|
Efni
|
Um leiðsögumenn |
Lög og reglur |
|
|
|
|
Á síðunni núna
|
gestir inni: 5
áskrifendur inni: 0
Þú ert óskráður notandi. Hægt er að gerast meðlimur með því að smella hérna
|
|
|  |
Daglegar veiðifréttir 2007
|
|
9. sept.2010
Búið að rigna mikið á Austurlandi í nótt - ár og lækir hafa vaxið mikið. Enn er þoka og ekki gott skyggni til að leita hreindýra. Enda hafa fáir tilkynnt sig til veiða í morgun. Á svæði 1: Reimar með einn í tarf og annan í kú. Benni Óla með einn í tarf. Á svæði 5: Sævar með einn tvo í kýr og einn í tarf. Á svæði 8: Siggi Eymunds með einn í kú. 09.09.10 |
|
8. sept. 2010
Nú er víða þoka og rigning á hreindýraveiðislóð. Fáir hafa tilkynnt sig til veiða í dag og spilar þar veðrið inn í. Á svæði 1: Eiríkur Skjaldar með einn í tarf og einn í kú.Á svæði 3: Ólafur Örn reynir með tvo menn í kýr ef skyggnið lagast.Á svæði 6: Rúnar með einn í tarf og Ómar með einn í kú.Á svæði 8: Siggi á Borg með einn í kú.
Lesa meira... 08.09.10 |
|
7. sept. 2010
Menn halda áfram veiðum enda fer tímabilið að styttast - enn eftir að veiða um 250 dýr af kvótanum. Á svæði 1: Ómar með einn tarf, Reimar með einn í tarf, Alli með einn í tarf og annan í kú. Danni með einn í tarf og annan í kú. Siggi Aðalst. með tvo í tarfa. Eiríkur með einn í tarf. Skúli Ben. með einn í tarf. Á svæði 2: Sæmundur með tvo í kýr, Guðmundur í Gerði með tvo í kýr. Á svæði 3: Þórhallur Borgars með síðasta tarfamanninn á sv. 3. Á svæði 5: Sævar með þrjá í kýr. Á svæði 7: Guðmundur Valur með tvo í tarfa, Jónas Bjarki með einn í kú, Stefán Gunnars með einn í tarf og annan í kú. Ómar fór seinni partinn með einn í kú.
Lesa meira... 07.09.10 |
|
6. sept. 2010
Frekar fáir á veiðum í dag. Þoka á mörgum veiðisvæðum. Á svæði 1: Benni Óla með þrjá í tarfa, Siggi Aðalst. með einn í tarf og tvo í kýr, Alli með einn í tarf og tvo í kýr, Jakob með einn í tarf og einn í kú. Á svæði 2: Jón Egill með einn í kú, Reimar með einn í kú, Guðmundur í Gerði með einn í kú, Gunnar Gutt með einn í kú. Á svæði 3: Óli Örn með einn í tarf, Skúli Sveins með einn í kú. Á svæði 6: Maggi Karls með einn í kú. Á svæði 7: Sigvaldi með einn í kú. Á svæði 8: Skúli Ben með tvo í kýr.
Lesa meira... 06.09.10 |
|
5. sept. 2010
Á svæði 1: Jón Egill með einn í kú og tvo í tarfa, Hafliði Hjarðar með einn í tarf, Alli í Klausturseli með tvo í kýr og einn tarf. Snæbjörn með einn í tarf. Emil með tvo í kýr. Á svæði 2: Hjörtur Kjerúlf með einn í kú, Reimar með einn í kú, Ómar með tvo í kýr, Stefán Geir með einn í kú, Einar Axels með einn í kú, Össur með einn í kú, Tóti með þrjá í kýr. Á svæði 3: Stebbi Kristm. með einn í kú, Skúli Sveins með einn í tarf. Á svæði 4: Vigfús með einn í kú. Á svæði 5: Sævar með tvo í kýr og einn í tarf, Sigurgeir með tvo í kýr. Þorsteinn Aðalst. með einn í tarf. Á svæði 6: Magnús Karls með einn í kú. Jóhann Steindórs með einn í tarf. Á svæði 7: Sigvaldi með tvo í kýr, Rúnar með einn í tarf. Þorri með þrjá í kýr. Á svæði 8: Skúli Ben með einn í tarf og tvo í kýr, Guðmundur á Þvottá með einn í tarf, Helgi Jens með tvo í tarfa. Siggi Eymunds með tvo í kýr.
Lesa meira... 05.09.10 |
|
4. sept. 2010
Enn leikur veðurblíðan við menn á hreindýraveiðum en þó var þoka í morgun sums staðar og ekki veiðiveður á sv. 8 og á hluta af svæði 7. Á svæði 1: Hafliði Hjarðar með tvo menn í tarf og kú. Alli með tvo menn í tarf og kú. Á svæði 2: Hjörtur Kjerúlf með þrjá tvo í kýr og einn í tarf, Siggi Aðalst. með tvo í kýr, Reimar með tvo í kýr, Tóti Borgars með tvo í kýr, Stefán Geir með tvo í kýr, Agnar með einn í kú, Einar Eiríks með einn í kú, Einar Axels með tvo í kýr, Össur með einn í kú. Snæbjörn með þrjá í kýr. Á svæði 3: Skúli Sveins með einn í tarf. Á svæði 4: Björn Ingvars með einn í kú og Vigfús með einn í kú. Á svæði 5: Sævar með tvo í kýr og Sigurgeir með tvo í kýr. Á svæði 6: Jóhann Steindórs með einn í tarf. Á svæði 7: Helgi Jens með einn í tarf, Guðmundur Valur með einn í tarf, Sigurður Arnþórs með einn í kú, Friðrik með einn í kú. Ómar með einn í kú, Sigvaldi með tvo í kýr. Á svæði 8: Guðmundur á Þvottá með tvo í tarfa, Stefán Gunnars með tvo í kýr.
Lesa meira... 04.09.10 |
|
3. sept. 2010
Margir á veiðum í dag. Hitablíða á hreindýraslóðum. Þyngra í lofti á suðurfjörðum. Á svæði 1: Reimar með einn í tarf, Siggi Aðalsteins með tvo í tarfa. Á svæði 2: Jón Hávarður með tvo í kýr, Guðmundur Péturs með þrjá í kýr, Einar Axels með þrjá í kýr, Einar Eiríks með einn í kú, Emil með einn í kú, Bergur Jóns með tvo í tarfa. Hjörtur Kjerúlf með einn í tarf og annan í kú, Jónas Bjarki með einn í kú, Ómar með einn í kú. Danni með tvo í kýr, Alli með einn í kú, Árni Vald með einn í kú og Tóti með einn í kú. Á svæði 3: Skúli Sveins með einn í tarf, Björn Ingvars með einn í kú, Óli Örn og Jón Egill með fjóra í tarfa. Á svæði 5: Sævar með tvo í kýr, Friðrik með einn í kú, Sigurgeir með einn í tarf og tvo í kýr. Á svæði 6: Jói Steindórs með einn í tarf og annan í kú. Á svæði 7: Sigurður Arnþórs með þrjá í kýr, Guðmundur Valur með þrjá í tarfa, Albert með tvo í tarfa, Helgi með einn í kú. Á svæði 8: Stefán Gunnars með tvo í kýr, Skúli Ben. með einn í tarf og annan í kú. Stefán Helgi með tvo í kýr.
Lesa meira... 03.09.10 |
|
2. sept. 2010
Sól og blíða á veiðsvæðum hreindýra og skyttur taka vel við sér margir skráðir á veiðar í dag og verið að veiða á flestum veiðisvæðum. Á svæði 1: Danni með tvo í kýr, Eiríkur Skjaldar með einn í tarf og tvo í kýr, Snæbjörn með tvo í tarfa, Magnús Karls með tvo í tarfa.
Á svæði 2: Bergur Jóns með einn í tarf og tvo í kýr, Jón Hávarður með þrjá í kýr, Ragnar Arnars með einn í kú, Guðmundur Péturs með þrjá í kýr, Gunnar Gutt með einn í kú, Stefán Geir með tvo í kýr, Emil með tvo í kýr. Tóti Borgars með einn í kú.
Á svæði 3: Skúli Sveins með einn í tarf. Jón Egill og Óli Örn með fjóra í tarfa. Helgi Jens með einn
Á svæði 5: Sigurgeir með tvo í kýr, Sævar með þrjá í kýr. Jónas Bjarki með einn í kú.
Á svæði 6: Haraldur Árna með einn í kú.
Á svæði 7: Guðmundur Valur með einn í tarf, Þorri Magg með tvo í kýr, Stefán Gunnars með einn í kú:
Á svæði 8: Siggi á Borg með þrjá í kýr. Albert Jens með einn í tarf og tvo í kýr.
Lesa meira... 02.09.10 |
|
1. sept. 2010
Þá eru 15 dagar eftir af tímabilinu til að fella tarfa og 20 til að fella kýr. Enn er eftir að fella mörg dýr og eins gott að tíðarfar verði hagstætt. Spáir góðu veðri næstu daga en fáir á veiðum í dag. Það er eins og menn noti minnst þriðjudaga og miðvikudaga af vikudögunum þó að sé glaðasólskin og frábært veður til veiða. Svæði 1: Snæbjörn með einn í kú. Svæði 2: Einar Axels með einn í tarf, Siggi Aðalsteins með þrjá í kýr, Gunnar Gutt með einn í kú, Hafliði með tvo í kýr, Bergur Jóns með einn í kú, Jón Egill með einn í kú - fleiri eiga hugsanlega eftir að bætast við. Svæði 3: Skúli Sveins með einn í kú, Stebbi Krismanns með tvo í kýr. Svæði 5: Sævar með þrjá í kýr. Þorsteinn Aðalsteins með einn í tarf. Svæði 6: Viðar Péturss með einn í tarf. Svæði 7: Ómar með tvo í kýr. Jónas Bjarki með einn í kú. Svæði 8: Stefán Helgi með tvo í kýr.
Lesa meira... 01.09.10 |
|
31. ágúst 2010
Síðasti dagur ágústmánaðar runninn upp. Fáir virðast ætla á veiðar þrátt fyrir gott veður. Á svæði 1: Stefán Geir með einn í kú, Einar Eiríks með einn í kú, Siggi Aðalsteins með einn í kú og Gunnar Gutt með einn í kú. Á svæði 2: Einar Axels með einn í kú og annan í tarf. Bergur Jónsson með tvo í kýr. Á svæði 5: Sævar með þrjá í kýr og Einar Har. með einn í kú. Á svæði 6: Viðar Pétursson með tvo í tarfa og einn í kú. Á svæði 7: Guðmundur Valur með tvo í kýr. Ómar með einn í kú. Guðmundur á Þvottá með einn í kú. Á svæði 8: Stefán Helgi með þrjá í kýr.
Lesa meira... 31.08.10 |
|
30. ágúst 2010
Loks gefst tími til að setja inn þá sem farnir eru til veiða.Svæði 1: Reimar með einn í kú, Bensi í Hofteigi með einn í kú, Stefán Geir með einn í kú, Emil með einn í kú. Svæði 2: Guðmundur í Gerði með tvo í kýr. Bergur Jóns með einn í tarf og tvo í kýr, Jón Egill með einn í tarf. Tóti Borgars með þrjá í tarfa. Svæði 5: Sigurgeir með tvo í kýr, Þorsteinn Aðalsteins með tvo í tarfa, Einar Har. með einn í kú og annan í tarf. Stebbi Kristm. með einn í kú. Óli Gunnar með einn í tarf. Svæði 6: Magnús Karls með einn í kú. Þorsteinn Bjarna með einn í tarf og tvo í kýr. Svæði 7: Skúli Ben. með þrjá í kýr, Guðmundur á Þvottá með einn í kú. Stefán Gunnars með tvo tarf. Guðmundur Valur með einn í tarf. Svæði 8: Siggi á Borg með þrjá í kýr.
Lesa meira... 30.08.10 |
|
29. ágúst 2010
Vindur að snúast til sunnan - suðvestanáttar á Héraði og hlýna. Væntanlega koma veðrabreytingar hreyfingu á hreindýrin víðast hvar. Á svæði 1: Stefán Geir með þrjá menn í kýr, Benni Óla með einn í kú, Alli með einn í kú og annan í tarf, Guðmundur Péturs. með tvo í kýr, Tóti með einn í kú, Reimar með einn í tarf og annan í kú. Á svæði 2: Einar Eiríks með einn tarf og tvo í kýr, Siggi Aðalst. með einn í kú, Ragnar Arnars með tvo í kýr, Árni Vald með tvo kýr, Einar Axels með einn í tarf, Jónas Bjarki með tvo í tarfa. Á svæði 3: Stebbi Kristm. með einn í kú og Björn Ingvars með þrjá í kýr. Jón Egill og Óli Örn með tvo í tarfa. Á svæði 4: Sigurgeir með einn í tarf og annan í kú, Skúli Sveins með tvo í kýr. Á svæði 5: Sævar með tvo í kýr, Jón Hávarður með tvo í kýr, Þorsteinn Aðalsteins með einn í tarf. Á svæði 6: Maggi Karls með einn í tarf. Á svæði 7: Sigurður Arnþórs með einn í tarf. Rúnar með einn í kú, Friðrik með einn í kú, Helgi Jens með einn í kú, Stefán Gunnars með einn. Á svæði 8: Siggi Eymunds með einn í kú og Siggi á Borg með þrjá í kýr.
Lesa meira... 29.08.10 |
|
28. ágúst 2010
Hæg norðvestanátt að létta til víðast hvar. Ætti að vera gott veiðiveður er líður á dag. Eftirtaldir búnir að hafa samb. Svæði 1: Bensi í Hofteigi með þrjá í kýr, Snæbjörn með einn í tarf. Svæði 2: Emil með einn í kú, Björn Ingvars með einn í kú, Þórir með tvo í tarfa og einn í kú. Ragnar Arnarss. með þrjá í kýr, Árni Vald. með einn í kú, Hjörtur Kjerúlf með einn í kú. Jón Egill með tvo í kýr, Guðmundur Péturs með tvo í kýr. Tóti Borgars með tvo í kýr. Alli með þrjá í kýr, Benni Óla með einn í kú. Einar Axels með einn í tarf. Stefán Geir með þrjá í kýr, Siggi Aðalsteins með tvo í tarfa. Svæði 3: Skúli Sveins með einn í tarf. Svæði 4: Stebbi Kristmanns með einn í kú, Sigurgeir með tvo í kýr og einn í tarf. Svæði 5: Jón Hávarður með þrjá í kýr, Sævar með þrjá í kýr, Andrés með einn í kú. Svæði 7. Allir sem skráðir voru í gær reyna aftur í dag með sína menn og fleiri bætast við: Þorri, Sigurður Arnþ., Friðrik, Ragnar Eiðs, Rúnar með sína menn síðan í gær. Auk þeirra Skúli Ben með einn í kú, Helgi Jens. með tvo í tarfa og einn í kú. Ómar með einn í kú, Jónas Bjarki með einn í kú og Ástvaldur með einn í kú. Svæði 8. Guðmundur á Þvottá með einn í tarf. Ríkharð og Stefán Helgi fara með þrjá í kýr og einn í tarf. Siggi Eymunds með einn í kú.
