skjaldar, Hákon og Reimar. Dýrin eru komin innarlega, inn með Hölkná og fyrir innan Þrælaháls. Siggi og Danni eru á svæði 1 og fréttir voru komnar um góða tarfa þar norður við Ármótasel. Á svæði 3 fannst stærri hjörðin við Staðarfjall í Borgarfirði og þar eru Dagbjartur og Skúli Sveins með fjóra menn. Einnig ætlaði Jón Egill á stað á 3 seinnipartinn. Á svæði 5 er Þórir með einn tarfamann og Sævar með einn sem þarf að veiða kýr. Á svæði 7 eru Skúli Ben, Albert, Helgi, Guðmundur Valur og Jónas Bjarki, á svæði 8 er Stefán Helgi og á svæði 9 er Sigurður á Borg með einn tarfamann. Alls eru því um 30 veiðimenn á veiðislóð í dag. Ef allir ná verða eftir um 60 dýr eftir daginn og 5 dagar eftir. Þeir veiðimenn sem ætla sér að skila inn leyfum ættu að gera það sem fyrst þannig að hægt sé að úthluta þeim til manna í biðröðinni. Ef leyfin seljast ekki fá menn ekkert endurgreitt. Þá er klukkan að verða hálf ellefu, margir leiðsögumenn búnir að tilkynna veiðar. Allir kláruðu á svæði tvö sem þar voru. þrír tarfar og fimm kýr féllu á svæðinu inn við Þrælaháls og við Hölkná. Á svæði 1 komu margir tarfar í ljós hjá Ármótaseli og þar í kring. Þar voru felldir 6 góðir tarfar, það veiddust því 14 dýr á svæði 1 og 2. Á svæði 3 féllu síðustu þrjár kýrnar og einn tarfur í Borgarfirði. Á svæði 5 var felldur einn tarfur og ein kýr. Á svæði 7 voru felldir þrír tarfar og tvær kýr í Geithellnadal og Hamarsdalsdrögum. Á svæði 8 voru síðustu fjórar kýrnar felldar þannig að búið er að fella kvótann á því svæði fyrst í ár. Á svæði 9 var felldur einn tarfur. Það féllu því 30 dýr dag. Veðurspá er þokkaleg fyrir morgundaginn en eftir það gæti farið að rigna og koma þoka.
     Bullet1Lesa meira...    10.09.06
Þessi myndarlegi tarfur var felldur á Brúardölum og var fallþungi hans 98 kg. Veiðimaður er Sigurður R. Sveinmarsson - leiðsögumaður Aðalsteinn Aðalsteinsson
Þessi myndarlegi tarfur var felldur á Brúardölum og var fallþungi hans 98 kg. Veiðimaður er Sigurður R. Sveinmarsson - leiðsögumaður Aðalsteinn Aðalsteinsson
Veiðin 9.9.2006 (mynd)
Mikið um að vera á veiðum í dag, síðasta helgin á veiðitímabilinu og margir ætla sér að klára í dag. Á svæði 2 eru farnir: Siggi Óla, Einar Eiríks, Bjarni, Siggi Aðalst, Þórarinn Rögnvalds, Einar Axelss., Stefán Geir og Gunnar Gutt. með 16 veiðimenn. Danni og Eiríkur Skjaldar ætluðu að leita að törfum á svæði 1. Á svæði 4 eru Björn og Dagbjartur með tvo menn. Á svæði 3 er Skúli Sveins með 1, á svæði 5 eru Þorsteinn Aðalst, Sigurgeir, Stefán Kristmanns. og Páll Leifsson. Á svæði 8 eru Sig. Eym. með einn mann, Skúli Ben. með síðasta tarfamanninn þar, og Stefán Helgi. Á sv. 9 eru Halldór og einnig Siggi á Borg. Á svæði 7 eru: Helgi Jens, Albert, Guðmundur Valur og Ragnar. Á svæði 6 eru: Þorri Magg., Magnús Karls og Jónas Bjarki eru á svæði 6. Mörg dýr verða felld í dag enda gott veður, fullhvasst á Héraði en lygnir sennilega með kvöldinu eftir spánni. Það verða skráð inn eftir daginn í dag 48 dýr, 30 kýr og 18 tarfar. Fimm af þessum dýrum reyndar felld í gær en ekki voru komnar fréttir um þau áður. Á svæði 2 var mest fellt: 11 kýr og þrír tarfar, dýrin voru þar á svæðinu frá Vegufs og inn fyrir Eyvindarfjöll. Á svæði 1 féllu fimm tarfar. Á svæði 4 féllu tvær kýr í Hesteyrardal í Mjóafirði og er þá aðeins ein eftir á því svæði. Á svæði 5 voru felldir þrír tarfar og fjórar kýr í Breiðuvíkurfjallinu og Sveifinni. Á svæði 6 voru felldir þrír tarfar og ein kýr. Á svæði 7 voru felldar þrjár kýr og tveir tarfar á Lónsheiði og á Hraununum. Á svæði 8 voru felldar fjórar kýr og síðasti tarfurinn á því svæði í ár. Á svæði 9 voru felldar 5 kýr og 1 tarfur. ( þrjú af þeim í gær)
    09.09.06
Helgi Kjærnested með kú sem hann felldi í Austdal sv. 4. Leiðsögn: Björn Ingvarsson
Helgi Kjærnested með kú sem hann felldi í Austdal sv. 4. Leiðsögn: Björn Ingvarsson
Veiðin 8.9.2006(mynd nýtt)
Enn gengur á þá daga sem nú eru eftir til að klára veiðar - ég hefði nú viljað sjá heldur lægri tölu á óveiddum dýrum en samt hafa veiðar gengið vel síðustu daga og spáin er góð um helgina þannig að örugglega á eftir að fella mikið. Verið er á veiðum á flestum svæðum núna. Heimilt var að færa meira af törfunum á svæði 2 yfir á svæði 1 þannig að létta ætti á Fljótsdalsheiðinni nú síðustu dagana í tarfaveiðinni. Á svæði 2 eru nú: Siggi Aðalst.,Danni, Ómar, Siggi Óla og Stefán Geir. Snæbjörn er á sv. 1. Á svæði 6 er Þorri Magg, á svæði 3 er Jón Egill, á svæði 4 er Björn Ingvarsson, á svæði 5 eru Sævar Guðjóns, Þorsteinn og Friðrik. Á svæði 9 eru Halldór Guðmundsson og Siggi á Borg. Allir sem fóru á svæði 2 kláruðu í dag og þar voru hjarðirnar komnar inn milli vatna og inn undir Norðastafell. Gott verður að veiða næstu daga þar sem ekki þarf að elta dýrin úti í heiðina. Alls veiddust á svæði 2: 8 kýr og 2 tarfar, einn tarfur veiddist á svæði 1. Á svæði 3 veiddist ein kýr í Beinageitinni, þar var 70 dýra hjörð. Á svæði 4 náðist ein kýr í Austdalnum - hjörðin virtist á leið yfir í Mjóafjörð, þar eru nú aðeins óveiddar þrjár kýr. Á svæði 5 gekk enn á tarfana, fjórir voru felldir í dag í Sveifinni. Á svæði 7 féll einn tarfur og ein kýr, þar verða menn að fara að herða sig til að ná því sem eftir er. Á svæði 8 var ekkert fellt en á svæði 9 ein kýr í Heinabergsdal. Alls féllu því 20 dýr í dag.
    08.09.06
Veiðin 7.9.2006(myndir nýtt)
Frábært veður - veiðiútlit gott
Margir lagðir á stað á Fljótsdalsheiðina á sv.2. Dýrin hafa farið hægt inn vegna þess hve áttin hefur verið breytileg - nú gætu þau farið að koma vegna ákveðinnar sunnanáttar. Á sv. 2 eru farnir: Ómar, Jón Egill, Þórarinn, Gunnar Gutt, Hákon, Guðmundur P, og Stefán Geir. Á sv. 3 er Dagbjartur, á sv. 5 eru Sigurgeir, Sævar og Friðrik. Á svæði 6 eru Rúnar og Reimar. Á svæði 7 eru Ragnar, Guðmundur Valur og Helgi Jens. Þorri farinn á svæði 6 með þrjá menn, Björn Ingvars fór á sv.4 með tvo menn, Eiríkur og Hjörtur á sv. 1 með tvo menn. Nokkuð margir búnir á Fljótsdalsheiðinni dýrin koma inn neðan í Grjótufsinni og norður við Vegufs. Vel verður veitt í dag ef svo fer fram sem horfir. Þá eru það veiðitölurnar sem komnar eru. Á svæði 1 er búið að tilkynna einn veiddan tarf, á sv. 2: 9 tarfar felldir og 8 kýr. Á svæði 4 voru felldar þrjár kýr í Skálanesheiðinni. Á svæði 5 var veitt í Vöðlavík, 5 tarfar og þrjár kýr. Á svæði 6 náðust tveir tarfar og á svæði 7 þrír. Engin dýr sáust á sv. 3 þrátt fyrir mikla leit.. Það eru því komnar fréttir um 34 felld dýr, 20 tarfa og 14 kýr. Veðurspá góð fyrir næstu daga.
    07.09.06
Veiðin 6.9.2006
Rigning í nótt víða á veiðisvæðunum en er að létta til. Á svæði 2 eru Björn Birgiss, Stefán Geir, Guðmundur P. Ómar Ásgeirs, Reimar, Jón Egill, Eiríkur Skjaldar og Jón Hávarður. Siggi er á svæði 1 og Snæbjörn líka, þeir eru að svipast um eftir töfum Á svæði 3 er Dagbjartur og Skúli ætlaði hugsanlega á stað seinni partinn. Á svæði 5 er þokunni að létta, Sævar og Sigurgeir bíða átekta og stefna á Sandvík. Á svæði 6 er Árni J. Á svæði 7 er ekkert veiðiveður sökum rigningar og þoku en Ragnar á Bragðavöllum ætlaði samt að reyna að finna kýr. Á svæði 8 er Stefán Helgi með einn tarfamann og Siggi á Borg með annan á svæði 9. Það hefur gengið vel að veiða undanfarna daga og gengið vel á kvótann. Í dag var aðeins áragnur af veiðum á sv. 1 og 2, sv. 7 og á sv. 8.
Einn tarfur var felldur á sv. 8 og annar á sv. 7, en á svæði 2 voru felldir fjórir tarfar og 8 kýr. Þrír tarfar voru felldir á sv.1. Dýrin á svæði tvö virðast hafa stoppað út við Stórudæld og utan við Bræður. Dýrin voru í smáhópum í morgun þeir fremstu utan við Vegufsina en dýrin fóru úteftir þegar byrjað var að veiða úr þeim. Veðurspár eru ótryggar og engin afgerandi átt ríkir en þó virðist ætla að létta meira til um helgina. Margir stefna örugglega á veiðar þá. Nú eru 200 dýr óveidd og 9 dagar eftir af veiðitímabilinu. 
    06.09.06
Heimir S. Haraldsson með tarf sinn felldan í Sýslumannshæð á sv. 1, leiðsögumaður var Aðalsteinn Aðalsteinsson
Heimir S. Haraldsson með tarf sinn felldan í Sýslumannshæð á sv. 1, leiðsögumaður var Aðalsteinn Aðalsteinsson
Veiðin 5.9.2006 (mynd nýtt)
Töluvert margir á veiðum í dag. Eftirtaldir leiðsögumenn komnir á stað: Á svæði tvö eru farnir: Siggi Aðalst, Danni, Bjarni í Hjarðarhlíð, Stefán Geir, Jón Egill, Reimar, Guðmundur P. Snæbjörn, Kolbeinn, Jón Hávarður og Eiríkur Axelsson. Menn stefndu upp frá Ási, en einnig norður á Vegufs. Á svæði þrjú er Dagbjartur með tvo menn í kýr, á svæði 4 í Seyðisfjörð eru að fara Bergur Jónss. og Skúli Sveinss. dýrin þar sáust fyrir ofan Skálasnes. Á svæði 5 er Sigurgeir farinn á stað, sennilega í Sandvík og einnig Friðrik. Jónas Bjarki ætlaði á sv.6 og Helgi Jensson á sv. 7 Þoka að stríða mönnum á þeim svæðum. Siggi á Borg ætlaði að kíkja á sv. 8 ef væri skyggni. Veiðar gengu vel á svæði 1 og 2 náðu flestir að veiða sín dýr. Dýrin voru komin innar á heiðina og var verið að veiða í Álftavatnshæðunum og þar fyrir innan inn undir Vegufs. 6 tarfar veiddust á sv. 1. Smáhópur kom úr Rananum og útfyrir. Einnig fundust tarfar utan við Sandfell. Á svæði 3 veiddist ein kýr í Eiríksdal og á svæði 4 tvær kýr milli Dalaskarðs og Afréttarskarðs. Á svæði 5 veiddist einn tarfur í Sandvík og ein kýr á svæði 6. Alls veiddust því 14 tarfar og 12 kýr.
     Bullet1Lesa meira...    05.09.06
Stefán Stefánsson felldi þennan tarf í Geithellnadal. Með honum á mynd eru Skúli Ben leiðsögumaður og Kjartan Ólafsson aðstoðarm.
Stefán Stefánsson felldi þennan tarf í Geithellnadal. Með honum á mynd eru Skúli Ben leiðsögumaður og Kjartan Ólafsson aðstoðarm.
Veiðin 4.9.2006(mynd nýtt)
Bjart og fallegt veður - kalt, fyrsti snjór féll í tinda.
     Bullet1Lesa meira...    04.09.06
Steinarr Lár Steinarrsson með 105 kg tarf felldan á sv.1. Leiðsögum. var Eiríkur Skjaldar.
Steinarr Lár Steinarrsson með 105 kg tarf felldan á sv.1. Leiðsögum. var Eiríkur Skjaldar.
Veiðin 3.9.2006 (mynd)
Farið er að létta til á sv. 2. Sem fyrr eru dýrin á því svæði yst í Fellaheiði og fyrir ofan Teigasel. Margir veiðimenn eru bæði við Teigasel og einnig fóru margir upp frá Fjallsseli. Á sv.2 eru nú eftirfarandi leiðsögumenn með veiðimenn: Guðmundur P. Siggi, Danni, Bjarni í Hjarðarhlíð, Þórir Sch., Ómar, Reimar, Alli, Sveinn Ingimars, Tóti, Jón Hávarður, Snæbjörn og Hjörtur F. Eiríkur er á sv.1. með menn. Jón Egill og Dagbjartur eru með fjóra menn á sv. 3. Á svæði 5 eru Sævar, Sigurgeir, Friðrik og Stebbi Kristmanns með 9 menn sem bæði þurfa að veiða kýr og tarfa. Á svæði 7 eru enn Guðmundur Valur, Helgi og Albert, Guðmundur á Þvottá og Þorri er inni í Bratthálsi. Á svæði 9 eru: Siggi á Borg og Halldór Guðm. Sennilega verður líflegt í dag og vonandi passa menn að ganga ekki á hlut hvers annars og fara eftir siða og öryggisreglum sem menn þurfa að hafa í heiðri á veiðislóð.
     Bullet1Lesa meira...    03.09.06
Veiðin 2.9.2006
Heldur að létta til - mikið veiðiálag á sv.2 framundan.
     Bullet1Lesa meira...    02.09.06
Veiðin 1.9.2006
Fáir á veiðum. - Þoka og rigning.
     Bullet1Lesa meira...    01.09.06
Jóel Kristjánsson með tarf sinn felldan á sv.2, leiðsögumaður var Ómar Ásg.
Jóel Kristjánsson með tarf sinn felldan á sv.2, leiðsögumaður var Ómar Ásg.
Veiðin 31.8.2006 (mynd nýtt)
Skárra veðurútlit - auglýst eftir veiðimönnum.