Lesa meira... 28.08.10 |
|
27. ágúst 2010
Síðasta helgi ágústmánaðar að ganga í garð. Hægviðri og lágskýjað á Austurlandi. Gott veiðiveður ef þokubólstrarnir lyfta sér er líður á dag. Margir stefna til veiða í dag og næstu daga. Svæði 1: Eiríkur Skjaldar með einn í tarf, Snæbjörn með einn í tarf og Pétur með einn í kú. Svæði 2: Ómar með einn í kú, Emil með einn í kú, Björn Ingvars með einn í kú, Guðmundur Péturs með einn í kú, Ragnar Arnars með tvo í kýr, Árni Valdimarsson með tvo í kýr, Árni Jóns. með einn í kú, Siggi Aðalsteins með einn í kú, Stefán Geir með einn í kú, Reimar með tvo í tarfa, Jón Egill með einn í tarf, Alli með einn í kú, Einar Axels með þrjá í tarfa, Jónas Bjarki með einn í tarf. Benni Óla með einn í tarf og einn í kú. Svæði 4: Sigurgeir með tvo í kýr og einn í tarf. Stefán Kr. með einn í kú. Svæði 5: Andrés með tvo í kýr. Sævar með þrjá í kýr. Svæði 7: Rúnar með einn í tarf, Sigurður Arnþórs með einn í tarf og tvo í kýr, Þorri Magg með þrjá í kýr, Stefán Gunnars með einn í tarf og einn í kú, Friðrik Steins með einn í kú, Ragnar Eiðsson með tvo í tarfa og Guðm. á Þvottá með einn í tarf. Svæði 8: Siggi Eymundss með tvo í kýr, Ríkharð með einn í tarf og tvo í kýr, Stefán Helgi með tvo í kýr, Siggi á Borg með tvo í kýr.
Lesa meira... 27.08.10 |
|
26. ágúst 2010
Nú er loksins að lagast veðrið hætt að rigna á veiðsvæðum hreindýra og sólin farin að gæjast fram hér og þar. Margir stefna til veiða í dag. Svæði 1: Eiríkur Skjaldar með einn í tarf. Svæði 2: Danni með tvo í kýr, Siggi Aðalsteins með þrjá í kýr, Einar Axels með einn í kú, Ómar með einn í kú, Magnús Karls með einn í kú, Össur með einn í kú, Stefán Geir með einn í kú, Einar Eiríks með einn í kú, Jón Hávarður með tvo í tarfa, Þorsteinn Aðalst. með einn í kú, Reimar með tvo í tarfa. Alli með einn í tarf og tvo í kýr. Ragnar Arnarson með tvo í kýr. Svæði 3: Skúli Sveinss með þrjá í kýr. Svæði 5: Stebbi Kristmanns með einn í tarf, Sævar með tvo í kýr. Svæði 7: Albert með einn í kú, Skúli Ben. með einn í kú og annan í tarf. Guðm. Valur með tvo í tarfa, Guðmundur á Þvottá með einn í kú. Ragnar Eiðss. með einn í tarf. Friðrik Steinss með einn í kú, Þorri Magg með þrjá í kýr. Svæði 8: Siggi á Borg með einn í tarf og tvo í kýr, Sigurður Eymunds með einn í kú.
Lesa meira... 26.08.10 |
|
25. ágúst 2010
Veður víðast hvar betra en undanfarna daga þungskýjað og rigningarúði sums staðar en ekki þoka. Gott veður á svæði 8. Margir ætla á veiðar í dag. Ekki tókst öllum að veiða í gær þannig að búast má við töluvert mörgum á veiðislóð. Á svæði 1: Eiríkur með einn í tarf. Á svæði 2: Magnús Karls með einn í kú, Ómar með þrjá í kýr, Helgi Jens með einn í kú, Reimar með einn í kú, Einar Axelss. með einn í kú. Siggi Aðalst með þrjá í tarfa, Benni Óla með einn í tarf, Snæbjörn með einn í tarf. Alli með einn í tarf og annan í kú, Árni Jóns með tvo í kýr, Ragnar Ólafs með tvo í kýr, Rangar Arnars með tvo í kýr og einn í tarf. Danni með einn í kú Guðmundur Péturss með einn í kú. Á svæði 3: Ólafur Örn með einn í kú. Á svæði 5: Þórir með tvo í tarfa, Þorsteinn Aðalst með einn í tarf, Jónas Bjarki með einn í tarf. Sævar með þrjá menn í kýr. Á svæði 7: Valur með tvo í kýr, Ragnar Eiðs með einn í kú. Rúnar með einn í tarf. Á svæði 8: Skúli Ben með einn í kú, Stefán Helgi með þrjá í kýr og Siggi Eymunds með einn í kú.
Lesa meira... 25.08.10 |
|
24. ágúst 2010
Enn þokuloft víða á veiðislóð. Þó eru menn heldur bjartsýnni en í gær. Mörgum tókst ekki að ljúka veiðum í gær enda afleitt skyggni til að sjá hreindýr. Margir halda á heiðina í dag. Svæði 1: Snæbjörn með einn í kú. Benedikt í Hofteigi með einn í kú. Danni með einn í tarf.
Svæði 2: Alli með tvo í kýr, Siggi Aðalst með tvo í kýr, Jón Hávarður með einn í kú, Guðmundur Péturss með einn í tarf og tvo í kýr, Einar Axels með einn í kú. Árni Jóns með tvo í kýr, Össur með einn í kú, Emil með tvo í kýr, Tóti með einn í tarf, Reimar með einn í tarf. Ívar Erlends með einn í tarf. Ómar með einn í kú. Ragnar Arnars með tvo í kýr og einn í tarf. Ragnar Ólafs með tvo í kýr.
Svæði 4: Ólafur Örn með einn í kú.
Svæði 5: Sigurgeir með einn í tarf og Sævar með tvo í tarfa.
Svæði 6: Jónas Bjarki með einn í kú og og Maggi Karls með einn kú.
Svæði 7: Guðm. Valur með tvo í kýr.
Svæði 8: Helgi Jensson með tvo í kýr og Guðmundur á Þvottá með einn í kú.
Lesa meira... 24.08.10 |
|
23. ágúst 2010
Búið að rigna mikið á Austurlandi í nótt, ár hafa vaxið og landið blotnað mikið. Þokan liggur yfir veiðisvæðum hreindýra og menn hafa verið að búa sig á stað. Einn leiðsögumaðurinn sagði við mig að nú þyrfti að hafa nóg af kaffi meðferðis í dag. Veðurspáin er ekki góð fyrir daginn en þó ætti að stytta upp er líður á dag. Ágætt veiðiveður er þó á svæði 8 og syðst á sv. 7. Nokkrir búnir að skrá sig til veiða og eru lagðir af stað í þokuna - fleiri í startholunum. Á svæði 1: Eiríkur Skjaldar með einn í kú. Á svæði 2: Ómar með einn í kú, Einar Axels með einn í kú, Hafliði Hjarðar með þrjá í kýr, Siggi með einn í tarf og tvo í kýr. Jón Hávarður með einn í tarf og annan í kú og Árni Jóns með tvo í kýr. Reimar með einn í tarf, Guðmundur Péturs með einn í tarf og tvo í kýr, Alli með tvo í kýr.Á svæði 3: Ólafur Örn með einn í kýr. Á svæði 8: Ívar Erlends með einn í taf og annan í kú. Guðmundur á Þvottá með einn í kú. Helgi Jens með tvo í kýr.
Lesa meira... 23.08.10 |
|
22. ágúst 2010.
Norðlæg átt og kalt úrkoma í nótt og morgun á hreindýraslóðum. Gránaði víða í fjöll í morgun. Margir ætla sér á veiðar í dag: Eftirtaldir búnir að tilkynna sig til veiða. Svæði 1: Eiríkur Skjaldar með einn í kú. Svæði 2: Guðmundur Péturss. með einn í tarf og tvo í kýr, Siggi Aðalsteins með einn í tarf, Einar Axels með einn í kú, Maggi Karls með einn í kú, Jakob með þrjá í kýr, Jónas Bjarki með einn í kú, Tóti Bogars með tvo í tarfa, Agnar með einn í kú, Hjörtur Kjerúlf með einn í kú. Einar Eiríks með einn í kú. Fleiri eiga örugglega eftir að hafa samband. Svæði 4. Dagbjartur með tvo í kýr og Stebbi Kristm. með einn. Svæði 5. Sigurgeir með tvo í tarfa og einn í kú. Sævar með tvo í tarfa. Svæði 8. Skúli Ben. einn í kú. Siggi á Borg með einn í tarf og einn í kú., Stefán Helgi með einn í tarf. Ívar Erlends með einn í tarf.
Lesa meira... 22.08.10 |
|
21. ágúst 2010
Margir ætla sér að veiða í dag. Skyggnið gæti verið betra en úrkoma er ekki mikil vegna þess hve kallt er. Snjóaði í Snæfellið í nótt. Svæði 1: Eiríkur Skjaldar með einn í kú. Svæði 2: Jakob með þrjá í kýr, Einar Hjörleifur með tvo í kýr, Árni Jóns með einn í kú, Jón Egill með tvo í kýr, Alli með einn í kú, Árni Vald. með einn í kú, Hjörtur Kjerúlf með þrjá í kýr, Einar Axels með tvo í kýr, Einar Eiríks með einn í tarf, Maggi Karls með einn í tarf og annan í kú, Hafliði Hjarðar með einn í tarf, Siggi Aðalsteins með einn í tarf.Svæði 4: Svæði 5: Sævar með tvo í kýr og Sigurgeir með tvo í tarfa. Svæði 7: Ómar með einn í kú, Albert með einn í tarf. Guðmundur Valur með einn í tarf og annan í kú, Ragnar Eiðs með einn í tarf. Svæði 8: Siggi á Borg með einn í tarf, Skúli Ben með einn í tarf, Stefán Gunnars með einn í tarf, Siggi Eymunds með tvo í kýr. Guðmundur á Þvottá með tvo í kýr.
Lesa meira... 21.08.10 |
|
20. ágúst 2010
Norðan og norðaustanátt á Austurlandi. Úrkomulítið en skyggni víða takmarkað til að horfa eftir hreindýrum - yfirleitt skyggnið betra inn til landsins. Á svæði 2: Jón Egill með tvo í tarfa, Reimar með einn í tarf, Árni Jóns með einn í tarf, Skúli Ben með einn í tarf. Hafliði Hjarðar með tvo í tarfa, Snæbjörn með einn í tarf. Rúnar með einn í tarf. Ómar með einn í kú. Einar Axels með tvo í kýr. Guðmundur í Gerði með einn í kú, Alli með tvo í kýr, Tóti Borgars með einn í kú. Siggi Aðalsteins með einn í kú. Á svæði 4. Dagbjartur með tvo í kýr. Á svæði 5. Sævar með tvo í kýr. Á svæði 7: Ragnar Eiðs með einn í tarf, Guðmundur Valur með einn í tarf. Á svæði 8: Siggi á Borg með einn í kú. Helgi Jens með einn í tarf.
Lesa meira... 20.08.10 |
|
19. ágúst 2010
20. ágúst nálgast. Þá er eins og við manninn mælt, allir ætla sér að veiða hreindýr. Margir stefna til veiða í dag. Norðaustanáttin öflug á héraði sem fyrr og einnig er þoka á Fjörðunum. Veðrið er sennilega stærsti áhrifavaldurinn í dag um hvort menn veiða eða ekki. Svæði 1. Snæbjörn með tvo í tarfa, Eiríkur með tvo í tarfa. Svæði 2. Siggi Aðalst með tvo í kýr, Jón Egill með þrjá í kýr, Alli með þrjá í kýr, Sævar með tvo í kýr og einn í tarf, Jón Hávarður með einn í tarf, Tóti með einn í tarf og einn í kú, Einar Axels með einn í tarf, Benni Óla með þrjá í tarfa, Árni Jóns með einn í tarf, Kolbeinn með einn í kú, Reimr með einn í tarf, Skúli Ben með einn í kú, Ómar með tvo í kýr, Hafliði Hjarðar með einn í kú, Guðmundur í Gerði með einn í kú. Ragnar Ólafs með einn í kú. Svæði 8. Stefán Gunnars með einn í kú, Siggi á Borg með tvo í tarfa.
Lesa meira... 19.08.10 |
|
18. ágúst 2010
Sennilega er best veiðiveðrið á svæðunum syðst en eftir að kemur austar er þoka og rigning það sem er að sjá í kortunum næstu daga. Nú eru örugglega einhverjir sem naga sig í handabökin yfir að hafa ekki farið af stað í sólinni og blíðunni sem var fyrst í ágúst allavega á sv. 2. Menn reyna að halda til veiða og athuga hvort einhverjar gloppur myndist í þokunni. Gæti verið bjartara inn til landsins. Svæði 1: Eiríkur Skjaldar með tvo í tarfa. Alli með þrjá í kýr. Kolbeinn með tvo í kýr. Svæði 2: Siggi Aðalst. með einn í kú. Reimar með einn í tarf, Tóti með einn í kú og annan í tarf, Einar Axels með einn í tarf. Svæði 7: Skúli Ben með einn í tarf, Jónas Bjarki með einn í tarf. Jóhann Steind. með einn í tarf. Svæði 8: Stefán Helgi með einn í kú. Svæði 9: Siggi á Borg með einn í tarf.
Lesa meira... 18.08.10 |
|
17. ágúst 2010
Norðaustanáttin komin eins og spáð var en sennilega frekar hæg víðast hvar og úrkomulítið víðast hvar á hreindýraslóðum. Gæti verið bjartara inn til landsins. Svæði 1: Danni með tvo í kýr. Svæði 2: Siggi Aðalsteins með tvo í kýr. Siggi Þór með einn í kú. Svæði 5: Stebbi Kristmanns með einn í tarf, Þorsteinn Aðalsteins með einn í kú. Svæði 6: Jónas Bjarki með einn í kú. Svæði 7: Ómar með einn í kú og annan í tarf á sv. 6 ef vel tekst til. Sævar með einn í kú. Guðmundur á Þvottá með einn í kú. Albert með tvo í tarfa og einn í kú. Svæði 8: Sigurður á Borg með einn í tarf. Sigurður Eymunds með einn í kú. Stefán Helgi með einn í tarf og einn í kú.
Lesa meira... 17.08.10 |
|
|
Gunnhildur L. Sigurðardóttir við sína fyrstu hreinkú. Felld á sv. 2 inn undir Geldingafelli. Vopnið var Tikka T3 Hunter 243 - Norma Oryx kúla, færið 81 metir. Leiðsögn:Dagbjartur Jónsson.
|
|
16. ágúst 2010 (mynd)
Að stytta upp og létta til eftir suðaustanrigninguna - menn komnir á stað til veiða og fleiri í startholunum. Svæði 1: Eiríkur fer með einn í kú og annan í tarf. Alli fer með einn í kú. Svæði 2: Dagbjartur með einn í kú, Danni með tvo í kýr, Björn Ingvars með einn í kú, Siggi Aðalsteins með einn í kú, Siggi Þór með einn í kú og Kolbeinn með einn í tarf. Svæði 3: Ólafur Örn með tvo í tarfa og Tóti Borgars með einn í kú. Svæði 5: Einar Har. með einn í kú og einn í tarf. Sævar með þrjá í tarfa - enn þoka á svæðinu en menn leggja af stað um leið og birtir. Þórir með tvo í tarfa og einn í kú. Þorsteinn Aðalsteins með einn í kú. Svæði 7: Ómar með einn í kú, Albert með tvo í tarfa og einn í kú. Helgi með einn í kú.