     Bullet1Lesa meira...    31.08.06
Hér er sá stóri: Veiðimaður er Loftur Einarsson - leiðsögumaður hans var Jón Egill Sveinsson og tók hann myndina
Hér er sá stóri: Veiðimaður er Loftur Einarsson - leiðsögumaður hans var Jón Egill Sveinsson og tók hann myndina
Veiðin 30.8.2006 (mynd)
Enn er norðaustanáttin ríkjandi á mörgum veiðisvæðum - mikið búið að rigna í nótt á Héraði og jarðvegur orðinn mjög blautur. Bjartara er á svæðum 8 og 9. Leiðsögumenn búnir að skrá sig á veiðar með veiðimenn: Hákon og Eiríkur Skjaldar á sv.1, Reimar, Emil Björns, Siggi Aðalst. og Danni á sv. 2. Magnús Karlss. og Jón Egill á sv.6, Sævar á sv. 5 og Siggi á Borg á sv.9. Vonandi veiðist eitthvað í dag því ekki er gott að falli úr margir veiðlausir dagar. Fréttir komnar um tvær fallnar kýr á svæði 2 og eina á sv.1. Tveir góðir tarfar voru felldir á sv.1. Tveir tarfar voru felldir á sv.6. Annar þeirra er þyngsti tarfurinn sem veiðst hefur á tímabilinu. 133 kg já - 133 kg var hann. Hæpið er að sú tala verði toppuð því þetta er með alþyngstu törfum sem maður hefur heyrt um að hafi veiðst. Engar fréttir frá öðrum svæðum. Kannski kemur meira í fyrramálið - nú eru 16 dagar eftir af veiðitímanum. Veðurspáin er heldur betri fyrir helgina. Viðbót: Þeir feðgar Danni og Siggi kláruðu sína menn í gær, 3 tarfa og tvær kýr. Voru þeir að veiða við Hnefilinn á sv.2. Mjög blautt er orðið víða á veiðisvæðinu og verða menn að vanda sig við að fara um þær slóðir sem nothæfar eru.
    30.08.06
Veiðin 29.8.2006
Rigning í nótt á Héraði en þurrt á Fjörðunum. Er að létta til.
     Bullet1Lesa meira...    29.08.06
Veiðin 28.8.2006
Þoka og rigning. Skyggni frekar slæmt víða á veiðisvæðunum. Þó ætti að vera þokkalegt á sv. 7, 8. og 9.
     Bullet1Lesa meira...    28.08.06
Jón Víðir Hauksson við kú fellda á sv. 9 við Grástakk í Heinabergi. Leiðsögumaður var Skúli Ben.
Jón Víðir Hauksson við kú fellda á sv. 9 við Grástakk í Heinabergi. Leiðsögumaður var Skúli Ben.
Veiðin 27.8.2006 (mynd nýtt)
Veðrið víða frekar erfitt til veiða. Bjartast á 7, 8, og 9.
     Bullet1Lesa meira...    27.08.06
Ólafur Ólafsson með sína fyrstu felldu hreindýrskú í Mosdalnum innan við Snæfell á svæði 2, leiðsögumaður var Emil Björnsson
Ólafur Ólafsson með sína fyrstu felldu hreindýrskú í Mosdalnum innan við Snæfell á svæði 2, leiðsögumaður var Emil Björnsson
Veiðin 26.8.2006 (myndir nýtt)
Þoka er nú víða á veiðisvæðum en að létta til á sv. 2, þangað eru komnir margir leiðsögumenn og veiðimenn þeirra eru komnir til veiða á Fljótsdalsheiðinni. Stefán Geir og Reimar búnir með sínum tarfamönnum í morgun. Hákon og Guðmundur P. eru með fjóra menn, Snæbjörn er með þrjá, Einar Eiríks með tvo, Siggi Óla með tvo, Siggi Aðalsteins með tvo, Emil með tvo, Einar Axels með tvo, Þorvaldur Ágústsson með tvo. Ómar ætlar að reyna að fara á sv.6 Helgi Jens á sv.7 en þar er þoka, Albert með menn á sv.8 og einnig Stefán Helgi. Siggi á Borg með tarfamann á sv.9 ef veður leyfir. Það veiddust 36 dýr í gær. Á sv. 2 veiddust 29 dýr, 13 tarfar og 15 kýr, 1 tarfur á sv.1, á svæði 3 veiddist ein kýr, kýr og tarfur á sv.6, einn tarfur á sv.8 og tvær kýr og tarfur á sv. 9. Metdagur í veiðum.
     Bullet1Lesa meira...    26.08.06
Veiðin 25.8.2006 (myndir)
Þokufullt og erfitt til veiða á mörgum svæðum en alskýjað og logn á Héraði. Margir stefna til veiða á svæði 2, Ómar með einn í kýr, Benni Óla með þrjá í tarfa, Siggi Aðalst. og Emil með þrjá menn, Alli í Klausturseli með tvo í kýr, Gunnar Gutt. með einn í tarf. Siggi Þór með einn og Guðmundur P með annan í kýr, Jón Egill með þrjá tarfamenn, Hákon og Einar Axelsson með þrjá tarfamenn og ein með kú. Snæbjörn með einn mann. Jón Hávarður á leið upp með þrjá í tarfa og Tóti Borgars með tvo í tarf og kú. Eiríkur Skjaldar og Hjörtur ætluðu að kíkja á sv.1 með tvo tarfamenn. Jón Sigmar ætlar á svæði 3 með einn mann, Þorri er með menn á svæði 7, fór af stað í gærkvöldi, Rúnar ætlaði að kíkja með mann á sv. 6. Stefán Helgi með tarfamann á sv. 8 og Siggi á Borg með tvo á svæði 9 í tarf og kú. Nú spáir norðaustan rigningu eftir helgi og ef sú spá gengur eftir lagast veðrið trúlega á sv. 7, 8 og 9, en versnar á sv. 2. Metveiði í dag. Búinn að fá upplýsingar um 30 felld dýr. Á svæði tvö voru veiddar 13 kýr og 13 tarfar, á svæði 1 voru felldir tveir tarfar. Á svæði 8 féll einn tarfur og á svæði 9 ein kýr. Á svæði tvo veiddust flest dýr nærri Hólsufs og við Hólmavatn en einnig inn við Snæfell og við Grábergshnjúk og úti í Álftavatnshæðum. Á morgun verður sennilega þokkalegt veður og vonandi gengur mönnum líka vel þá. Flestir kláruðu í dag en ekki náðist að veiða á sv. 3 eða sv. 5.
    25.08.06
Veiðin 24.8.2006
Þá er enn einn veiðidagurinn runninn upp. Þoka er á svæði 5 og 6, engar veðurfréttir af 7 en orðið þokkalega bjart á svæði 8. Á svæði 2 á Fljótsdalsheiðinni er þungbúið en léttir örugglega til er líður á dag. Skúli Sveins ætlar á sv. 3, Sævar fer með tvo menn á svæði 4. Stefán Helgi lagður af stað með menn á sv.8. Á svæði 2 verða svo flestir veiðimenn eins og síðustu daga. Leiðsögumennirnir; Eiríkur Skjaldar, Guðmundur P. Vignir Jón, Raggi Arnars, Jón Egill, Einar Eiríkss og Siggi Aðalsteins ætla að vera með menn þar í dag. Þanniga að það verða milli 15 og 20 veiðimenn á heiðinni í dag. Veðurspáin fyrir helgina er góð á svæði 2 en óvíst hvort þokan stríðir mönnum á öðrum svæðum. Eftir helgi er svo spáð norðaustanátt og þá gæti nú vandast málið á sv. 2. en batnað sunnar. Albert ætlar að fara með mann á stað á 7 ef léttir til. Þá eru komnar fréttir af svæði 2: Veitt var inn við Snæfell, við Sauðahnjúk, í Syðra dragi og víðar. Einnig við Axará. Búið að tilkynna veiðar á einum tarfi og 7 kúm á svæði 2 og þremur törfum á svæði 1. Einnig veiddust þrjár kýr á svæði 8 undir leiðsögn Stefáns Helga. Sumir eiga enn eftir að tilkynna um árangur.
    24.08.06
Veiðin 23.8.2006
Enn bjart á Héraði, þokkalegt á fleiri svæðum en þoka á 7,8, og 9.