Lesa meira... 15.08.10 |
|
|
Vörður Leví Traustason við kú sína fellda í Múlahrauni sv. 2. Leiðs. S.A.
|
|
15. ágúst 2010 (myndir)
Bjartur og fallegur dagur runninn upp Héraði en þokan eitthvað að stríða mönnum á Fjörðunum. Á svæði 1 fer Snæbjörn með tvo í tarfa, Hafliði Hjarðar með tvo í kýr, Pétur í Teigi með tvo í kýr. Á svæði 2: Reimar með tvo í tarfa, Alli með tvo í kýr, Siggi Aðalsteins með tvo í kýr. Á svæði 4: Stebbi Kristmanns með tvo í kýr. Á svæði 5: Sigurgeir með tvo í kýr og Sævar með tvo í tarfa. Á svæði 7: Skúli Ben með einn í kú.
Lesa meira... 15.08.10 |
|
|
Arnar Guðmundsson við tarf sinn sem felldur var á Hraunum á sv.7. Vopn Sauer 6,5x55. Leiðsögn: Albert Jensson.
|
|
14. ágúst 2010 (myndir)
Svæði 1: Reimar með tvo í tarfa, Snæbjörn með tvo í tarfa. Pétur með einn í tarf. Andrés með tvo í kýr. Svæði 2: Ómar með tvo í kýr, Guðmundur í Gerði með einn í kú, Jón Hávarður með þrjá í kýr, Einar Eiríks með tvo í kýr og einn í tarf, Magnús Karls með einn í tarf, Tóti Borgars með einn í tarf, Einar Haralds með einn í tarf. Kolbeinn með þrjá í kýr, Danni með einn í tarf og annan í kú. Siggi Aðalsteins með einn í tarf. Skúli Ben með einn í kú. Óskar með einn í kú. Emil með einn í kú. Svæði 3: Björn Ingvars með tvo í kýr. Svæði 4: Stefán Kristmanns með tvo í kýr. Svæði 5: Sævar með tvo í tarfa, Sigurgeir með þrjá í kýr. Palli Leifs með einn í tarf. Svæði 7: Þorri með tvo í kýr, Guðmundur á Þvottá með einn í kú, Albert með tvo í tarfa, Guðmundur Valur með einn í tarf. Svæði 8: Siggi Eymunds með einn í kú.
Lesa meira... 14.08.10 |
|
13. ágúst 2010
Upp er runninn föstudagurinn 13. ágúst. Vonandi verður það happadagur fyrir okkur öll þrátt fyrir hjátrúna. Hreindýraveiðimenn og leiðsögumenn þeirra þurfa oft á dálítilli heppni að halda í bland við sína eigin snilli. Margir stefna til veiða enda gott veður á Austurlandi, skýjað en logn. Á svæði 1 eru farnir Snæbjörn með tvo í tarfa og einn í kú, Reimar með tvo í kýr, Tóti Borgars með einn í tarf og Pétur í Teigi með einn í Tarf. Á svæði 2: Þórir með tvo í kýr, Össur með einn í kú, Einar Hjörleifur með einn í tarf, Ómar með tvo í kýr, Alli í Klausturseli með einn í kú og annan í tarf, Emil með einn í kú, Siggi með einn í tarf. Helgi Jens fer með einn í kú. Á svæði 3: Jón Sigmar með þrjá í kýr og Ólafur Örn með einn í kú. Skúli Sveins með einn í tarf Á svæði 4: Björn Ingvars með tvo í tarfa og einn í kú. Jón Egill með einn í tarf. Á svæði 5: Sævar með einn í tarf og annan í kú. Á svæði 6: Hermann Steinss með einn í tarf. Á svæði 7: Guðmundur á Þvottá með tvo í kýr.
Lesa meira... 13.08.10 |
|
|
Ólafur Ágúst Stefánsson skaut væna kú við Grjótárstíflu á Múla 12. ágúst. Með honum á myndinni er Hjörleifur bróðir hans sem var honum til halds og trausts. Leiðs. S.A.
|
|
12. ágúst 2010 (mynd)
Svæði 1: Snæbjörn með einn í kú. Svæði 2: Reimar með einn í kú, Hermann Steins með einn í kú, Emil með einn í kú, Siggi Aðalsteins með einn í kú, Alli með einn í kú og Þórir með tvo í kýr. Jónas Bjarki með einn í tarf. Svæði 3: Tóti fer með einn í tarf og Skúli með annan í tarf seinni partinn. Svæði 5: Sævar fer með einn í kú og einn í tarf. Svæði 6: Þorsteinn Bjarnason fer með einn í tarf á sv. 6 Svæði 7: Stefán Gunnars fer með einn í kú, Rúnar fer með einn í kú. Ómar fer með einn í tarf, Valur fer með einn í kú, Guðmundur á Þvottá með tvo í kýr og einn í tarf. Svæði 8: Sigurður Eymunds fer með einn í kú. Svæði 9: Siggi á Borg fer með einn í tarf.
Lesa meira... 12.08.10 |
|
|
Jón Ragnar Jónsson með sína fyrstu fellda hreinkú. Tveggja ára geld kú felld við Köldukvísl í Klausturselsheiði. Vopn Weatherby 308 Win, skotin á 150 m færi. Leiðsögn Aðalsteinn Jónsson. Ljómyndarinn Erna Bjarnadóttir var stoð og stytta veiðimannsins.
|
|
11. ágúst 2010 (myndir)
Lítur út fyrir gott veður samkvæmt spánni og þokan ætti að láta undan síga. Búnir að skrá sig til veiða: Svæði 1. Snæbjörn með einn í kú. Svæði 2. Óskar fer með þrjá í kýr, Reimar með tvo í kýr, Siggi Aðalsteins með tvo í kýr. Vignir Jón með tvo í kýr, Alli með einn í kú, Emil með tvo í kýr. Andrés með tvo menn í kýr og einn í tarf. Guðm. Péturs með einn í tarf. Svæði 3. Skúli Sveins með tvo í kýr, Gunnar Gutt. með einn í kú og Jón Egill með einn í tarf. Svæði 4. Ólafur Örn með einn mann í kú á sv. 4. Svæði 5. Sævar með þrjá menn í kýr á sv. 5, Svæði 7. Ómar fer með einn í kú, Guðmundur Valur með tvo í tarfa, Jónas Bjarki með einn í kú og annan í tarf. Svæði 8. Guðmundur á Þvottá með tvo einn í kú og annan í tarf. Stefán Gunnars með tvo í tarfa. Stefán Helgi með tvo í kýr, Siggi Eymunds með tvo í kýr.
Lesa meira... 10.08.10 |
|
|
Björn Níelsson skytta og burðarmaður hans Jón Ágúst með væna hreinkú fellda á Múla.sv. 2. Leiðs. Siggi Að.
|
|
10. ágúst 2010 (mynd)
Þokan seig inn á héraðið og einnig á firðina í gærkvöldi og liggur enn nokkuð neðarlega nú í morgunsárið. Gæti orðið erfitt að finna dýr fram eftir degi.
Á svæði 2 fer Danni með einn mann í kú, Reimar með einn mann í kú, Siggi Aðalsteins með einn mann í kú, Vignir Jón með tvo í kýr og Emil með einn í kú. Andrés fer með tvo menn í kýr á svæði 2 og einn í tarf.
Á svæði 3 fer Stebbi Kriss með einn í kú og Skúli Sveins með tvo. Á svæði 4 fer Ólafur Örn með einn í kú.
Á svæði 5 fer Sævar með tvo menn í kýr.
Á svæði 7 fer Stefán Gunnars með einn tarfamann og annan á sv 8. Jónas Bjarki með einn í kú og annan í tarf á sv. 7 og Guðmundur Valur með einn í tarf.
Á svæði 8 fer Siggi Eymunds með tvo í kýr. Guðmundur á Þvottá fer með tvo menn á sv. 8 í kýr og tarf.
Lesa meira... 10.08.10 |
|
|
Óðinn Grímsson með sína fyrstu kú á Sauðafellsflóanum á sv.2.. Skotið var með Mauser - S. Larsen riffli, cal. 6.5 x 55. Færið var 188 metrar. Leiðsögn Einar Eiríksson.
|
|
9. ágúst 2010 (mynd)
Nú búast menn við góðu veðri til hreindýraveiða - spáð hægri vestanátt næstu daga og gæti orðið bjart á öllum veiðisvæðum.
Á svæði 1 fer Eiríkur Skjaldar með tvo í kýr og Pétur með einn í tarf.
Á svæði 2 fer hópur leiðsögumanna flestir með menn að fella kýr. Jón Egill með einn mann í kú, Jón Hávarður með þrjá í kýr, Einar Eiríks með einn í kú, Össur með einn í kú, Gunnar Gutt með tvo í kýr, Alli með þrjá í kýr, Vignir Jón með tvo í kýr, Emil með einn í kú, Þorvaldur Ágústsson með einn í kú. Danni með einn í kú. Tóti með tvo í kýr. Á svæði 5 fer Páll Leifs með einn mann í kýr og Sævar með tvo menn í kýr. Á svæði 7 fer Guðm. á Þvottá með einn í tarf. Fleiri eiga örugglega eftir að tilkynna sig á öðrum svæðum er líður á dag. Albert fór með þrjá í kýr
Lesa meira... 09.08.10 |
|
|
Veiðimaðurinn Júlíus Þ. Sigurþórsson t.h og félagi hans Pálmi Franken. Tarfurinn var felldur í Tungufelli í Breiðdal á sv. 6. 99kg. Skotinn með Tikka 300Win. magnum. Kúla 180 grs. Barnes TSX. Færi 150m. Leiðsögn Jónas Bjarki.
|
|
8. ágúst 2010 (myndir)
Á svæði 2 fara: Alli með tvo í kýr og einn í tarf, Siggi Óla með tvo í tarfa, Ómar með tvo í kýr, Reimar með einn í tarf, Siggi Aðalsteins með þrjá í kýr, Össur með einn í kú, Þórir með einn í tarf og annan í kú. Tóti Borgars með einn í kú og Rúnar með einn í tarf Á svæði 3 fer Skúli Sveins með einn í tarf. Á svæði 5 fer Sævar með tvo í kýr. Sigurgeir með einn í tarf og tvo í kýr. Á svæði 6 fer Jónas Bjarki með einn í tarf. Á svæði 7 fer Albert Jens með tvo í tarfa. Á svæði 8 fer Siggi á Borg með tvo í kýr og Einar Har. með einn í kú. Enn þoka á mörgum svæðum en spáð að létti til víða er líður á dag.
Lesa meira... 08.08.10 |
|
|
Hólmgeir Elís Flosason skaut þessa kú innst á Hraksíðu á Múla sv. 2., vopnið Brno 243. Með honum á myndinni er vinur hans Birgir Þorsteinsson. Leiðsögn Siggi Aðalsteins.
|
|
7. ágúst 2010 (mynd)
Menn að byrja að tilkynna sig til veiða. Á svæði 1 fer Eiríkur með tvo menn í tarfa og Snæbjörn með einn. Á svæði 2 fer Guðmundur Péturss með tvo í kýr og einn í tarf. Þórir fer með einn í tarf og annan í kú. Ómar fer með tvo í tarfa. Reimar fer með einn í kú, Siggi Óla með tvo í tarfa, Tóti Borgars með einn í kú, Siggi Aðalsteins með einn í kú, Árni Vald. með tvo í kýr. Á svæði 3 fer Óli Gunnar með einn í tarf og Tóti Borgars með tvo nú undir kvöldið. Á svæði 5 fer Sævar með tvo menn í kýr. Á svæði 6 fer Jónas Bjarki með einn í tarf. Á svæði 7 fer Albert með tvo í tarfa. Á svæði 8 fer Einar Har með einn í kú.
Lesa meira... 07.08.10 |
|
|
Karl Steingrímsson felldi þennan væna hornprúða tarf á Þuríðarstaðabrúnum vestan við Hólsufs. Vopnið er 6,5-284 og tarfurinn vigtaði 82 kíló. Leiðsögn Siggi Aðalsteins.
|
|
6. ágúst 2010 (myndir)
Bjartur og fallegur dagur runninn upp á Héraði hitinn fór niður í 4 stig á Héraði í nótt en nú er sólin að eyða þokubólstrunum og veiðiveður verður gott í dag. Menn halda snemma til veiða þegar svona bjart er - Þokan gæti samt legið eitthvað inn á víkum og í fjörðum. Á svæði 1 fer Pétur í Teigi með einn í tarf og Snæbjörn með einn í tarf og Eiríkur Skjaldar með einn í kú. Á svæði 2 fara í kýr: Þorvaldur Ágústsson með tvo, Össur með tvo, Ómar með tvo, Árni Vald. með þrjá, Björn Ingvars með einn og Danni með einn. Siggi Aðalsteins fer með einn í tarf á svæði 2. Á svæði 3 fer Stebbi Kristm. með einn í kú, Skúli Sveins með einn í kú og Tóti Borgars með einn í tarf. Á svæði 5 fer Páll Leifs með einn í kú og Sigurgeir með tvo í kýr. Á svæði 6 fer Viðar með einn í tarf. Á svæði 8 fer Siggi á Borg með einn í kú. Fleiri gætu bæst við er líður á dag.
Nokkuð vel gekk að fella í dag. Á svæði 1 voru felld tvö dýr kýr við Sandfell og tarfur á Smjörvatnsheiði. Á svæði 2 voru felldar 9 kýr og einn tarfur á svæðinu við Langvatn, í Fljótsdalsbrúnum og á Vesturöræfum. Ekkert fellt á sv 3 þoka kom á svæðið er leið á daginn og þannig var það einnig á svæði 5.Einn tarfur var felldur á svæði 6 í Breiðdalnum.Á svæði 7 var felld ein kýr í Geithellnadal.Á svæði 8 voru felldar tvær kýr og einn tarfur. Tarfur og kýr í Hvaldal. 06.08.10 |
|
|
Jón Eyþór Helgason við hreinkú sem hann felldi í Hraukum á Vesturöræfum. Vopnið er cal. 270, hleðsla 130 gr. Ballistik Tip kúla á 3800 fetum. Leiðs. Siggi Aðalsteins.
|
|
5. ágúst 2010 (myndir)
Nú virðist þokunni vera að létta á flestum veiðisvæðum. Margir stefna til veiða í dag. Benedikt Arnórs fer með einn mann í tarf á sv. 1 og Pétur í Teigi með einn í kú og annan í tarf, Össur fer með þrjá í kýr á sv. 2, Alli fer með einn í tarf á sv. 2, Maggi Karls fer með einn í kú, Þorvaldur Ágústsson fer með tvo í kýr, Árni Vald. fer með einn í kú, Guðmundur Péturss með einn í kú einn og Siggi Aðalsteins með einn í kú allir á sv. 2, Á svæði 3 fara Tóti Borgars með einn í kú og einn í tarf, Dagbjartur með einn í kú og Stebbi Kristmanns einnig með mann í kú. Á svæði 7 fer Jónas Bjarki með einn í kú, Guðmundur á Þvottá með einn í kú. Stefán Gunnars fer með einn í kú á sv 8. Ólafur Örn fer með tvo menn á svæði 4 í kú og tarf. Skúli Sveins ætlar með einn mann í tarf á sv. 3 seinni partinn. Helgi Jensson með einn mann í kú á sv. 7. Páll Leifs með einn í kú á sv. 5.Á svæði 1 var felldur fallegur tarfur í Smjörfjöllum og ein kú á Háreksstaðahálsi, á svæði 2 voru felldar 5 kýr tvær við Langavatn, tvær á Vesturöræfum og ein í Fljótsdalsbrúnum. Kýrnar orðnar dreifðari um heiðina. Einn tarfur var felldur á sv. 2 í Fellunum. Á svæði 3 voru felldar 4 kýr og einn tarfur í Loðmundarfirði þar er ein hjörð 180 dýr eða fl. og einn tarfur í Urðardal í Borgarfirði þar voru 12 tarfar. Á svæði 4 var felld ein kýr og einn tarfur. Á svæði 7 voru felldar þrjár kýr, í Geithellna og Múladal og á Lónsheiði. Einn tarfur í felldur á svæði 7 inn af Fossárdal. Stillt og gott veiðiveður. 05.08.10 |
|
|
Ingólfur Pétursson við kú sem hann felldi á söndunum gengt Grjótárhnjúk á sv. 2. Leiðsögum. Siggi Aðalsteins.
|
|
4. ágúst 2010 (myndir)
Þoka á Héraði og norðaustanátt. Er að birta á suðurfjörðunum. Á svæði 2 fer Ómar með tvo í kýr, Siggi Aðalsteins með tvo í kýr, Danni með þrjá í kýr og Óskar Bjarna með einn í tarf. Albert fer með tvo í kýr á svæði 7, Sigvaldi með einn í kú og Guðmundur á Þvottá með einn í tarf einnig á sv. 7. Guðmundur Valur fer með einn í kú á sv. 7. Siggi Eymunds fer með tvo tarfamenn á sv. 8. Reimar fer á sv. 1 með einn í tarf. Óli Gunnar fer með tvo veiðimenn í kýr á sv 2. Siggi á Borg fer með mann í kú á sv. 8. Maggi Karls fer með einn mann í tarf á sv. 6 ef þokan lyftir sér. Össur kominn á sv. 2 með þrjá veiðimenn í kýr. Rúnar fór með einn mann á sv. 6 undir kvöld og felldi hann tarf í Breiðdalnum.
Lesa meira... 04.08.10 |
|
|
Páll Malmberg með sýna fyrstu hreinkú. Felld á svæði 2 í Þjófadölum. Vopnið var Sako 75 í 300 win mag. 180 g Norma Oryx kúla - færi 150 metrar. Leiðsögn: Þórhallur Borgarsson.
|
|
3. ágúst 2010 (mynd)
Rólegt yfir veiðimönnum í dag - búið að vera suðaustan rigning í nótt og morgun á Héraði. Víða liggur þokan inn á fjörðum. Á svæði 2 fer Ómar með tvo menn í kýr og Tóti Borgars með einn. Benedikt Arnórs fer með einn mann í tarf á sv 1. Menn Ómars felldu á Eyjabökkum að austanverðu og maður Tóta í Þjófadölum. Siggi Óla fór með einn mann í kýr undir kvöld í gær á sv. 2 og felldu þeir við Bjálfafellið. 03.08.10 |
|
|
Vignir Stefánsson við kúna sem hann felldi á sv.2 austur af Grjótárhnjúk, vopn 243. Leiðsögum. Siggi Aðalst.
|
|
2. ágúst 2010 (myndir)
Frídagur verslunarmanna hefur oft verið mjög rólegur ef um er að ræða hreindýraveiðar. En nú er veðrið gott og sennilega drífa margir sig á veiðar. Gunnar Gutt fer með einn á sv 2 í kýr og Siggi Aðalsteins með tvo, Ómar með einn í kú á sv 2 og Guðm. Péturss með einn í kú. Tóti Borgars fer með einn í kú og Stebbi Kristmanns með einn í kú. Sæmundur fer á svæði 4 í Mjóafjörð með einn tarfamann. Snæbjörn fer með einn í kú á sv 1. Sigurgeir fer með einn í kú á sv. 5 og Sævar með annan, einnig í kú. Sigvaldi fer á svæði 7 með einn í kú. Sigurður Eymunds fer með tvo í tarfa á sv. 8. Rúnar fer á svæði 6 með einn í tarf. Skúli Sveins fer með einn í kú á sv 3.
Lesa meira... 02.08.10 |
|
|
Helgi Leifur Sigmarsson við tarf felldan á Breiðdalsheiði sv. 6. 101kg felldur með 308Win. Leiðsögn Jónas Bjarki.
|
|
1. ágúst 2010 (mynd)
Fyrst dagur veiðitímabils hreinkúa sem stendur nú 5 dögum lengur en áður, þ.e. til 20. sept.. Ekki er heimilt að fella kálfa á veiðitímabilinu. Nokkrir stefna til veiða - enn er þokan inn á víkum og fjörðum en að létta til inn til landsins. Á svæði 2 fer Ómar með tvo menn í tarf og kú, Siggi Aðalsteins fer með einn í kú, Guðmundur Péturss. með einn í kú, Emil með einn í kú, Danni með tvo í kýr og Tóti Borgars með einn í tarf. Gunnar Gutt fór seinni partinn með einn mann á svæði 2 í kú. Á svæði 3 fer Björn Ingvars með einn í kú. Á svæöi 5 fer Stebbi Kristmanns með einn veiðimann. Jónas Bjarki fer á svæði 6 með tvo í tarfa, Ástvaldur með einn í tarf og Rúnar með einn í tarf. Á svæði 7 fer Sigvaldi með einn mann í kýr ef þokunni léttir. Fleiri ekki búnir að tilkynna sig en þeim gæti fjölgað sem halda til veiða síðar í dag sérstaklega ef þokunni léttir betur. Vel gekk að veiða þar sem þokan var ekki. Veiðimaður Tóta felldi á svæði 2 í Fellunum, önnur dýr sem felld voru á svæði 2 voru felld á Vesturöræfum í Dragamótunum og meðfram Sauðá. Þar voru felldar fjórar kýr og einn tarfur. Á þessu svæði voru um 400 dýr. Á svæði 6 voru felldir þrír tarfar, einn við Ódáðavötn og tveir á Breiðdalsheiði. Fyrsta kýrin á svæði 3 var felld í Norðdal í Loðmundarfirði. Þar var 180 dýra hjörð. 01.08.10 |
|
31. júlí 2010
Nokkrir leiðsögumenn búnir að tilkynna sig til veiða. Ómar fer á svæði 2 með tvo menn og Stebbi Kristmanns með einn. Tóti Borgars fer með einn á svæði 1 og Reimar með sömuleiðis á svæði 1 með einn. Jónas Bjarki fer á svæði 6 með einn mann. Þokan hefur sigið niður á fjallatoppa á Héraði í nótt en léttir örugglega til er líður á dag. Sennilega þokuloft víða á Fjörðum. Veiðimenn með Ómari felldu góða tarfa á Eyjabökkum. Skyttan með Stebba Kristm. felldi nærri Setbergi í Fellum. Veiðmaður með Reimari felldi á svæði fallegan tarf nærri Sandfelli. Þokan var neðarlega víða og ekkert skyggni í víkum og fjörðum. 31.07.10 |
|
30. júlí 2010
Nú fer í hönd ein mesta ferðahelgi ársins - undanfarin ár hafa verið frekar fáir veiðimenn sem notað hafa þessa helgi til hreindýraveiða. Fjölskyldan virðist hafa forgang fram yfir veiðarnar. Enginn búinn að tilkynna sig á veiðar nú þegar þetta er ritað. Frábært veiðiveður á Héraði en sennilega verður þokan mönnum erfið á Fjörðunum. Guðm. Kristinsson ætlar með mann á svæði 7 ef þokan lyftir sér. Stefán Kristm. fer með einn mann á svæði 4 og felldi sá maður tarf á Mjóafjarðarheiði síðdegis. 30.07.10 |
|
|
Hreinn Sigurðsson th og leiðsögumaður hans Sigurgeir Jóhannss. við tarf felldan á sv 5 í Karlsstaðabotnum. Vóg 95 kg.
|
|
29. júlí 2010 (mynd)
Eiríkur fer á svæði 1 með tvo menn og Snæbjörn með einn. Sævar fer með einn á svæði 3. Sigurgeir fer með einn á svæði 5 ef þokunni léttir. Jói Steindórs farinn með mann á sv.6. Veiðimenn Eiríks felldu utan við Sandfell á svæði 1 og einnig veiðimaður Snæbjörns, Veiðimaður Sævars felldi í Hjaltastaðarþinghá á svæði 3 og veiðimaður Sigurgeirs náði einnig að klára á svæði 5. Á svæði 6 þar sem leitað var dýra var þokan of mikil til að næðist að finna dýr og fella. 29.07.10 |
|
|
Sigurbjörn Úlfarsson við tarf sinn felldan á svæði 5. Fallþungi tarfsins mældist 93 kg og veiddist í um 550 metra hæð innarlega í Svínadal ... ,,Ganga dagsins var um 10 km og drógum við dýrið á “töfrateppi” niður bratta hlíðina og út dalinn um 5 km.
|
|
28. júlí 2010 (myndir)
Hæg norðaustanátt á Austurlandi, þoka og rigning víða um hreindýrasvæðin í nótt. Menn halda til veiða og vona að þokan lyfti sér er líður á dag. Skúli Sveins fer með tvo menn á svæði 3, Ómar með einn á svæði 2, Snæbjörn með einn á svæði 2, Reimar með tvo á svæði 2, Eiríkur Skjaldar með einn á svæði 1 ef þokunni léttir, Rúnar með einn á svæði 7, Jóhann Steindórs með einn á sv. 6, Sigurgeir með einn á svæði 5, Sævar með tvo á svæði 5 og Páll Leifss með einn á sv. 5. Veiðimenn á svæði 3 með Skúla felldu innan við Sand í Hjaltastaðarþinghá, þar voru 7 tarfar. Veiðimaður með Rúnari á sv 7 felldi við Smjörkoll. Veiðimenn Sævars og Páls felldu í Svínadal þrjá tarfa úr 12 tarfa hópi. Veiðimaður Ómars felldi sunna við Snæfell og veiðimenn Reimars og Snæbjörns felldu á Eyjabökkum austan Jökulsár. Ekki fundust tarfar í Breiðdalnum á svæði 6 né á svæði 1 en þoka var að skemma fyrir á þeim svæðum. 28.07.10 |
|
27. júlí 2010
Þoka og rigning víða á Austurlandi en ætti að létta til suður með fjörðum ef vindur snýst meir til norðausturs. Reimar er farinn á svæði 2 með einn mann og Þórhallur Borgars með annan. Jóhann Steindórsson fer með eina skyttu á svæði 6 í Breiðdalnum þar er þokan frekar neðarlega og erfitt gæti verið um vik að finna tarfana. Veiðmaður með Reimari felldi á Fljótsdalsheiði nærri Hafursflóa hornprúðan tarf og veiðimaður Þórhalls felldi uppúr hádegi í Fellum nærri Birnufelli. 27.07.10 |
|
26. júlí 2010
Fáir að fara til veiða í dag. Alli í Klausturseli fer á svæði 2 með einn mann. Helgi Jens fór með tvo tarfaveiðimenn á svæði 3 síðdegis og felldu þeir tarf við Ásgrímsstaðavatn í Hjaltastaðarþinghá. Veiðimaður með Alla felldi á svæði 2 inn við Snæfell. 26.07.10 |
|
25. júlí 2010 (myndir)
Ómar fór með veiðimann á svæði 2 og felldu þeir úr 17 tarfa hópi við Gilsárvötnin snemma um morguninn og Guðmundur Pétursson fór einnig með mann á svæði 2 og felldu þeir úr sama hópnum fyrir hádegið. Danni fór með sinn mann í 80 tarfa hóp í Urgnum og felldi sá einnig um hádegið. Jón Hávarður fór með tvær skyttur á svæði 2 undir kvöldið og felldu þeir tarfa í Fellunum. Veiðimenn með Stebba Kristm. fundu loks tarfana á svæði 4 og felldu þeir tvo fallega tarfa að sunnanverðu. Jónas Bjarki fór með einn mann á svæði 7 og felldu þeir í Veturhúsadal. Guðmundur Valur fór með einn mann í tarf inn á Hraun á sv. 7 og felldi hann tarf undir kvöld.
Lesa meira... 26.07.10 |
|
24. júlí 2010
Á svæði 2 fóru Ómar með eina skyttu og felldu þeir um morguninn við Langavatn. Hjörtur Kjerúlf fór einnig á svæði 2 með veiðimenn og felldi hann á svipuðum slóðum. Siggi Aðalsteins fór með einn mann á svæði 2 og felldu þeir tarf við Hölknána. Danni fór með einn mann á sv 2 en þeir náðu ekki að klára. Stebbi Kriss var enn að leita að Mjóafjaraðartörfunum með sínum veiðimönnum. Reimar fór með eina skyttu á svæði 6 og felldi sá í Gilsárdal. 22.07.10 |
|
23. júlí 2010
Bjart og fallegt verður en fáir virðast ætla að nýta sér það til hreindýraveiða. Albert fer á svæði 7 með einn mann. Sævar fer með tvær skyttur á svæði 5. Stebbi Kristmanns fer með tvo menn á svæði 4 í Mjóafjörð, Stefán Helgi með einn mann á svæði 8. Veiðimaður með Albert felldi í Hamarsdal. Veiðimaður með Stefáni Helga felldi austan við Almannaskarð á svæði 8. Tarfarnir fundust ekki á svæði 4 þar sem leitað var en annar veiðimaður Sævars felldi á svæði 5. 22.07.10 |
|
22. júlí 2010(myndir)
Bjart og fallegt veður hæg suðlæg átt á Héraði. Nokkrir stefna til veiða: Reimar fer með einn mann á sv 2, Ómar með einn mann, Einar Hjörleifur með tvo menn. Sævar fer á svæði 5 með tvo menn, Albert fer með veiðmann á svæði 7. Siggi á Borg ætlaði með einn á sv.9. Veiðimaður með Reimari felldi á Fljótsdalsheiðinni snemma í morgun, veiðimaður með Ómari felldi út tólf tarfa hóp í Hornbrynjuslakka. Veiðimenn með Einari Hjörleifi felldu við Gilsárvötnin síðdegis og undir kvöld. Veiðimennirnir með Sævari á svæði 5 felldu í Hellisfirði tvo fallega tarfa. Þorri Mangússon fór með tvo menn í gærkvöldi og felldu þeir tarfa í Breiðdalnum í Seldal á sv 6.