     Bullet1Lesa meira...    23.08.06
Gunnlaugur Hafsteinsson við hreinkú sína fellda á sv. 3
Gunnlaugur Hafsteinsson við hreinkú sína fellda á sv. 3
Veiðin 22.8.2006(mynd nýtt)
Þá eru menn komnir á stað til veiða: Dýrin á Fljótsdalsheiðinni eru inn á Vesturöræfum inn við Jökulkvísl og svo önnur hjörð einhvers staðar við Snæfell, sumir fóru upp í Fellaheiði og aðrir ætluðu að gá hvort stóra hjörðin sem var þar væri ekki að koma inn með vötnum. Margir á heiðinni í dag: Einar Eiríks, Ragnar og Árni Vald, Vignir Jón, Gunnar Gutt, Siggi Óla, Danni, Helgi Jens, Björn Ingvarss, Siggi Aðalsteins, Kolbeinn, Hjörtur Friðriks og Jón Egill eru væntanlega allir komnir á veiðislóð og þeim um 30 hreindýraskyttur. Það sjá allir að birðraðafyrirkomulagið er komið til að vera og menn ná þá oft ekki að klára á einum degi. Nú hugsa örugglega einhverjir, því í fjandanum fór ég ekki fyrr á veiðar. Miðað við þann fjölda sem eftir er að veiða þá verða örugglega flestir dagar svona á svæði 2 til loka veiðitímans. Skúli Sveins er farinn á sv. 3 með tvo menn en þar er þoka, Dagbjartur fór með tvo á stað í Seyðisfjörðinn á sv.4. Sævar er farinn af stað á sv. 5 með tvo menn sem ætla að veiða kýr, enginn á sv. 6, Jónas Bjarki ætlar að leita að tarfi á sv. 7, enn engar fréttir af sv. 8 en Siggi á Borg ætlaði með einn veiðimann á sv. 9. Á svæði tvö voru felldar 17 kýr í dag og 7 tarfar auk nokkurra kálfa. Dýrin voru veidd inn á Vesturöræfum, kringum Snæfell, við Grábergshnjúk og utan við Laugafell en einnig út í Fellaheiði og við Grjótufs. Skúli Sveins og Stebbi Kristmanns náðu að klár sína menn á svæði 3, tvær kýr og einn tarf, dýrin veid vdust í Húsavíkinni. Tveir menn kláruðu á svæði 4, kýr í Sörlastaðadal. Ein kýr veidd á svæði 5 og önnur á svæði 9 í Heinabergsdal.
     Bullet1Lesa meira...    22.08.06
María Björg Guðnadóttir með tarf sinn felldann á Vesturöræfum inn undir Brúarjökli.
María Björg Guðnadóttir með tarf sinn felldann á Vesturöræfum inn undir Brúarjökli.
Veiðin 21.8.2006 (myndir)
Veðrið er of gott til veiða segja sumir. - En örugglega er gaman að vera á veiðum í svona veðri.
     Bullet1Lesa meira...    21.08.06
Kýrin sem hvarf.  Gísli Gunnarsson við kú sína sem felld var í Sörlastaðadal á sv. 4. Kýrin féll svo snögglega í hvarf að veiðimaðurinn hélt að hann hefði ekki hitt. Leiðsögum. Emil Björnss.
Kýrin sem hvarf. Gísli Gunnarsson við kú sína sem felld var í Sörlastaðadal á sv. 4. Kýrin féll svo snögglega í hvarf að veiðimaðurinn hélt að hann hefði ekki hitt. Leiðsögum. Emil Björnss.
Veiðin 20.8.2006(mynd nýtt)
Góður gangur í veiðum
     Bullet1Lesa meira...    20.08.06
Veiðin 19.8.2006
Margir á veiðum - gott skyggni nema á hluta af 7, sv. 8 og sv. 9     Bullet1Lesa meira...    19.08.06
Veiðin 18.8.2006
Sól og blíða á mörgum svæðum!
Þá koma hér upplýsingar um þá leiðsögumenn sem eru á veiðislóð í dag.  Á svæði 1 er Eiríkur Skjaldarson með tvo menn og Snæbjörn með 1. Á svæði 2 eru nokkrir leiðsögumenn, Guðm. í Bessastaðagerði með þrjá menn,  Reimar með einn, Danni með tvo, Siggi Aðalst. með þrjá, Ragnar Arnarsson og Árni Valdimarsson með sex saman og Óskar með einn.  Á svæði 5 eru Stebbi Kristmanns og Sigurgeir sem ekki náðu að klára í gær í Sandvík en eru nú á Barðsnesinu í törfum, þangað stefndi líka Þorsteinn Aðalsteinsson með einn mann. Guðmundur á Þvottá ætlaði með þrjá menn á sv.7, Jónas Bjarki og Þorri fóru einnig á sv.7 með tvo hvor ogGuðm. Valur líka með mann sem ekki kláraði í gær. Jón Egill fór með tvo á sv.4 og einnig Björn Ingvarsson með tvo. Það verða þá fyrstu kýrnar sem felldar verða á sv. 4.  Örugglega verða felld mörg dýr í dag.  Meira um gang veiðanna í kvöld. Fagur dagur er liðinn á Austurlandi, setning Ormsteitis hátíðar á Héraði var í kvöld í fallegu veðri á Vilhjálmsvelli á Egilsst. Metdagur í veiðum á þessu tímabili var í dag. Búð að tilkynna inn 30 felld dýr, þó ekkert hafi veiðst á sv. 8,9 og 6. Á öðrum svæðum var veitt og fyrstu kýrnar voru felldar á svæði 4. Tvær í Hesteyrardal í Mjóafirði og tvær í Sörlastaðadal í Seyðisfirði. Á svæði 1 voru felldir tveir tarfar og ein kýr. Á svæði 2 eru komnar upplýsingar um 5 fellda tarfa og 9 felldar kýr. Ein kýr felld á sv. 3. Á svæði 5 voru felldir 7 tarfar sumir í Sandvík og aðrir á Barðsnesi. Tveir tarfar féllu svo á svæði 7. Ekki hef ég fengið fréttir af öllum veiðimönnum þannig að kannski á eftir að bætast við.    18.08.06
Veiðin 17.8.2006
Sól og blíða - fleiri skyttur vantar á veiðislóð!     Bullet1Lesa meira...    17.08.06
Veiðin 16.8.2006
Margir lagðir af stað - gott veður á öllum veiðisvæðum.     Bullet1Lesa meira...    16.08.06
Veiðin 15.8.2006
Misjafnt veður á veiðisvæðum.     Bullet1Lesa meira...    15.08.06
Veiðin 14.8.2006
Fáir á veiðum í dag. Þoka og rigning nema á svæðum 7, 8 og 9.  Veiðimaður  með Guðm. á Þvottá veiddi tarf á sv.7 á Lónsheiði í morgun. Siggi á Borg fór með einn mann með kú á sv. 8.  Danni fór með tvo tarfamenn á sv. 1 og Reimar með 3 í kýr á sv 2.  Guðmundur Valur að leita að töfrum á sv. 7. með einn mann. Menn með Reimari veiddu tvær kýr og kálfa í Klausturselsheiði í roki og rigningu. Afleitt veiðiveður nema á syðstu svæðunum. Spáin skárri fyrir morgundaginn hér á Héraði. Nú er veiðitímabilið hálfnað og eftir er að veiða rúmleg 700 dýr á 32 dögum, vonandi fara menn að drífa sig á veiðar. Ef veiðimaður nær ekki sínu dýri og ekki tekst að selja leyfið öðrum í biðröðinni þá fær viðkomandi veiðimaður ekkert endurgreitt nema sérstakar ástæður liggi að baki svo sem veikindi eða slysfarir valdi því að leyfishafi kemst ekki á veiðar. Takist að selja leyfið öðrum þá er fær leyfishafi endurgr. 75%. Vil ég benda mönnum á að nýta vel þá daga sem gefur til veiða. Veðurfar á veiðisvæðunum hefur verið ótryggt og erfitt að treysta um of á veðurspár.    14.08.06
Veiðin 13.8.2006
Frábært veður - auglýst eftir veiðimönnum!     Bullet1Lesa meira...    13.08.06
Ívar Erlendsson ásamt leiðsögumanni sínum Einari Haraldssyni við fallegan tarf sem vigtaði um 115 kg. Veiddur í yfir 1000 m hæð undir Steinafjalli á svæði 9.
Ívar Erlendsson ásamt leiðsögumanni sínum Einari Haraldssyni við fallegan tarf sem vigtaði um 115 kg. Veiddur í yfir 1000 m hæð undir Steinafjalli á svæði 9.