Lesa meira... 22.07.10 |
|
21. júlí 2010
Bjart og fallegt veður á Austurlandi, hæg norðlæg átt en fáir ætla til hreindýraveiða í dag. Reimar fer á svæði 2 með einn mann og Björn Ingvarsson með einn á svæði 2. Siggi á Borg fer á sv 9 með einn, Sigurður Eymunds með einn á sv.8. Búið er að fella 22 tarfa og er það svipaður fjöldi og á fyrstu dögunum í fyrra. Veiðimaður með Birni felldi á utarlega á Hallormsstaðahálsi, veiðimaður með Reimari felldi í Klausturselsheiði, þar voru margir fallegir tarfar. Veiðimaðurinn á sv 8 felldi í Hvaldalnum. 21.07.10 |
|
20. júlí 2010
Aðeins einn leiðsögumaður búinn að tilkynna sig á veiðar. Siggi á Borg fer með einn mann á svæði 9. Sigurður Eymundss fer með einn mann á sv. 8. Ekki náðu veiðimenn með þeim nöfnum að fella tarfa sína en fara aftur á morgun. Dagbjartur fór með einn veiðimann út á Eyjar á sv. 3 og felldi hann tarf undir kvöldið. Þorri Magnússon fór með eina skyttu á svæði 6 seinni part dags og felldi sá fallegan tarf við Tungufell. 20.07.10 |
|
|
Óli Þór Árnason með tarf sinn skotinn utan við Eyland á sv. 3. Vopnið var Tikka T3 taktical í 6.5x55 og kúlan Lapua Mega 156 grain og leiðsögumaður Stebbi Kristm.
|
|
19. júlí 2010 (mynd)
Nú er að létta til á Austurlandi og sólin farin að skína víða. Það ætti að verða gott veiðiveður í dag á öllum svæðum. Reimar fer með tvo veiðimenn á svæði 2, Stefán Kristmannsson með einn á svæði 3, Sigurður Eymunds með einn veiðimann á sv. 8. Veiðimaður Stefáns felldi tarf utan við Eyland á sv. 3. Skytturnar með Reimari felldu seinnipart dags á Fljótsdalsheiði. Þoka var á svæði 8 og þar því enginn árangur af tarfaleitinni. 19.07.10 |
|
18. júlí 2010
Rólegt í dag. Ómar Ásgeirs fór með tvær skyttur á sv. 2 og felldur þeir tvo fallega tarfa í Fellum. Magnús Karlss fór með veiðimann undir kvöldið á sv.6 og felldi sá í 93 kg tarf í Tröllafjalli í Þórudal. 18.07.10 |
|
|
Ingimar Ingólfsson með tarf sem skotinn var innanlega í Hvaldal á sv. 8. Vopnið var Tikka T3 Hunter í 6.5x55 og kúlan Norma Oryx 156 grain. Leiðsögumaður var Sigurður Eymundsson.
|
|
17. júlí 2010 (mynd)
Sigurður Eymunds fer með einn mann til veiða á svæði 8. Stebbi Kristmanns á leið á sv. 3 með einn veiðimann. Tveir tarfar felldir í dag, veiðimaður með Sigurði felldi á svæði 8 í Hvaldal þar voru um þrjátíu tarfar en margir þeirra ungir. Á svæði 3 var felldur tarfur út á Eyjum, stór og fallegur þar voru rúmlega 20 tafar. Þoka og rigning á Héraði en bjartar sunnar en þar nokkuð hvasst. 17.07.10 |
|
16. júlí 2010
Fáir á veiðum í dag. Stefán Gunnars tilkynnti veiðar með seinni veiðimanni sínum á sv. 7 síðan í gær - hann náði einnig fallegum tarfi í Búlandsdal þar sem voru um 40 tarfar í nokkrum smáhópum. Páll Leifss fór með veiðimann á sv. 5 og felldi hann í Áreyjardal inn af Reyðarfirði. Halldór Guðmundsson fór með þrjár skyttur á svæði 9 og felldu þeir þrjá tarfa á Borgarhafnarheiði úr hópi sex tarfa sem þar var.. Nú er norðan eða norðaustlæg vindátt á Austurlandi og þokuloft og úrkoma á Héraði. Bjartara á Suðurfjörðum og þar halda menn trúlega til veiða á morgun. Nú er þá búið að fell 12 tarfa. 16.07.10 |
|
15. júlí 2010 - Upphafsdagur veiðitímabils tarfa.
Fyrsti tarfurinn var felldur á svæði 7 í Berufirði rétt eftir miðnættið.. Albert var þar með einn veiðimann, Stefán Gunnarsson fór einnig með tvo veiðimenn í Búlandsdal á svæði 7 ekki komnar fréttir frá þeim nema um að annar tarfurinn náðist um kl. 20. Ómar var með mann á svæði 6 og felldi sá tarf á Breiðdalsheiði um hálf tíu í morgun, Viðar Pétursson var einnig með skyttu á sv. 6 og felldu þeir í Breiðdalnum seinni part dags. Skúli Sveins fór með mann á sv. 3 og felldi hann út á Eyjum. Reimar fór á Fljótsdalsheiðina á sv. 2 með tvær skyttur, felldu þeir tarfa við Gilsávötnin. Maggi Karls ætlað með mann á sv 6 undir kvöldið en ekki komnar fréttir um árangur. 10.07.10 |
|
15. sept. 2009 (Lokadagur)
Þá er runninn upp síðasti dagur veiðitímabilsins. Vel hefur gengið að veiða síðustu daga og staðan er sú að sennilega verður ekki mikið eftir að veiða þegar allt kemur til alls. Þrátt fyrir erfitt veiðitímabil veðurfarslega séð. Nú er verið að veiða á örfáum svæðum. Á svæði 2, á svæði 4, á svæði 7, á svæði 8 og á svæði 9.
Lesa meira... 15.09.09 |
|
14. sept. 2009
Enn fara menn til veiða: Á svæði 2 fara Alli með þrjá í kýr, Eiríkur með þrjá í kýr, Gunnar Gutt með tvo í kýr, Guðmundur í Gerði með tvo menn í kýr. Benni Óla með einn í kú, Siggi Aðalsteins með þrjá menn í kýr, Jón Egill með einn í kú og annan í tarf, Sveinn Ingimars með einn í tarf. Á svæði 4 fer Dagbjartur með einn í kýr. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo í kýr. Á svæði 7 fer Þorri með einn í kú. Á svæði 9 fara Stefán Gunnars með einn í kýr og þar eru einnig Gísli og Halldór.
Lesa meira... 14.09.09 |
|
13. sept. 2009
Þá eru aðeins þrír dagar eftir af veiðitímabilinu. Veður gott á öllum svæðum og virðist ætla að vera þokkalegt til loka. Á veiðisvæði 1 fer Hafliði Hjarðar með mann í kú og tarf, á svæði 2 fer Reimar með einn í kú, Siggi Aðalst með tvo í kýr, Alli með einn í tarf og tvo í kýr, Ragnar Arnars með einn í kú, Skúli Sveins með einn í tarf. Á svæði 7 fer Guðmundur Kristinss. með einn mann í kú. Fleiri eiga örugglega eftir að fara á stað er líður á dag.
Lesa meira... 13.09.09 |
|
|
Þórir Schiöth með glæsilegan tarf felldan í Vöðlavík á sv.5. Með honum á myndinni eru eiginkonan og sonur. Leiðsögn: Sævar Guðjónsson
|
|
12. sept. 2009 (myndir nýtt)
Þegar þessi dagur er liðinn eru eftir þrír dagar af veiðitímabilinu. Veðurguðirnir hafa loks bænheyrt hreindýraveiðimenn og aðra hér á Austurlandi, einn af betri dögum sumars og hausts er í dag. Margir halda til veiða í dag. Á svæði 1 fer Eiríkur Skjaldar með tvo í tarfa og Jón Egill með tvo í tarfa einn í kú. Á svæði 2 fara Siggi Óla með einn í kú, Siggi Aðalst. með einn í kú, Einar Axels með einn í kú, Einar Eiríks með þrjá í kýr, Alli með einn í tarf, Tóti Borgars með einn í kú, Hjörtur Kjerúlf með einn í kú, Ómar með einn í kú og Bjarni Bergþórs með einn í kú. Á svæði þrjú fer Skúli Sveins með síðasta manninn í kýr, á svæði 4 fer Ólafur Örn með tvo í tarfa og einn í kú og Haraldur Árnason með einn í kú. Á svæði 5 fer Sævar með tvo í kýr og einn í tarf og Þórir með einn í tarf. Á svæði 6 fer Magnús Karls með síðasta manninn í tarf á sv. 6. Á svæði 7 fer Guðmundur með tvo menn í kýr, Stefán Gunnars með tvo menn í tarfa, Þorri með tvo menn í kýr, Guðmundur Valur með tvo menn í kýr og Ragnar með einn mann í kú. Á svæði 8 fer Sigurður á Borg með tvo í tarfa og Sigurður Eymundss með einn í tarf. Halldór með menn á svæði 9.
Lesa meira... 12.09.09 |
|
|
Páll Á. Pálsson (með riffilinn) við kú sem hann felldi á svæði 2. Leiðsögumaður hans Ómar Ásgeirsson stendur við hlið hans.
|
|
11. sept. 2009 (myndir nýtt)
Ekki gott veiðiveður á syðstu svæðunum en þokkalegt annars staðar. Á svæði 2 fara: Ómar með einn í kú, Siggi Óla með einn í kú, Siggi Aðalsteins með tvo í kýr og einn í tarf, Jón Hávarður með einn í kú og annan í tarf, Alli með einn í kú, Einar Hjörleifur með tvo í kýr, Einar Axels með þrjá í kýr, Guðmundur Péturs með einn í kú, Siggi Þór með einn í kú og Tóti Rögnvalds með einn í kú. Ragnar Arnarson með tvo í kýr og Árni Vald með tvo í kýr. Á svæði 3 fer Skúli Sveins með þrjá í kýr. Á svæði 5 fer Þorsteinn Aðalsteins með einn í kú og Sævar með tvo í kýr. Á svæði 7 bíða menn átekta eftir því að stytti upp og einnig á svæði 8. Á svæði 9 ætlaði Halldór að reyna með sínum mönnum ef stytti upp.
Lesa meira... 11.09.09 |
|
10. sept. 2009
Nú er gott veður á öllum veiðisvæðum. Menn að veiða á flestum svæðum. Á svæði 1 fara Eiríkur Skjaldar með menn í kú og tarf, Danni með menn í kú og tarf, Benni Óla með menn í tarf og kú. Stefán Geir með einn í tarf. Á svæði 2 fara: Guðmundur Pétursson með tvo í tarfa, Alli með einn í tarf og einn í kú, Hafliði með einn í kú, Ragnar og Árni Vald með tvo hvor í kýr, Bergur með einn í tarf og einn í kú, Siggi Aðalsteins með þrjá í kýr og Bjarni með þrjá í kýr. Á svæði 3 fer Óli Örn með einn í kýr. Á svæði 5 fer Sævar með einn í tarf og tvo í kýr og Páll Leifsson með einn í kú. Á svæði 6 fer Reimar með einn í tarf. Á svæði 7 fer Ómar með einn í kú, Jónas Bjarki með einn í kú, Guðmundur Valur með þrjá í kýr og Þorri með tvo í kýr. Á svæði 8 fer Siggi Eymunds með einn í tarf. Spá næstu daga er góð og lítur vel út með að náist að fella kvótann á mörgum svæðum.
Lesa meira... 10.09.09 |
|
|
Kári Valur Hjörvarsson með 44 kg kú fellda á svæði 5 í Tröllabotnum í Seldal. Fellt með 243 og 100 gr Remington kúlu á 100 m færi. Leiðsögn Sigurgeir Jóhannsson.
|
|
9. sept. 2009 (myndir nýtt)
Þá eru aðeins 7 dagar eftir af veiðitímabilinu, enn er eftir að fella um 270 dýr af útgefnum kvóta. Veður er eins og best verður á kosið og spáin góð fyrir næstu daga á öllum svæðum.Margir leiðsögumenn á ferðinni í dag og margir veiðimenn. Á svæði 1 fara Eiríkur og Benni Óla. Á svæði 2 fara: Hafliði með einn í kú, Þorri með tvo í kýr, Danni með einn í kú, Gunnar Gutt með einn í kú, Skúli Ben með einn í kú, Óskar Bjarna með einn í kú, Guðmundur í Bessastaðagerði með einn í kú, Siggi með tvo í kýr og einn í tarf, Bjarni með þrjá í kýr, Einar Axels með tvo í kýr, Bergur með þrjá í tarfa, Ómar með einn í tarf, Jónas Bjarki með einn í tarf, Ragnar Arnars með tvo í kú og einn í tarf. Á svæði 3 fer Jón Egill með tvo í tarfa, Skúli Sveins með tvo í kýr og Stefán Kristmanns með einn í kú. Á svæði 4 fer Sævar með tvo í kýr og Ólafur Örn með tvo í kýr. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo í kýr, Þorsteinn með tvo í kýr, Friðrik með einn í kú og Jón Hávarður með einn í kú. Einar Hjörleifur með tvo í kýr, Össur með einn í kú. Á svæði 6 fer Maggi Karls með einn mann í kýr. Á svæði 7 fer Guðmundur Valur með tvo menn í tarfa og Stefán Gunnars og Guðmundur á Þvottá með tvo menn í kýr. Á svæði 8 fer Sigurður Eymunds með einn mann í tarf. Halldór fer á svæði 9 með menn í kýr.
Lesa meira... 09.09.09 |
|
|
Eyjólfur Þór Þórarinsson með 114 kg tarf felldan í Bótarheiði á sv. 2. Leiðsögn: Sigurður Aðalsteinsson.
|
|
8. sept. 2009 (myndir nýtt)
Enn er þokufullt á veiðislóð og nú bíða menn og vonast til að veðurspáin svíki ekki. Enn er eftir að veiða mörg dýr og ljóst er að allt þarf að ganga upp til að náist að klára á mörgum svæðum. Spáð er góðu veðri á öllum veiðisvæðum um helgina. Á svæði 1 fór Eiríkur Skjaldar með einn í tarf og tvo í kýr, á svæði 2 fer Siggi Aðalsteins með tvo menn í tarfa, Danni með þrjá í kýr, Þorri með einn í kú, Bergur með þrjá í tarfa, Einar Eiríks með einn í kú, Benni Óla með einn í kú. Ragnar Arnars með tvo í kýr, Árni Vald með tvo í kýr, Stefán Geir með einn í tarf og einn í kú. Á svæði 3 fer Skúli Sveins með einn í kú, á svæði 5 fer Sævar með tvo í kýr og Sigurgeir einnig með tvo í kýr. Á svæði 6 fer Magnús Karlsson með einn í kú. Á svæði 7 fer Guðmundur Valur.
Lesa meira... 08.09.09 |
|
|
Kristján Snorrason við hreinkú sína fellda á sv.1. Sérlega stór og falleg kýr sem vóg 54 kg. Leiðsögn: Aðalsteinn Jónsson
|
|
7. sept. 2009 (myndir nýtt)
Enn er komin þoka og rigning á hreindýraslóðum. Veður hefur heldur lagast er líða tekur á dag. Á svæði 1 fer Eiríkur með einn mann í tarf og tvo í kýr, Alli með einn mann í tarf og einn í kú, Skúli Ben. með einn í tarf og Stefán Geir með einn í tarf og annan í kú. Á svæði 2 fer Siggi Aðalsteins með þrjá í kýr, Bjarni Bergþórs með tvo í kýr, Guðmundur Pétursson með þrjá í kýr, Benni Óla með einn í kú, Snæbjörn með þrjá í kýr og Reimar með einn í tarf og annan í kú. Sævar fer með einn mann í kýr á svæði 5. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með sömu menn og náðu ekki að klára í gær. Þoka og rigning er víða og þá gengur ekki vel að veiða. Menn verða þó að halda áfram þar sem mikið er enn ófellt. Nú verða menn að treysta á gott veður síðustu 7 daga veiðitímans enda er veðurspá nokkuð góð.
Lesa meira... 07.09.09 |
|
6. sept. 2009
Þoka á veiðisvæðunum í morgun. Á svæði 1 og 2 fara allmargir leiðsögumenn: Eiríkur Skjaldar með tvo menn, Danni með tvo, Alli með einn, Einar Eiríks með tvo, Gunnar Gutt með tvo, Einar Axels með einn, Ómar með tvo, Jón Egill með einn, Bergur með einn, Hjörtur Kjerúlf með einn og Guðmundur Pétursson með einn. Á svæði 7 fer Rúnar með einn í kýr og Þorri með tvo. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með þrjá í kýr og Siggi á Borg með einn í tarf.
Lesa meira... 06.09.09 |
|
5. sept. 2009
Nú eru aðeins 10 dagar eftir af veiðitímanum. Margir stefna á veiðar í dag. Á svæði 1 fer Siggi Aðalsteins með þrjá menn. Á svæði 2 fara: Tóti Borgars með einn í tarf og tvo í kýr, Stefán Geir með einn í kú, Benni með einn í kú, Siggi Óla með einn í kú, Össur með einn í kú, Einar Eiríks með tvo í tarfa, Bjarni Berþórs með þrjá í kýr, Eiríkur með einn í kú, Alli með tvo í kýr, Jón Egill með einn í kú, Reimar með einn í kú, Ómar með tvo í kýr, Einar Axelss með einn í kú, Magnús Karlsson með tvo í kýr, Hjörtur Kjerúlf með þrjá í kýr. Á svæði 3 fer Skúli Sveins með einn í kú og Óttar með einn í kú. Haraldur fer með einn á sv. 4 í kýr. Á svæði 5 fer Sævar með tvo í tarfa, Sigurgeir með tvo í kýr og einn í tarf og Þorsteinn með tvo í kýr. Á svæði 7 fer Helgi með tvo í tarfa og einn í kú. Á svæði 8 fer Siggi Eymunds með þrjá í kýr.
Lesa meira... 05.09.09 |
|
|
Páll Björnsson t.h. með leiðsögumanni sínum Guðmundi á Þvottá við fallega hreinkú fellda á svæði 7.
|
|
4. sept 2009 (myndir nýtt)
Veður gott á öllum veiðisvæðum, hæviðri og þurrt. Margir stefna á veiðar í dag. Á svæði 1 fara: Benni Óla með tvo menn, Stefán Geir með einn og Pétur í Teigi með tvo. Á svæði 2 fara eftirtaldir: Siggi Aðalsteins með tvo í kýr, Siggi Óla með einn í kýr, Snæbjörn með þrjá í kýr, Ómar með tvo í kýr, Gunnar Gutt með einn í kú, Reimar með tvo í kýr, Tóti Borgars með einn í kú og annan í tarf. Sveinn Ingimars með tvo í tarfa, Magnús Karlsson með einn í tarf. Á svæði 3 fer Skúli Sveins með tvo í kýr og Stebbi Kristmanns með einn. Á svæði 4 fer Jón Egill með þrjá, Ólafur Örn með einn í kú, Björn Ingvars með tvo í kýr og Dagbjartur með einn í tarf. Á svæði 5 fer Sævar með tvo í kýr og Þorsteinn með einn. Á svæði 6 fer Agnar með einn í kú og Jóhann Steindórs með einn í kú, Á svæði 7 fer Stefán Gunnars með tvo í tarfa og einn í kú, Guðmundur á Þvottá með einn. Á svæði 8 fer Siggi á Borg með þrjá í kýr og Skúli Ben með einn. Á svæði 9 fer Halldór með þrjá í tarfa.
Lesa meira... 04.09.09 |
|
|
Jens K. Bernharðsson með sína fyrstu hreinkú fellda á svæði 2, kýrin vóg 40 kg. Leiðsögn. Óskar Bjarnason.
|
|
3. sept. 2009 (myndir nýtt)
Frábært veður á öllum veiðisvæðum. Margir stefna á hreindýraveiðar í dag. Á svæði 1 fer Eiríkur með tvo menn í taf og kú. Á svæði 2 fara: Stefán Geir með mann í tvo menn í tarfa og einn í kú, Reimar með tvo í kýr, Ómar með einn í kú, Hjörtur Kjerúlf með tvo í kýr, Alli í Klausturseli með þrjá í kýr, Þorri með þrjá í kýr, Óskar með tvo í kýr og Siggi Aðalst með tvo í kýr. Á svæði 3 fer Dagbjartur með einn í kýr, Tóti Borgars með tvo í kýr og Ólafur Örn með einn í tarf. Á svæði 4 fer Þorsteinn Aðalsteins með þrjá menn í kýr. Á svæði 5 fer Sigurgeir með þrjá menn í kýr og Friðrik með einn. Á svæði 6 fer Rúnar með einn í kú. Á svæði 7 fer Óttar með einn í kú, Guðmundur Valur með tvo í kýr, Albert með einn í kú, Stefán Gunnarss með tvo í kýr og Jónas Bjarki með tvo í tarfa. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með tvo í kýr, Sigurður Eymunds. með tvo í tarfa og Guðmundur á Þvottá með einn í kú.
Lesa meira... 03.09.09 |
|
2. sept. 2009
Nú er að birta yfir á öllum veiðisvæðum. Hægviðri og þurrt að mestu. Vonandi nýta menn daginn vel því tíminn styttist og mikið á eftir að fella af útgefnum kvóta. Á svæði 1 fer Snæbjörn með tvo í tarfa, Á svæði 2 fara eftirtaldir: Magnús Karlss. með einn í kú, Alli með tvo í kýr, Eiríkur með einn í kú, Einar Eiríks með tvo í kýr, Agnar Eiríks með einn í kú og Benni Óla með einn í kú. Á svæði 3 fer Dagbjartur með einn í kú, Skúli Sveins með einn í kú og Jón Egill með einn í tarf. Þorsteinn Aðalsteins ætlar á sv.4 með einn í kýr. Á svæði 5 fer Óli Gunnar með þrjá í kýr, Friðrik með einn í kú, Sigurgeir með tvo í kýr, Óli Gunnar með þrjá í kýr og Stebbi Kristmanns með einn í tarf. Á svæði 7 fer Jónas Bjarki með tvo menn í kú og tarf. Guðmundur Valur með tvo í tarfa, Sigvaldi með einn í tarf og Rúnar með einn í kú. Siggi á Borg fer með einn í tarf á sv.8, Stefán Gunnarsson með tvo í kýr og Sig. Eymundss með tvo í kýr.
Lesa meira... 02.09.09 |
|
1. sept. 2009
Þá eru 15 dagar eftir af veiðitímabilinu. Eftir daginn í dag kemur í ljós hver staðan er miðað við tímabilið í fyrra. Þoka og rigning var á veiðisvæðum 1 og 2 í morgun en hefur birt nú um hádegið. Á svæði 1 fer Eiríkur með einn mann í tarf og Snæbjörn með tvo menn í tarfa. Á svæði 2 fara Siggi Aðalsteins með einn í kýr, Óskar með einn í tarf, Danni með einn í tarf, Ómar með einn í tarf, Tóti með einn í tarf og annan í kú, Alli með tvo í kýr, Stefán Geir með einn í kú og Hafliði Hjarðar með tvo í kýr. Á svæði 3 fer Jón Egill með einn í tarf. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo í kýr, Sævar með tvo í kýr, Óli Gunnar með einn í kýr og Þorsteinn Aðalsteins með einn í tarf.Á svæði 8 fer Stefán Gunnarss með tvo í kýr, Stefán Helgi með þrjá í kýr og Siggi Eymunds með þrjá í kýr. Jónas Bjarki fer með einn mann á sv. 6 í tarf. Ekkert að frétta af öðrum svæðum.
Lesa meira... 01.09.09 |
|
31. ágúst 2009
Síðasti dagur ágústmánaðar runninn upp. Enn er eftir að fella mikið af þeim hreindýrum sem leyfi hafa verið gefin út fyrir. Veður er þokkalegt til veiða á flestum svæðum nú í dag en þó er þoka og rigning að trufla menn á sv. 1 og 2 og 3. Menn halda ótrauðir á veiðar. Á svæði 1 fer Danni með tvær skyttur í tarf og kú, Eiríkur Skjaldar með einn í tarf. Á svæði 2 eru farnir Ómar með tvo í kýr, Reimar með þrjá í kýr, Emil með þrjá í kýr, Hafliði með einn í tarf og einn í kú, Tóti með einn í kú og Stefán Geir með tvo í tarfa og einn í kú. Á svæði 5 fer Sævar með tvo í kýr. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með einn í kú og Sigurður Eymundsson með einn í tarf.
Lesa meira... 31.08.09 |
|
30. ágúst 2009
Það líður að lokum ágústmánaðar. Enn er eftir að fella mörg hreindýr af úhlutuðum kvóta þannig að veðrið þarf að verða hagstætt til að menn nái sínum dýrum. Nú verður að nota vel alla þá daga sem eftir eru. Í dag eru eftirtaldir leiðsögumenn á svæði 1: Eiríkur Skjaldar með tvo menn í tarfa, Tóti Borgars með tvo í tarfa og einn í kýr. Á svæði 2 eru eftirtaldir: Siggi Óla með þrjá í kýr, Siggi Aðalsteins með þrjá í kýr, Bjarni Bergþórss. með þrjá í kýr, Reimar með tvo í kýr, Ómar með einn í kú, Einar Eiríks með einn í kú, Einar Axelss með tvo í kýr og Guðmundur Péturss með einn í kú. Á svæði 3 fer Dagbjartur með einn kú og Jón Sigmar með annan. Á svæði 5 fer Sigurgeir með þrjá menn í kýr. Á svæði 7 fer Jónas Bjarki með einn í tarf, Guðmundur Valur með þrjá í kýr og Ragnar á Bragðavöllum með einn í kú, Sigurgeir með tvo í kýr. Stefán Gunnarsson fer með tvo menn á svæði 8 í kú og tarf, Skúli Ben með einn í kú og annan í tarf á sv 8 og Siggi á Borg með einn í tarf. Halldór ætlar með þrjá í tarfa á svæði 9.
Lesa meira... 30.08.09 |
|
29. ágúst 2009
Margir á veiðum í dag. Á svæði 1 fara Stefán Geir, Eiríkur Skjaldar og Tóti Borgars alls með 5 menn í tarfa og þrjá í kýr. Á svæði 2 fara með menn í kýr: Reimar með tvo, Ómar með tvo, Óskar með þrjá, Einar Axelsson með tvo, Bjarni Bergþórs með tvo, Siggi Aðalsteins með tvo, Guðmundur Pétursson með þrjá, Magnús Karlsson með þrjá, Einar Eiríksson með þrjá og Pétur í Teigi með einn. Hjörtur Kjerúlf með tvo í tarfa og einn í kú, Siggi Óla með tvo í kýr og einn í tarf. Dagbjartur með einn í tarf, Emil með einn í tarf. Jón Sigmar fór með einn mann í kýr á sv. 3. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo menn í kýr og einn í tarf, Hafliði með einn í tarf, Þorsteinn Aðalsteins með einn í tarf, Stefán Kristmanns með einn í kú og Óli Gunnar með einn í tarf. Á svæði 7 eru Albert og Helgi, Þorri með þrjá í kýr, Guðmundur Valur með einn í tarf. Á svæði fer Skúli Ben með þrjá í kýr, Siggi á Borg með tvo í tarf og kú, Stefán Helgi með þrjá í kýr.
Lesa meira... 29.08.09 |
|
28. ágúst 2009
Nú er skásta veiðiveðrið á syðstu svæðunum en rigning og þoka á Héraði á svæðum 1 og 2. Heldur virðist samt veðrið ætla að lagast er líður á dag. Menn stefna ótrauðir til veiða þrátt fyrir votviðrið. Á svæði 1 fer Eiríkur Skjaldar með tvo menn í kú og tarf. Pétur í Teigi fer með einn mann í tarf á sv. 1. Á svæði 2 fer Alli með þrjá í kýr, Stefán Geir með tvo menn í kýr og einn í tarf, Snæbjörn með einn í kú, Jón Hávarður með tvo í kýr, Einar Axelsson með þrjá menn í kýr, Danni með tvo í kýr, Ómar með einn í kú, Siggi Aðalsteins með einn í tarf, Óskar Bjarna með þrjá í kýr, Magnús Karlsson með þrjá í kýr. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo menn í kýr, Sævar með tvo menn í kýr og Óli Gunnar með einn í tarf. Á svæði 7 fer Þorri með þrjá menn og Stefán Gunnarsson með tvo. Skúli Ben fer með þrjá menn í kýr á svæði 8, Stefán Helgi með tvo menn í kýr á sv. 8, Sigurður Eymundsson með þrjá menn í kýr á svæði 8 og Siggi á Borg með einn í tarf.
Lesa meira... 28.08.09 |
|
27. ágúst 2009
Vegna tölvuvandamála tókst ekki að skrá þessar upplýsingar inn í morgun. Fyrst í morgun var sæmilegt veður á svæðum 1 og 2 en stutt í þokuna. Einnig var þoka á öðrum veiðisvæðum og fór að rigna seinni part dags. Nokkuð margir leiðsögumenn reyndu að fara á stað í morgun á svæði 1 og 2. Eftirtaldir fóru með veiðimenn í kýr. Eiríkur Skjaldar, Gunnar Gutt, Bjarni Bergþórs, Sigurgeir og Danni. Pétur í Teigi fór með mann í tarf á svæði 1. Á svæði 2 lagðist þokan yfir fyrir hádegi þar sem hreindýrin héldu sig yst í Fellaheiði. Nokkuð bjart var á svæðum 7 og 8. Á svæði 7 fóru Ómar með tvo í kýr, Stefán Gunnars með einn í tarf, Guðmundur á Þvottá með einn í tarf. Guðmundur Valur með tvo í tarf, Þorri með þrjá í kýr, Sigvaldi með þrjá í kýr og Albert og Helgi einnig með menn í kýr. Skúli Ben með þrjá menn í kýr á svæði 8 og Siggi Eymunds með einn í tarf.
Lesa meira... 27.08.09 |
|
26. ágúst 2009
Mjög gott veiðiveður á svæðum 1 og 2. Þangað fara eftirtaldir leiðsögumenn með veiðimenn í dag í kýr: Eiríkur Skjaldar með einn, Siggi Aðalsteins með þrjá, Siggi Óla með einn, Bjarni í Hjarðarhlíð með þrjá, Tóti Borgars með einn, Helgi Jensson með tvo, Skúli Sveins með einn, Einar Axelsson með einn, Snæbjörn með einn, Stefán Geir með einn. Ómar með einn í kýr og annan í tarf. Á svæði 1 fara Reimar með einn í tarf og Ólafur Örn með einn í tarf. Sævar og Sigurgeir fara á sv.5 ef þokunni léttir. Á svæði 7 fer Guðmundur Valur með tvo í tarfa. Á svæði 8 fer Skúli Ben með þrjá í kýr.