Veiðin 12.8.2006 (myndir)
Líf og fjör!     Bullet1Lesa meira...    12.08.06
Veiðin 11.8.2006 (myndir)
Nú lifnar yfir veiðum á þokusvæðunum.     Bullet1Lesa meira...    11.08.06
Veiðin 10.8.2006 (mynd)
Menn bíða og vona að þokan fari nú að hopa undan hægviðrinu sem spáð er um helgina en nú er suðaustan átt enn á öllum veiðisvæðum. Það er sennilega bara á Héraði sem öruggt er að þokunni létti í dag en vonandi hörfar hún eitthvað á öðrum svæðum. Hver dagur hér eftir sem gefu er dýrmætur og verða menn að grípa hvert tækifæri. Nú er veiðitímabilið að verða hálfnað en aðeins er búið að veiða 121 dýr þannig að mikið er eftir. Þeir sem voru á Fljótsdalsheiðinni og ekki gátu klárað fara upp í dag. Ómar Ásgeirs með þrjá menn í kýr, Einar Eiríks með tarfamann, Óskar með þrjá menn í tarfa, Helgi Jensson ætlar líka á stað með tarfamenn. Guðmundur í Bessastaðagerði ætlar með einn og Hákon með annan. Siggi Aðalst. með einn með kú. Hjörtur ætlaði að kíkja á svæði eitt með tvo í tarfa og einn með kú. Magnús Karls ætlar með tvo á sv. 6 þar sem ekki gaf í gær. Menn á fjarðasvæðunum bíða í startholunum. Gunnar Gutt. og Emil fóru hvor með sinn manninn í kýr undir kvöldið á svæði 2 og náðu þeir að klára rétt fyrir myrkrið. Ómar kláraði sína menn, einnig Siggi Aðalst., Hákon, Helgi, Guðmundur og Einar Eiríks. Dýrin á svæði tvö voru í frá Grenisöldunni út um Bessastaðavötnin og einnig utar í austurbrúnunum. Menn Hjartar kláruðu á sv. 1, eina kú og tvo tarfa. Magnús Karls fann tvo tarfa á sv. 6 og náði hans maður að klára. Sævar og Sigurgeir fóru með tarfamenn á stað á svæði 5 og sáu tarfa sem komu upp úr Sandvík, árangur liggur ekki fyrir. Hef heldur ekki frétt af Óskari með sína tarfamenn á svæði 2.     Bullet1Lesa meira...    10.08.06
Veiðin 9.8. 2006
Enn er nú þokan að stríða mönnum. Á sv. 2 eru Óskar Bjarna, Ómar Ásg. og Einar Eríksson bæði með veiðimenn sem ætla að veiða tarfa og kýr. Magnús Karls ætlaði að kíkja á sv. 6 með tvo menn, Siggi á Borg fór á stað á sv. 8 með tvo menn. Sævar ætlaði að reyna að finna tarf  á sv. 5 með sínum veiðimanni.  Hef grun um að fleiri tilkynni sig á veiðar er líður á daginn ef að léttir til. Hjörtur Friðriksson fór á sv.1 með tarfamenn en þeir fundu enga. Þokan hafði áhrif á veiðar eins og oft áður á tímabilinu. Engir tarfar náðust en þrjár kýr á Fljótsdalsheiðinni og ein á sv. 8. Dýrin voru komin út undir Álftavatnshæðir og héldu sig í Fljótsdalsbrúnum á sv 2. .    09.08.06
Brynjar Gunnarsson með kálf sem hann veiddi ásamt kú á sv. 2 með Sigurð Aðalsteinsson leiðsögum.
Brynjar Gunnarsson með kálf sem hann veiddi ásamt kú á sv. 2 með Sigurð Aðalsteinsson leiðsögum.
Veiðin 8.8. 2006 (myndir)
Þoka og rigning?     Bullet1Lesa meira...    08.08.06
Jóhannes Kristinsson með hornprúðan tarf felldan á sv.1. Leiðsögumaður Björn Ingvarsson
Jóhannes Kristinsson með hornprúðan tarf felldan á sv.1. Leiðsögumaður Björn Ingvarsson
Veiðin 7.8. 2006 (mynd)
Fjör í tarfaveiðum en rólegt í kúnum á frídegi verslunarmanna.     Bullet1Lesa meira...    08.08.06
Veiðin 6.8. 2006 (mynd nýtt)
Veiðifrétt frá gærdeginum sem vantaði. Veiðimaður með Jóni Hávarði veiddi undir myrkrið í gær á sv 3 í Loðmundarfirði, kú og kálf. Í dag var síðan verið víða á veiðum. Aðeins féll eitt dýr á Fljótsdalsheiði, veiðimaður með Ástvaldi veiddi tarf við Eyvindarfjöll.. Jónas Bjarki fór með veiðimann á sv. 7 í Fossárdal, veiddi hann aldraðan tarf sem þar var einn á ferð. Stefán Helgi fór með mann á sv. 8 og veiddi hann kýr og kálf við Seltind. Sig. Eymundss. fór með annan á svæði 8 en ekki hafa borist fréttir um árangur. Sævar og Stebbi Kristmanns fóru með þrjár skyttur í Sandvík og þar voru felldir þrír stórir tarfar, einn þeirra fékk sér sundsprett í Sandvíkurvatninu og var hann skotinn á sundi!! Ekki hafa borist fréttir af þeim bræðrum Helga og Albert sem voru með þrjá veiðmenn á svæði 7, ekki heldur af Reimari, Óttari, og Dagbjarti sem fóru með skyttur á sv. 3. Tölur verða uppfærðar í töflunni um veidd dýr á morgun. Í dag felldir 5 tarfar og tvær kýr. Viðbót við veiðina, veiðimaður á sv. 8 veiddi tarf með Sig.Eym. í gærkv. Tvær kýr og einn tarfur féllu á sv. 7 undir leiðsögn Helga og Alberts.    06.08.06
Kristján Þórðarson við tarf sinn sem felldur var í svokölluðum Hraukum á sv.1. Leiðsögumaður var Hákon Aðalsteinsson
Kristján Þórðarson við tarf sinn sem felldur var í svokölluðum Hraukum á sv.1. Leiðsögumaður var Hákon Aðalsteinsson
Veiðin 5.8. 2006 (mynd)
Ekki margir á veiðum í dag. Tveir veiðimenn með Jóni Agli kláruðu á sv. 3, einn af veiðimönnum Þóris kláraði á sv.5 í Viðfirði, Þórhallur Borgars var með einn á sv.2 og felldi hann tarf við Þrælahálsinn, Hákon fór með einn á sv. 1 og var felldi hann góðan tarf vestan við Sauðafell. Reimar og Óttar voru einnig á sv. 3 en ekki hafa komið fréttir frá þeim. Sævar fór með sína menn víða um svæði 5 en engir góðir tarfar sáust. Fleiri fréttir því ekki um felld dýr og þokan var enn að valda mönnum vandræðum á mörgum svæðum. Það féllu því 5 tarfar í dag en engin kýr. Veiðimenn stefna á veiðar á sv.3, sv.5, sv. 7 á morgun og örugglega eiga fleiri eftir að bætast við í fyrramálið.    06.08.06
Veiðin 4.8. 2006
Suðaustan/austan strekkingur.
Þá eru örugglega margir landsmenn komnir á stað í hið árlega rallý verslunarmannahelgarinnar. Veiðimenn hafa tekið því rólega í morgun enda þokan enn að stríða mönnum á mörgum svæðum. Ég veit að menn stefna á veiðar á svæði 5 í dag eins og undanfarna daga, en vefmyndavélar úr Fjarðabyggð sína þoku og í Oddskarði var svartaþoka. Þegar ekki tekst að klára veiðar safnast veiðimenn upp hjá leiðsögumönnum og staðan verður erfiðari. Óli Gunnar, Sævar og Þórir eru með menn tilbúna á svæði 5 sem ætla að veiða tarfa en illa hefur gengið vegna þokunnr. Jón Egill ætlar að fara á sv.3 með tvær skyttur, Bergur Jónss., Ómar Ásg., Þorv.Ágústss, og Tóti Borgas. fara á sv. 2 í dag. Ekki fleiri búnir að melda sig. Að kveldi 4. ágúst á síðasta tímabili höfðu verið felld 70 dýr nú er búið að fella 69 þann 3.ág. þannig að mjög svipaður gangur er í veiðunum. Þeir sem fóru á svæði 2 kláruðu með sínum mönnum enda dýrin víða inn við Kárahnjúkaveg og á stöðum þar sem auðvelt er að veiða, stórar hjarðir. Engin veiði á sv. 5, og heldur engar fréttir komnar af veiðum á sv. 3. Fáir búnir að hafa samband vegna veiða á morgun en veit að nokkrir eru í startholunum. Einhverjir hættir í bili á sv. 5 sem verið hafa að reyna og ætla að nota helgina í eitthvað annað. Felld dýr voru því aðeins 5 í dag, 3 tarfar, 1 kýr og kálfur. Gangið hægt um gleðinnar dyr og akið varlega.    04.08.06
Hermann Guðmundsson við hreintarf sinn felldan á sv. 2.