Lesa meira... 26.08.09 |
|
25. ágúst 2009
Hér kemur loks byrjun á veiðifréttum dagsins. Eftirtaldir leiðsögumenn fóru með veiðimenn sína á svæði 2 í kýr. Árni Jónss með þrjá, Ómar með þrjá, Benni Óla með tvo, Ólafur Gunnar með tvo, Alli með tvo, Siggi Aðalsteins með tvo, Einar Axelsson með tvo, Björn Ingvarss með tvo, Emil með einn, Stefán Geir með tvo, Vignir Jón með tvo, Tóti Borgars með einn, Eiríkur með tvo og Danni með einn í kú og annan í tarf, Guðmundur Pétursson með einn í tarf.. Á svæði 1 fór Ólafur Örn með einn í tarf og Pétur í Teigi með einn í kú og annan í tarf. Á svæði 6 fór Magnús Karlsson með tvo menn í tarfa. Á svæði fór Guðmundur á Þvottá með einn í kú og Albert með einn í kú. Veðrið á Héraði er hæg austanátt og gengur á með skúrum. Hjarðirnar halda sig í Fellabrúnum frá Ormarsstaðaá og útundir Sandvatn.
Lesa meira... 25.08.09 |
|
24. ágúst 2009
Rólegt yfir hreindýraveiðimönnum og leiðsögumönnum þeirra í dag. Í nótt og fram undir morgun var ausandi rigningarveður á Austurlandi. Þoka er enn víða á veiðisvæðum. Menn stefna til veiða á sv. 2 ef að léttir til og styttir upp. Eftirtaldir fara á svæði 2: Benni Óla með tvo í kýr, Stefán Geir með tvo í kýr, Siggi Aðalsteins með einn í kú, Snæbjörn með tvo í kýr, Ómar með tvo í kýr, Alli með þrjá í kýr, Gunnar Gutt með einn í kýr, Eiríkur með einn í kú. Helgi Jenss með tvo í tarfa á svæði 1.
Lesa meira... 24.08.09 |
|
23. ágúst 2009
Mun færri á veiðum í dag enda búið að spá rigningu er líður á dag. Þokan að koma á sum svæðin. Á svæði 1 fara: Hafliði Hjarðar með einn í tarf, Snæbjörn með einn í tarf og Helgi Jensson með tvo í tarfa. Á svæði 2 fara Ragnar og Árni með tvo menn í kýr, Stefán Geir með einn í kú, Danni með einn í kýr, Benni Óla með einn í kú á svæði 2. Jón Hávarður með tvo menn í kú og tarf, Ómar tvo menn í tarf og kú, Einar Axelsson með einn í kú, Siggi Aðalst. með tvo menn í kú og tarf, Björn Ingvarss með einn í kú. Stebbi Kristmanns fór með þrjá menn í kýr á sv. 5. Guðmundur Valur og Stefán Gunnars með tvo menn í tarfa á sv. 7.
Lesa meira... 23.08.09 |
|
|
Jónas Bjarki Björnsson með tarf sinn. Leiðsögumaður: Jóhann Steindórss.
|
|
22. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Bjart og stillt veður, gott til veiða á öllum svæðum. Á svæði 1 fer Eiríkur með þrjá menn í tarfa, Siggi Aðalsteins með tvo í tarfa og Andrés með einn í tarf. Á svæði 2 eru margir leiðsögumenn og margir veiðimenn með þeim, Siggi Óla, Ragnar Arnarss. Árni Vald, Einar Axelsson, Stefán Geir, Jón Hávarður, Árni Jónsson, Skúli Ben, Danni, Þorsteinn Jóhannss, Pétur í Teigi, Ólafur Örn, Helgi Jenss. og Jón Egill. Með þessum leiðsögumönnum eru 15 menn að veiða kýr og 5 að veiða tafa. Á svæði 3 fara Skúli Sveins og Dagbjartur með samtals 5 veiðimenn. Þorsteinn Aðalsteins fer á svæði 4 með tvo tarfamenn og Stebbi Kristmanns með einn í kú. Á svæði 5 fer Sævar Guðjónss. með þrjá menn í kýr. Á svæði 6 fer Jónas Bjarki með tvo tarfamenn. Á svæði 7 fer Sigvaldi með tvo menn í kýr, Guðmundur Valur með einn í kú, Albert með einn í kú, Rúnar með tvo í kýr, Jóhann Steindórss með einn í tarf. Siggi á Borg fer með þrjá menn í kýr á sv. 8 og Sigurður Eymundsson með einn. Halldór Guðmundss. fer með einn í kýr á sv. 9.
Lesa meira... 22.08.09 |
|
21. ágúst 2009
Fullt af mönnum á veiðum - koma uppýsingar þegar símarnir hætta að hringja. Margir á veiðum í dag. Norðvestanátt, þurrt að mestu en kalt. Á svæði 1 fara Siggi Aðalst með mann í tarf, Benni Óla með tvo menn í tarfa, Eiríkur með einn í kýr og Andrés með einn í kýr. Á svæði 2 fara: Helgi Jenss. með tvo menn í tarf og kú, Björn Ingv. með einn í tarf, Siggi Óla með þrjá í kýr, Ómar með tvo í tarfa og einn í kú, Stefán Geir með einn í kú, Guðmundur Péturss. með tvo í kýr, Einar Axelsson með einn í kú, Jón Egill með einn í kú, Danni með einn í kú, Alli í Klausturseli með þrjá í kýr, Óskar með einn í kú, Tóti með einn í kú, Árni Vald og Ragnar Arnar með tvo í kýr, Þórir með einn í tarf. Á svæði 5 fer Stebbi Kristmanns. með tvo í kýr, Sævar með tvo í kýr og Þorsteinn Aðalsteins með einn í kú. Á svæði 6 fer Árni Jónss, með einn í kú og tvo í tarfa, og Jóhann Steindórs með einn í tarf. Á svæði 7 fer Reimar með einn í kú, Jónas Bjarki með einn í kú, Stefán Gunnars með tvo í kýr, Guðmundur Valur með tvo í kýr og Albert með einn í kú. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með þrjá menn og Ríkarð með þrjá.
Lesa meira... 21.08.09 |
|
|
Þráinn Skúlason við hreinkú sína fellda á svæði 2 norðan Gilsárvatna með Sako cal 6,5x55. kúla TSX130 gr. Vigt 44 kg. Leiðsögumaður: Guðmundur Pétursson.
|
|
20. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Þá er runninn upp dagurinn 20. ágúst. Gæsaveiðitímabil hófst í morgun og mun trúlega umferð manna á hreindýraveiðislóð aukast til muna þar sem margir gæsaveiðimenn stunda veiðar á heiðum uppi næstu vikur. Álag veiðanna á nú eftir að aukast dag frá degi og eins gott að veður verði hagstætt. Ef allir dagar væru eins og þessi virðist ætla að verða þá geta menn verið fullir bjartsýni. Í fyrsta skipti í langan tíma er suðvestlægur eða vestlægur vindur á Héraði. Margir farnir á veiðar. Eiríkur fer á svæði 1 með þrjá í kýr, Andrés með tvo í kýr og Snæbjörn með einn. Á svæði tvö eru farnir með menn í kýr: Magnús Karls, Guðmundur Péturss, Þórir, Sveinn Ingimars, Alli í Klausturseli og Siggi Aðalsteinss. með samtals 9 skyttur í kýr. Helgi Jens fer með einn í kú og annan í tarf. Á svæði 3 fer Dagbjartur með einn í tarf og Jón Egill með tvo í kýr. Óli Örn fer með einn í kú á sv. 4 og Sigurgeir með tvo í tarfa. Á svæði 5 fer Sævar með þrjá í kýr, Á svæði 6 fer Rúnar með einn í tarf. Á svæði 7 fer Guðmundur á Þvottá með tvo í kýr, Albert með einn í tarf, Stefán Gunnars með einn í tarf og Jónas Bjarki með einn í tarf. Árni Jóns fer með einn í kýr á sv 7 og Guðmundur Valur með tvo í kýr annan á sv. 6 og hinn á svl. 7 ef vel gengur. Ómar fer með tvo á svæði 6 í tarf. Á svæði 8 fer Sigurður Eymundss með þrjá menn, Stefán Helgi með tvo og Sigurður á Borg með tvo í kýr.
Lesa meira... 20.08.09 |
|
19. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Mikil suðaustanrigning gengur nú yfir Austurland, ekki viðrar því vel til hreindýraveiða í dag. Aðeins eru leiðsögumenn búnir að skrá sig inn á svæði 1 og 2. Á svæði 1 fer Benni Óla með einn í tarf, Snæbjörn fer þangað með tvo einn í tarf og annan í kú, og Eiríkur fer með einn í kú. Eftirtaldir far á svæði 2. Magnús Karls með tvo í tarfa, Alli með tvo í kýr, Helgi Jenss. með einn í tarf og annan í kú, Tóti Borgars með einn í kú og Siggi Aðalst með einn í kú.
Lesa meira... 19.08.09 |
|
|
Friðrik Ingi Ágústsson við sína fyrstu hreinkú fellda austan Bessastaðavatna á Fljótsdalsheiði á sv. 2. Leiðsögn: Þórhallur Borgarsson.
|
|
18. ágúst 2009 (myndir)
Enn einn veiðidagur runninn upp. Bjart og fallegt veður á Héraði en lágskýjað á Fjörðum og þar gæti þokan gert mönnum erfitt fyrir. Á svæði 1 fer Eiríkur með einn mann í tarf. Á svæði 2 fer Tóti Borgars með þrjá í kýr, Einar Haralds með þrjá í kýr, Guðmundur Péturss. með einn í kú, Danni með tvo í kýr, Kolbeinn með tvo í kýr, Gunnar Gutt. með einn í kú, Siggi Aðalsteins með tvo í tarfa. Dagbjartur fer á svæði 3 með tvo menn í tarf og kú. Sæmundur fer með einn mann á sv. 4 í tarf. Sigurgeir, Sævar og Stebbi Kristmanns fara með samtals 7 menn í kýr á sv. 5. Ómar fer með einn mann í kú á sv. 7. Siggi á Borg fer með einn mann í kú á sv. 9. Fleiri eiga sennilega eftir að tilkynna sig er líður á dag.
Lesa meira... 18.08.09 |
|
|
Jón Ingi Guðmundsson ásamt leiðsögumanni sínum Sævari Guðjónssyni með 97 kg tarf felldan í Sandvík fyrir ofan Gerpisvatn.
|
|
17. ágúst 2009 (myndir)
Fallegt veður á Austurlandi og þokan hefur látið undan síga síðustu daga. Margir ætla því á hreindýraveiðar í dag eins og undanfarna daga. Á svæði tvö eru farnir eftirtaldir leiðsögumenn og veiðimenn þeirra. Ómar með einn í kú, Einar Eiríks með tvo í kýr, Árni Jónss. með einn í kú, Jón Hávarður með tvo í kýr, Alli í Klausturseli með tvo í kýr, Danni með einn í kú, Tóti Borgars með einn í kú. Snæbjörn ætlaði á sv. 1 með þrjá í kýr og Eiríkur með einn í tarf. Helgi Jenss. fer með einn í tarf á sv. 1 og tvo í kýr. Á svæði 3 fer Óli Örn með þrjá í kýr og Skúli Sveins með einn í tarf. Björn Ingvarss. fer með einn í tarf á sv. 4 og Dagbjartur með tvo í kýr. Sævar fer með þrjá í tarfa á sv. 5 og Þórir með einn. Stebbi Kristmanns fer með tvo í kýr á svæði 5 og Sigurgeir einnig með tvo. Á svæði 7 fer Stefán Gunnars með einn í kú. Þorri fer með tvo í kýr á sv. 7. og Rúnar með einn í kú. Guðmundur Valur fer með tvo í tarfa á svæði 7.
Lesa meira... 17.08.09 |
|
|
Feðgarnir Haukur B. Sigmarsson og Sigmar B. Hauksson við tarf sem Haukur felldi í Nýpnahálsi á Fellaheiði sv. 2. Leiðsögn: Þórhallur Borgarsson.
|
|
16. ágúst 2009 (mynd)
Þá eru eftir fjórar vikur af veiðitímanum, vonandi verður veðurfar hagstætt þar sem enn er eftir að fella meir en tvo þriðju hluta kvótans. Veður virðist ætla að vera þokkalegt í dag, þokan að lyfta sér víðast hvar. Á svæði 2 eru farnir: Siggi Óla með tvo, Siggi Aðalst með tvo, Ómar með einn, Magnús Karls með einn, Einar Eiríks með einn, Agnar Eiríks með einn, Dagbjartur með einn, Helgi Jenss með tvo, Kolbeinn með einn, Danni með einn, veiðimenn þeirra ætla að fella kýr. Árni Jónss fer með tvo í tarfa á sv. 2 og Óli Örn með einn í tarf á sv. 1. Tóti Borgars fer með tvo í tarfa og einn í kú. Á svæði 3 ætlar Óttar með einn í kú og Stebbi Kristmanns með annan, Þorri ætlar á sv 7 með þrjá menn í kýr og Sveinn Ingimars með tvo í tarfa. Ragnar Eiðss fer með einn í tarf á svæði 7 og Guðmundur á Þvottá með tvo. Jónas Bjarki fer á sv. 6 með tvo í tarfa og Siggi á Borg með tvo í kýr á sv. 8 og Stefán Gunnarsson einnig með tvo í kýr. Sævar fór með tvo í tarfa á sv. 5 og Þórir með einn.
Lesa meira... 16.08.09 |
|
|
Vigdís Ylfa Hreinsdóttir við sinn fyrsta hreintarf sem var felldur á Eyjabökkum á svæði 2. Vopn: Sabatti 270, 140 gr.kúla. Leiðsögumaður Snæbjörn Ólason.
|
|
15. ágúst 2009 (myndir)
Opnunarhátíð Ormsteitis héraðshátíðarinnar á Fljótsdalshéraði hófst í gær og næstu 10 dagana verður mikið um að vera á Héraði. Hreindýraskytturnar geta örugglega notið einhverra af þeim viðburðum fyrir eða eftir vel heppnaða veiðiferð. Margir fara til veiða í dag. Á svæði 2 eru farnir eftirtaldir veiðimenn með menn í kýr. Ómar, Emil, Jónas Bjarki, Helgi Jens. , Einar Eiríks, Einar Axels. Siggi Óla, Siggi Aðalst. og Þorri, samtals með þessum leiðsögumönnum eru 11 veiðimenn. Jón Hávarður bættist við með tvo í kýr og Alli með tvo í kýr og einn í tarf. Reimar fer með einn í tarf og annan í kú, Snæbjörn með einn í tarf og Hafliði með einn á sv 2. Eiríkur með einn í kú á sv. 1.. Pétur í Teigi og Óskar Bjarna ætluðu með þrjá tarfamenn á sv 1. Á svæði 3 fer Skúli Sveins með einn, Björn Ingvars með einn og Ólafur Örn með tvo, alla í kýr. Sigurgeir, Sævar og Páll Leifss. fara með samtals 8 menn í kýr á sv. 5. og Þórir með einn. Óttar með einn í kýr á sv. 6. Einar Har. með einn í tarf á sv. 7 og Valur með annan í tarf. Sveinn Ingimars fór með tvo á svæði 7 í tarfa. Rúnar ætlaði að kíkja á sv. 6 með einn tarfamann. Stefán Gunnars með einn í kú á svæði 2. Á svæði 8 fer Siggi á Borg með tvo veiðimenn og Sigurður Eymundss með þrjá allir ætla þeir að fella kýr.