Hermann Guðmundsson við hreintarf sinn felldan á sv. 2.
Veiðin 3.8. 2006 (mynd)
Enn er nú þokan að hrella menn og margir sem fóru í gær náðu ekki að klára v. þoku á fjarðasvæðunum og einnig á sv. 7. Dagbjartur heldur áfram með sinn mann á sv. 3, Óli Gunnar og Sævar eru í startholunum á sv.5 en þar er þoka. Albert fer með sinn mann á sv.7 ef léttir til. Orðið er glansbjart á sv.2. Þangað eru komnir Einar Axelsson og Hákon með fjórar skyttur. Ómar er einnig lagður af stað með einn mann og Þórhallur Borgars. fer upp um hádegi með tvo veiðimenn. Nú er klukkan að verða fjögur og Ómar er búinn með sinn mann - fóru þeir upp að Sandvatni og veiddu ágætistarf, Sigurður Eymundsson fór á stað með sinn mann sem er búinn að vera hjá honum í þrjá daga, rofaði til í þokunni og náðist að fella tarf í Yxnaskarði sem er stutt frá Almannaskarðinu á sv. 8. Óli Gunnar lagði af stað í Sandvík með þrjár skyttur en þeir snéru við vegna sjólags og þoku, Sævar einnig með þrjá menn farinn á stað á svæði 5, Þorvaldur Ágústsson kominn á sv. 2 með einn mann. Skyttur Hákonar og Einars kláruðu við Þrælahálsinn, Albert Jenss. náði að klára með sínum manni í sv. 7 í Geithellnadal. Sævar fann enga tarfa í daga og berast nú böndin að því að þeir séu flestir í Sandvík. Annar veiðimaður Þórhalls kláraði í gær norðan við Þrælaháls. Það veiddust því alls 4 tarfar, 4 kýr auk tveggja kálfa.    03.08.06
Jón Magnús Eyþórsson við fallegan tarf sem hann felldi á sv. 6 - Leiðsögumaður var Þorri Magnússon
Jón Magnús Eyþórsson við fallegan tarf sem hann felldi á sv. 6 - Leiðsögumaður var Þorri Magnússon
Veiðin 2.8. 2006 (mynd)
Margir farnir til veiða og sólin er farin að skína.     Bullet1Lesa meira...    02.08.06
Hjörleifur Árnason með tarf sinn sem felldur var í Fossárdal, leiðsögumaður var Jónas Bjarki.
Hjörleifur Árnason með tarf sinn sem felldur var í Fossárdal, leiðsögumaður var Jónas Bjarki.
Veiðin 1.8. 2006
Veðrið heldur að lagast - menn að fara á veiðar.     Bullet1Lesa meira...    01.08.06
Veiðin 31.7.2006
Þá er runninn upp síðasti dagur júlímánaðar. Byrja má að veiða hreinkýr á morgun þann 1. ágúst. Eflaust bíða einhverjir spenntir eftir því en veðrið er afleitt til  veiða nú á stærstum hluta veiðisvæðanna. Ef skoðaðar eru vefmyndavélar hér á Austurlandi sér ekki út frá þeim sumum sökum þoku og rigningar. Enginn hefur tilkynnt sig á veiðar í morgun en Eiríkur S. ætlaði á stað á sv. 1 ef viðraði til veiða. Þokan er nokkuð dimm hér á Héraði og búið að rigna mikið í nótt. Engin veiði í dag. Reimar fór á svæði 2 en sá ekkert fyrir rigningu og þoku. Sama er að segja um Eirík og hans menn. Virðist vera að verða þokkalegt til veiða á suðursvæðunum. Meira um þá sem fara af stað á morgun.    31.07.06
Veiðin 30.7.2006
Eiríkur S. farinn af stað með tvo á sv. 1, Ómar er á Fljótsdalsheiðinni og einnig Þórarinn. Ekki frést af fleirum.Ómar og Þórarinn kláruðu með sínum skyttum úr sama hópnum skammt frá Langavatni þegar rofaði til í þokunni. Eiríkur og hans menn fundu ekki tarfana á sv. 1 þrátt fyrir mikla leit enda slæm skilyrði til veiða þar vegna þoku. Þá alls búið að fella 44 tarfa    30.07.06
Friðrik Þór Erlingsson og aðstoðarmaður hans Unnar Víðisson, við gullfallegan tarf felldan á sv. 3 í hlíðum Grjótfjalls. Leiðsögum. var Jón Egill Sveinsson sem tók myndina. Hver vildi ekki upplifa veiðar á slíkum stað með Dyrfjöllin í baksýn.
Friðrik Þór Erlingsson og aðstoðarmaður hans Unnar Víðisson, við gullfallegan tarf felldan á sv. 3 í hlíðum Grjótfjalls. Leiðsögum. var Jón Egill Sveinsson sem tók myndina. Hver vildi ekki upplifa veiðar á slíkum stað með Dyrfjöllin í baksýn.
Veiðin 29.7.2006 (mynd)
Jón Hávarður, Ómar og Þórarinn Rögnvalds. eru búnir að tilkynna sig á veiðar á svæði 2. Jón Egill fór með veiðimann á svæði 3 og felldur var gullfallegur tarfur við Grjótfjall utan við Sandaskörð. Ómar kláraði með sínum manni við Bessastaðavötnin um hádegi. Fleiri fréttir liggja ekki fyrir er þetta er ritað. Þorsteinn A. fór með mann á stað í morgun á sv. 5 en ekki tókst að klára þrátt fyrir mikla gönguferð, þar spilaði þokan inní. Jón Hávarður kláraði með sínum skyttum seint í gærkveldi utan við Laugará. Þar var góður hópur tarfa. Þórir fór með veiðimann í Heiðarendann á sv. 2 utan við þjóðveg 1 og náðu þeir þar einum þokkalegum tarfi en aðrir tarfar sem eru þar eru litlir. Það féllu því fimm í dag.    29.07.06
Veiðin 28.7.2006
Skúli Sveins heldur áfram með sinn mann í dag á sv. 3, fleiri hafa ekki tilkynnt sig á veiðar nú þegar klukkan er að verða 10:00. Þann 28.7 í fyrra var búið að veiða 39 tarfa þannig að veiða þarf tvo tarfa í dag til að sami fjöldi hafi verið veiddur nú. Þetta þýðir að gangur veiðanna er eiginlega sá sami núna. Erfitt hefur verið um vik á sumum svæðum vegna þoku.  Skúli hætti við v. þoku - enginn á veiðum eins og er. Veiðilaus dagur.    28.07.06
Hér eru f.v. Kristinn Eiríksson og bræðurnir Starkaður og Ásbjörn Sírnir Arnarsynir við tarf skotinn á Fljótsdalsheiði undir leiðsögn Sigurðar Aðalsteinss.
Hér eru f.v. Kristinn Eiríksson og bræðurnir Starkaður og Ásbjörn Sírnir Arnarsynir við tarf skotinn á Fljótsdalsheiði undir leiðsögn Sigurðar Aðalsteinss.
Veiðin 27.7.2006
Þokkalegt veður - fáir á veiðum.
Aðeins hafa tveir leiðsögumenn tilkynnt sig á veiðar í dag. Sigurður Aðalst. fór sína fyrstu ferð í ár, farið var á sv. 2 og náðist tarfur rétt við Bessastaðána á mjög skömmum tíma. Skúli Sveins er með mann á sv. 3. í Borgarfirði. - Ekki  tókst þeim félögum á Borgarfirði að klára. Þórir Schiöth fór með veiðimann í á sv. 2  seint í gær en ekki er enn vitað um árangur ferðarinnar.
    27.07.06
Veiðin 26.7.2006
Nokkrir veiðimenn hafa farið til veiða í dag ásamt leiðsögumönnum sínum. - Ómar Ásg. fór með sinn mann á sv.2 og felldu þeir tarf fyrir hádegi norðan við Vegufs. Snæbjörn Óla var svo þeirrar ánægju aðnjótandi að fara með kvenskyttu á veiðar er það kona númer tvö sem fer á veiðar í haust, var sú veiðferð auðveld og stutt því tarfurinn féll rétt innan við Grenisöldu á sv.2. Þar var um 60 tarfa hópur. Reimar fór með sína tvo menn yfir á svæði 2 og felldu þeir tvo fullorðna tarfa við Sauðafell á svæði 1. Þorri M. var í vandræðum með þokuna á svæði 6 og fundu þeir ekki tarfana.
    26.07.06
Veiðin 25.7.2006
Þorri Magg ætlar á stað með mann á sv. 6 þegar líður á daginn, Ómar er með einn á Fljótsdalsheiði. Þess má geta að tarfurinn sem veiddur var á sv. 3 í gær var skotinn í um 700 m hæð í upp af Bakka í Borgarfirði. Þar voru tíu tarfar í hóp og nokkrir af þeim vel vænir. Það styttist í að megi byrja að veiða kýrnar, þ.e eftir viku. Þá fjölgar sjálfsagt veiðimönnum hér fyrir austan. Vonandi verður þá ekki. Veiðimaðurinn með Ómari felldi tarf um miðjan dag á Fljótsdalsheiði við Þrælaháls. Sigurður Eym. náði að klára með sínum mönnum á svæði 8 upp af Firði. Áttu þeir í erfiðleikum vegna þoku en sáu nokkra tarfa þegar rofaði til.
    25.07.06
Veiðin 24.7.2006
Ekki voru margir á veiðum. Reimar fór með einn mann á Fljótsdalsheiðina og veiddi hann tarf við Vegufs. Skúli Sveins fór á svæði þrjú og veiddi hans veiðimaður tarf í Bogarfirði. Sigurður Eymundss. fór með tvær skyttur á stað á svæði 8 en ekki hefur enn frést um árangur ferðarinnar, kannski hefur þokan hamlað veiðum eða menn komið seint heim og eiga eftir að láta vita.
    25.07.06
Pétur Pétursson með vænan tarf felldan í frábæru veðri í Bratthálsi á sv. 6. Leiðsögumaður Ómar Ásgeirsson
Pétur Pétursson með vænan tarf felldan í frábæru veðri í Bratthálsi á sv. 6. Leiðsögumaður Ómar Ásgeirsson
Veiðin 23.7.2006
Þá eru það veiðifréttir sunnudagsins 23.7. Ómar Ásgeirs. var með þrjár skyttur inn í Bratthálsi á mörkum 6 og 7. Náðu þeir allir að klára sína veiði úr um 30 tarfa hóp sem þar var. Páll Leifss. var með veiðimann sinn á sv. 5 og náðu að fella vel vænan tarf í Helgustaðadal. Eiríkur Skjaldar kláraði með öðrum veiðimanni á svæði 1. í Jökuldalsheiði. Engir nýir melduðu sig til veiða í dag en einhverjir fara vonandi á stað á morgun þar sem veðurútlit er gott. Eru þá fallnir 27 tarfar á þeim níu dögum sem liðnir eru af tímabilinu. Eru það töluvert fleiri en í fyrra á sama tíma.
    23.07.06
Veiðin 22.7.2006
Verið er við veiðar á sv.8, sv.6, sv.5, sv.2, og sv. 1. Þá eru komnar fréttir af veiði dagsins. Jón Hávarður fór með mann á Fljótsdalsheiðina, þeir góðum tarfi 500 metra frá veginum í Kárahnjúka inn af Þrælahálsi. Þar var 30 tarfa hópur en engir fleiri veiðimenn á ferð. Albert kláraði með sína tvo menn á sv. 8 ekki hefur frést af öðrum þegar þetta er ritað kl 23.00.    22.07.06
Veiðin 21.7.2006
Menn eru á veiðum á sv. 8, sv. 1, og sv. 5. Siggi á Borg búinn að klára með sínum manni á sv. 8 á Lónsheiði fengu ágætis tarf en ekki af stærstu gerð. Meiri fréttir síðar. Eiríkur Skjaldar náði að klára með annarri skyttunni sem hann var með á svæði 1, Jónas Bjarki fór með tvo á stað í Breiðdalnum seinni partinn í gær og kláraði annar. Engar meiri fréttir af sv. 8. Á sv. 5 fundust tarfarnir ekki enda þokuslæðingur mest allan daginn. Það veiddust því 3 tarfar.    21.07.06
Veiðin 20.7.2006
Aðeins veiddust tveir tarfar þann 20.7. voru þeir skotnir inn undir Sauðafelli á svæði 1. Reimar var þar á ferð og náðu hans menn tveimur góðum törfum. Skyttur voru á svæði 7 en ekki hefur frést um árangur þaðan. Á svæði 5 varð Óli Gunnar að snúa heim með sinn mann án bráðar þar sem ekki tókst að finna tarfa í þoku og rigningu.  Viðbótarupplýsingar, skyttur á svæði 7 sem voru í Geithellnadal með Albert náðu einnig að fella sína 2 tarfa.
    21.07.06
Veiðin 19.7.2006
Þoka og rigning!     Bullet1Lesa meira...    20.07.06
Veiðin 18.7.2006
Rólegt á veiðisvæðum.
     Bullet1Lesa meira...    19.07.06
Veiðin 17.7.2006
Einn tarfur veiddur til viðbótar.     Bullet1Lesa meira...    17.07.06
Veiðin 16.7.2006 (mynd)
Rólegt yfir veiðum í dag.    16.07.06
Veiðin 15.7.2006
Fyrsta veiðdeginum er að ljúka. Allir sem tilkynntu sig á veiðar eru komnir til byggða eftir fengsælan dag.     Bullet1Lesa meira...    16.07.06
Leita á hreindyr.is


Veiðifréttir
Bullet19. sept.2010
Bullet18. sept. 2010
Bullet17. sept. 2010
Bullet16. sept. 2010
Bullet15. sept. 2010
Bullet14. sept. 2010
Bullet13. sept. 2010
Bullet12. sept. 2010
Bullet11. sept. 2010
Bullet131. ágúst 2010
Bullet130. ágúst 2010
Bullet129. ágúst 2010
Bullet128. ágúst 2010
Bullet127. ágúst 2010
Bullet126. ágúst 2010
Bullet125. ágúst 2010
Bullet124. ágúst 2010
Bullet123. ágúst 2010
Bullet122. ágúst 2010.
Bullet121. ágúst 2010
Bullet120. ágúst 2010
Bullet119. ágúst 2010
Bullet118. ágúst 2010
Bullet117. ágúst 2010
Bullet116. ágúst 2010 (mynd)
Bullet115. ágúst 2010 (myndir)
Bullet114. ágúst 2010 (myndir)
Bullet113. ágúst 2010
Bullet112. ágúst 2010 (mynd)
Bullet111. ágúst 2010 (myndir)
Bullet110. ágúst 2010 (mynd)
Bullet19. ágúst 2010 (mynd)
Bullet18. ágúst 2010 (myndir)
Bullet17. ágúst 2010 (mynd)
Bullet16. ágúst 2010 (myndir)
Bullet15. ágúst 2010 (myndir)
Bullet14. ágúst 2010 (myndir)
Bullet13. ágúst 2010 (mynd)
Bullet12. ágúst 2010 (myndir)
Bullet11. ágúst 2010 (mynd)
Bullet131. júlí 2010
Bullet130. júlí 2010
Bullet129. júlí 2010 (mynd)
Bullet128. júlí 2010 (myndir)
Bullet127. júlí 2010
Bullet126. júlí 2010
Bullet125. júlí 2010 (myndir)
Bullet124. júlí 2010
Bullet123. júlí 2010
Bullet122. júlí 2010(myndir)
Bullet121. júlí 2010
Bullet120. júlí 2010
Bullet119. júlí 2010 (mynd)
Bullet118. júlí 2010
Bullet117. júlí 2010 (mynd)
Bullet116. júlí 2010
Bullet115. júlí 2010 - Upphafsdagur veiðitímabils tarfa.
Bullet115. sept. 2009 (Lokadagur)
Bullet114. sept. 2009
Bullet113. sept. 2009
Bullet112. sept. 2009 (myndir nýtt)
Bullet111. sept. 2009 (myndir nýtt)
Bullet110. sept. 2009
Bullet19. sept. 2009 (myndir nýtt)
Bullet18. sept. 2009 (myndir nýtt)
Bullet17. sept. 2009 (myndir nýtt)
Bullet16. sept. 2009
Bullet15. sept. 2009
Bullet14. sept 2009 (myndir nýtt)
Bullet13. sept. 2009 (myndir nýtt)
Bullet12. sept. 2009
Bullet11. sept. 2009
Bullet131. ágúst 2009
Bullet130. ágúst 2009
Bullet129. ágúst 2009
Bullet128. ágúst 2009
Bullet127. ágúst 2009
Bullet126. ágúst 2009
Bullet125. ágúst 2009
Bullet124. ágúst 2009
Bullet123. ágúst 2009
Bullet122. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Bullet121. ágúst 2009
Bullet120. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Bullet119. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Bullet118. ágúst 2009 (myndir)
Bullet117. ágúst 2009 (myndir)
Bullet116. ágúst 2009 (mynd)
Bullet115. ágúst 2009 (myndir)
Bullet114. ágúst 2009
Bullet113. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Bullet112. ágúst 2009 (myndir)
Bullet111. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Bullet110. ágúst 2009 (myndir)
Bullet19. ágúst 2009 ( mynd nýtt)
Bullet18. ágúst 2009 (myndir)
Bullet17. ágúst 2009 (mynd)
Bullet16. ágúst 2009
Bullet15. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Bullet14. ágúst 2009 (mynd)
Bullet13. ágúst 2009 (mynd)
Bullet12. ágúst 2009
Bullet11. ágúst 2009 (mynd)
Bullet131. júlí 2009
Bullet130. júlí 2009
Bullet129. júlí 2009 (mynd)
Bullet128. júlí 2009
Bullet127. júlí 2009
Bullet126. júlí 2009
Bullet125. júlí 2009
Bullet124. júlí 2009
Bullet123. júlí 2009 (mynd)
Bullet122. júlí 2009
Bullet121. júlí 2009
Bullet120. júlí 2008
Bullet119. júlí 2009
Bullet118. júlí 2009
Bullet117. júlí 2009
Bullet116. júlí 2009
Bullet115. júlí 2009 (mynd) Upphafsdagur veiða
Bullet115. sept. 2008 Lokadagur.
Bullet114. sept. 2008 (mynd)
Bullet113. sept. 2008
Bullet112. sept. 2008 (mynd)
Bullet111. sept. 2008
Bullet110. sept. 2008
Bullet19. sept. 2008
Bullet18. sept. 2008
Bullet17. sept. 2008
Bullet16. sept. 2008 (myndir)
Bullet15. sept. 2008 (mynd)
Bullet14. sept. 2008
Bullet13. sept. 2008 (myndir)
Bullet12. sept. 2008 (mynd)
Bullet11. sept. 2008 (myndir)
Bullet131. ágúst 2008
Bullet130. ágúst 2008 (mynd)
Bullet129. ágúst 2008
Bullet128. ágúst 2008
Bullet127. ágúst 2008
Bullet126. ágúst 2008
Bullet125. ágúst 2008 (mynd)
Bullet124. ágúst 2008 (mynd)
Bullet123. ágúst 2008
Bullet122. ágúst 2008
Bullet121. ágúst 2008
Bullet120. ágúst 2008
Bullet119. ágúst 2008 (mynd)
Bullet118. ágúst 2008
Bullet117. ágúst 2008
Bullet116. ágúst 2008 (mynd)
Bullet115. ágúst 2008 (mynd)
Bullet114. ágúst 2008 (myndir)
Bullet113. ágúst 2008 (mynd)
Bullet112. ágúst 2008
Bullet111. ágúst 2008
Bullet110. ágúst 2008
Bullet19. ágúst 2008 (myndir)
Bullet18. ágúst 2008 (myndir)
Bullet17. ágúst 2008 (myndir)
Bullet16. ágúst 2008 (mynd)
Bullet15. ágúst 2008 (mynd)
Bullet14. ágúst 2008 (mynd)
Bullet13. ágúst 2008
Bullet12. ágúst 2008
Bullet11. ágúst 2008
Bullet131. júlí 2008
Bullet130. júlí 2008 (mynd)
Bullet129. júlí 2008
Bullet128. júlí 2008
Bullet127. júlí 2008
Bullet126. júlí 2008
Bullet125. júlí 2008
Bullet124. júlí 2008
Bullet123. júlí 2008 (mynd)
Bullet122. júlí 2008
Bullet121. júlí 2008 (mynd)
Bullet120. júlí 2008
Bullet119. júlí 2008 (mynd nýtt)
Bullet118. júlí 2008
Bullet117. júlí 2008 (mynd)
Bullet116. júlí 2008
Bullet115. júlí 2008
Bullet115. sept. 2007 Lokadagur
Bullet114. sept. 2007 ( mynd nýtt)
Bullet113. sept. 2007 (mynd nýtt)
Bullet112. sept. 2007
Bullet111. sept. 2007 (mynd nýtt)
Bullet110. sept. 2007
Bullet19. sept. 2007
Bullet18. sept. 2007
Bullet17. sept. 2007
Bullet16. sept. 2007
Bullet15. sept. 2007
Bullet14. sept. 2007 (myndir nýtt)
Bullet13. sept. 2007
Bullet12. sept. 2007
Bullet11. sept. 2007 (mynd ný)
Bullet131. ágúst 2007
Bullet130. ágúst 2007
Bullet129. ágúst 2007
Bullet128. ágúst 2007
Bullet127. ágúst 2007
Bullet126. ágúst 2007 (mynd ný)
Bullet125. ágúst 2007 (mynd)
Bullet124. ágúst 2007
Bullet123. ágúst 2007
Bullet122. ágúst 2007
Bullet121. ágúst 2007
Bullet120. ágúst 2007 (myndir nýtt)
Bullet119. ágúst 2007 (mynd)
Bullet118. ágúst 2007
Bullet117. ágúst 2007
Bullet116. ágúst 2007
Bullet115. ágúst 2007
Bullet114. ágúst 2007 (mynd nýtt)
Bullet113. ágúst 2007
Bullet112. ágúst 2007 (mynd)
Bullet111. ágúst 2007
Bullet110. ágúst 2007
Bullet19. ágúst 2007
Bullet18. ágúst 2007 (myndir)
Bullet17. ágúst 2007
Bullet16. ágúst 2007 (mynd)
Bullet15. ágúst 2007
Bullet14. ágúst 2007
Bullet13. ágúst 2007
Bullet12. ágúst 2007 (mynd)
Bullet11. ágúst 2007
Bullet131. júlí 2007
Bullet130. júlí 2007
Bullet129. júlí 2007
Bullet128. júlí 2007
Bullet127. júlí 2007
Bullet126. júlí 2007
Bullet125. júlí 2007
Bullet124. júlí 2007
Bullet123. júlí 2007
Bullet122. júlí 2007
Bullet121. júlí 2007 (mynd)
Bullet120. júlí 2007 (myndir)
Bullet119. júlí 2007
Bullet118. júlí 2007
Bullet117. júlí 2007 (mynd)
Bullet116. júlí 2007 (myndir)
Bullet115. júlí 2007 (myndir)
Bullet1Staða veiðanna 2007

Umhverfisstofnun - veiðistjórnunarsvið - Jóhann G. Gunnarsson
Skrifstofa á Egilsstöðum - Tjarnarbraut 39A (við hliðina á FNA)
GSM sími 822-4027 og sími 471-2964 Netfang joigutt@ust.is

   Umhverfisstofnun
Powered by the AutoTheme HTML Theme System
Page created in 4.214953 Seconds