Lesa meira... 15.08.09 |
|
14. ágúst 2009
Þokan lá neðarlega á veiðisvæðunum í morgun sennilega bjartast á syðstu svæðunum. Nú er heldur að létta til þegar kl. er orðinn 10:00. Margir ætla sér að veiða í dag en á sumum svæðum var útlitið ekki gott í morgun vegna þess hve þokan lá neðarlega. Á svæði 2 eru farnir með veiðimenn í kýr: Tóti Borgars, Kolbeinn Ara, Hafliði Hjarðar, Ómar, Reimar og Snæbjörn, samtals með 8 menn. Óskar Bjarna, Siggi Aðalsteins, og Helgi Jens fara með 5 tarfamenn á svæði 2. Ólafur Örn ætlaði að freista þess að finna tarfahópinn á sv. 1 með einn mann. Á svæði 5 fara Sævar og Páll Leifsson með 5 menn samtals og Þórir með einn, allir þessir menn ætla að fella kýr. Á svæði 7 fer Albert með tvo í kýr og Guðm. Valur með einn í tarf. Stefán Helgi ætlar með þrjá á svæði 8 í kýr og Skúli Ben. með tvo.
Lesa meira... 14.08.09 |
|
|
Atli Már Markússon við hreinkú sem hann felldi við Digravörðudrag í Klausturselsheiði, felld með Win.243 á um 150 metra færi. Kýrin var geld um 5-6 vetra og vóg 38 kg. Leiðsögumaður: Eiríkur Skjaldarson.
|
|
13. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Hjá sumum er 13 óhappatala en vonandi verður þrettándi ágúst happadagur fyrir þá sem stefna á að fella hreindýr í dag. Minni þoka í lofti og ætti að vera betra skyggni á flestum veiðisvæðum á Fjörðunum heldur en undanfarna daga. Óskar Bjarna og Siggi Aðalsteins ætla á svæði 1 með tvo menn hvor í tarfa. Á svæði 2 fara eftirtaldir leiðsögum. Eiríkur Skjaldar með einn í kú, Snæbjörn með tvo í kýr, Ómar með einn í tarf, Rúnar með tvo í tarfa og einn í kú, Þórir með einn í kú, Þórhallur Borgars með einn í kú og Guðmundur í Bessastaðagerði með tvo í kýr. Einar Axelss ætlar með einn í kú á sv. 6. Á svæði 7 fer Þorri með tvo í kýr og Albert með einn. Stefán Gunnars fer með einn á sv 8 í tarf. Óli Örn fer með einn í tarf á sv. 4. Sævar fer með tvo menn í kýr á svæði 5. Sigurgeir fer með einn mann á sv. 4 í tarf. Stebbi Kristmanns. og Skúli fara með tvo menn í kýr á sv 3.
Lesa meira... 13.08.09 |
|
12. ágúst 2009 (myndir)
Enn er hæglætisveður á Austurlandi. Þokan lætur frekar undan á Fjörðunum ef kemur vindur þannig að veiðimenn vona að eitthvað gerist í þá áttina er líður á dag. Á svæði 2 eru farnir nokkrir leiðsögumenn með veiðimönnum. Guðmundur Péturss. með þrjá tvo í kýr og einn í tarf, Ómar með einn og Magnús Karlss með einn. Alli í Klausturseli ætlaði með sína þrjá veiðimenn á stað er liði á morguninn. Reimar ætlar með tvo menn í kýr. Siggi Aðalsteins fer með einn tarfamann. Snæbjörn ætlaði á svæði 1 með einn mann í tarf og tvo í kýr. Þorsteinn Aðalst fer með einn mann í kú á sv. 5 og Sævar með þrjá. Valur á Lindarbrekku fer með tvo menn á sv. 7 í tarfa. Stefán Helgi fer á sv. 8 með þrjá menn tvo í tarfa og einn í kú. Sigurður Eymunds ætlaði einnig með sömu menn og í gær sem náðu ekki vegna þoku. 12.08.09 |
|
11. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Hægviðri á Austurlandi. Logn og þokuslæðingur víða, meiri þoka á Fjörðunum. Á svæði 2 fara Magnús Karls. með einn mann í tarf, Kolbeinn Ara með tvo menn í tarf og kú. Ragnar Ólafss. með tvo í kýr, Emil með tvo í kýr og Siggi með einn í kú. Reimar og Snæbjörn ætluðu að leita áfram með sína tarfamenn á sv. 1 ef þokunni létti. Sævar fer með tvo menn í kýr á sv. 5 og Friðrik með einn. Helgi Jens. fer með tvo tarfamenn á svæði 7 í tarfa, Stefán Gunnars með einn í tarf og Siggi á Borg með einn í tarf. Siggi Eymunds fer á svæði 8 með þrjá kýr og Stefán Helgi með einn í kú og tvo í tarf. Sigurgeir fór með tvo tarfamenn á sv. 4.
Lesa meira... 11.08.09 |
|
|
Jón Gunnar Mýrdal og Steinunn Gunnarsdóttir við 85 kílóa tarf Jóns sem felldur var á Fljósdalsheiði. Skotinn á 200 m færi með Cal 308. Leiðsögn: Dagbjartur Jónsson.
|
|
10. ágúst 2009 (myndir)
Mánudagar eru oft rólegir á hreindýraveiðum. Nú eru farnir á stað nokkrir veiðimenn með sínum leiðsögumönnum. Á svæði 2 eru farnir með veiðimenn sem ætla að fella kýr: Ómar með einn, Emil með einn, Jónas Bjarki með einn, Einar Eiríks með einn og Alli með einn. Siggi Aðalsteins fer með einn í tarf, Tóti með einn í tarf og Dagbjartur með einn. Reimar fer á svæði 1 með tvo tarfamenn. Rúnar fer með einn mann í kýr á svæði 7. Sævar fer með tvo menn í kýr á svæði 5. Óli Örn fer með einn mann í kýr á svæði 4. Helgi Jenss. fer með einn tarfamann á sv. 3. Eiríkur Skjaldar fer með þrjá menn í kýr á sv. 2.
Lesa meira... 10.08.09 |
|
|
Bráðin dregin að slóð. ,,Gorfólk" Lovísa Ósk og Orri með kúna í drætti og skyttan Ólafur Steingrímsson gengur á eftir. Leiðsögumaður: Emil Björnsson.
|
|
9. ágúst 2009 ( mynd nýtt)
Mjög gott veður á svæði 1 og 2 og sennilega þokkalegt á öðrum svæðum. Á svæði 2 eru farnir: Siggi Aðalsteins, Reimar, og Danni með samtals 5 menn í kýr. Siggi Óla fer með þrjá menn í tarfa. Snæbjörn ætlar á sv. 1 með tvo tarfamenn. Skúli Sveins fer með einn á sv 3 í kýr. Stebbi Kristmanns fer með einn tarfamann á svæði 4. Sævar fer með einn mann í kýr á svæði 5 og Þorsteinn Aðalst með tvo tarfamenn. Helgi Jenss. fer með mann í kýr á svæði 7 og Albert með einn í tarf. Siggi Eymunds fer með einn mann í kýr á sv 8 og Stefán Helgi með tvo menn í kýr og einn tarfamann.
Lesa meira... 09.08.09 |
|
|
Bragi Valur Emilsson við tarf sinn felldan á sv.3 í Hrævardal í um 700 m h y.s. Tarfurinn vigtaði 111 kíló. Leiðsögumaður: Jón Egill Sveinsson.
|
|
8. ágúst 2009 (myndir)
Nú er mjö gott veiðiveður á Héraði og þokkalegt á næstu Fjarðasvæðunum en þokufyllra eftir því sem sunnar dregur. Magir farnir til veiða. Á svæði 2 eru: Reimar, Einar E., Kolbeinn Ara., Siggi Aðalst, Siggi Óla, Ragnar Arnars, Árni Vald, Þorsteinn Jóh. með samtals 14 skyttur sem ætla að fella kýr. Ómar með einn mann í tarf. Á svæði 3 fóru Skúli Sveins og Stefán Krism. með þrjá menn í kýr og Jón Egill með einn í tarf. Sævar og Andrés fara með fjóra menn í tarfa á sv.5 en þar hefur þokan verið að stíða mönnum. Óli Örn fer með tvo menn í kýr á sv. 4. Jónas Bjarki fer með tarfamann á sv 6 og Rúnar með einn mann á svæði 7 í kýr. Siggi á Borg ætlar á sv. 8 ef birtir til með tvo menn í kýr.
Lesa meira... 08.08.09 |
|
|
Sveinn Orri Sveinsson með kú sem hann felldi á Fljótsdalsheiði við Vegufs. Leiðsögumaður hans Árni Valdimarsson stendur að baki honum. Kýrin vóg 44 kg. Vopnið sem notað var Sako 6,5x55, kúla Sierra Spitzer 120 gr.
|
|
7. ágúst 2009 (mynd)
Veiðiverður mjög gott á svæði 1 og 2. Virðist vera þoka og rigning á öðrum svæðum en sennilega er þokkalegt skyggni á hluta af svæðum 3 og 4. Veiðimenn farnir á stað með sínum leiðsögumönnum á svæði 2: Össur, Ragnar A, Árni Vald., Snæbjörn, Einar Eiríks, Ómar, Siggi Aðalsteins og Danni eru þar með samtals 13 veiðimenn sem ætla að fella kýr. Reimar fer með einn tarfamann og Eiríkur fer á sv 1 með tvo tarfamenn. Albert ætlaði að kíkja á sv. 7 ef veðrið yrði hagstætt með einn mann í kýr. Ástvaldur og Andrés ætla að reyna á sv. 5 ef þokunni léttir eitthvað en rigning og þoka virðist vera á veiðisvæðunum þar. Skúli Sveins fer með tvo veiðimenn í Loðmundarfjörð á sv 3 sem ætla að fella kýr og Jón Hávarður fer með einn mann í tarf á sv. 3. Sævar farinn á stað á sv 5 með þrjá tarfamenn og Óli Örn með einn á sv. 4. Tóti Borgars fór á svæði 3 með einn mann í kýr.
Lesa meira... 07.08.09 |
|
6. ágúst 2009
Mikið er um að vera á svæði 2 þangað eru farnir eftirtaldir leiðsögumenn með veiðimenn sem ætla að fella kýr. Emil með einn, Ragnar Arnars. með þrjá, Einar Eiríks. með einn, Siggi Aðalsteins með tvo, Guðmundur Péturss. með einn, Össur með þrjá menn, Alli í Klausturseli með tvo menn. Ómar fer með einn tarfamann og Gunnar Gutt með annan. Reimar ætlaði með tvo menn á sv 1 og Eiríkur Skjaldar einnig með tvo. Stefán Kristmanns fer með einn á sv. 3 í kýr og Ólafur Örn með einn í kýr á sv. 4. Ástvaldur ætlar á sv. 5 með einn tarfamann ef þokunni léttir.
Lesa meira... 06.08.09 |
|
|
Helgi Hallgrímsson við tarf sinn sem felldur var við Gilsárvötn á sv.2 með Tikka 308. Leiðsögumaður Danni á Vaðbrekku.
|
|
5. ágúst 2009 (myndir nýtt)
Búið að rigna mikið á Héraði í nótt og undir morgun, en nú undir hádegi er þokan að láta undan og farið að glitta í sólina annað slagið. Ef skoðaðar eru vefmyndavélar á Fjörðunum þá sést að þar er svarta þoka. Margir veiðimenn farnir með leiðsögumönnum sínum á svæði 2. Eiríkur Skjaldar með einn mann í tarf, Ómar með tvo menn í tarfa, Danni með tvo menn, Siggi Aðalst. með tvo menn í tarf og kýr, Össur með þrjá í kýr, Jón Hávarður með tvo í kýr, Ástvaldur með einn í kýr, Tóti Borgars með einn í tarf. Ragnar Arnars með tvo í kýr. Reimar fer með tvo menn í tarfa á sv.1
Lesa meira... 05.08.09 |
|
|
Þórir Hálfdánarson með hreinkú fellda við Gilsárvötn á svæði 2. Leiðsögn: Þórhallur Borgarsson.
|
|
4. ágúst 2009 (mynd)
Þokkalegt veiðiveður á sv. 2 en þoka á Fjörðunum. Nokkrir leiðsögumenn lagðir á stað á sv. 2: Stefán Kristmanns með einn í kýr, Vigfús með einn í kýr, Björn Ingvars með einn í kýr, Danni með þrjá í kýr, Eiríkur með einn í kýr, Ragnar Arnars. með tvo í kýr, Tóti Borgars með einn í kýr. Siggi Aðalst með einn tarfaveiðimann. Menn stefndu á Vesturöræfin og einnig í hóp við Þrælaháls.
Lesa meira... 04.08.09 |
|
|
Björn Hjálmarsson með væna kú 38 kg og kálf 21 kg, fellt var í Geithellnadal á sv. 7 . Leiðsögn: Jónas Bjarki.
|
|
3. ágúst 2009 (mynd)
Enn er þokuloft og rigning á Héraði og einnig á Fjörðunum. Heldur er þó að létta til. Mjög blautt er orðið í öllum slóðum og besti skófatnaður þessa dagana eru stígvélin. Margir veiðimenn stefna á að veiða á svæði 2 í dag. Allmargir leiðsögumenn eru farnir á stað. Óskar Bjarna, Siggi Aðalsteins, Ómar, Emil, Skúli Ben. Reimar og Gunnar Gutt. eru samtals með 12 veiðimenn. Flestir eru að fara að fella kýr. Jónas Bjarki fer með mann á sv. 7 í kýr og einnig Siggi Eymunds á svæði 8 með mann í kýr. Sævar og Þorsteinn Aðalsteins ætla á stað á svæði 5 ef þokunni léttir með tvær skyttur. Sigvaldi fór með veiðimann í tarf á sv. 7. Stefán Kristmanns ætlaði að kíkja á sv. 3 með tvær skyttur í kýr. Eiríkur fór með tvo tarfamenn á sv. 2. Komið besta veiðiveður á Fljótsdalsheiðinni.
Lesa meira... 03.08.09 |
|
2. ágúst 2009
Mikil rigning búin að vera á Héraði í nótt og þokuloft. Besta veiðiveðrið er nú á svæðum 8 og 9. Dálítið óljóst um hvernig veður verður á öðrum veiðisvæðum í dag en gæti verið betra inn til landsins heldur en út við stöndina. Sigurður Eymunds fer með einn mann í kýr á sv 8. Veiðimenn bíða enn átekta á öðrum veiðisvæðum og sjá hvort þokunni léttir. Reimar farinn með einn veiðimann í kýr, Siggi Aðalst. með tvo í kýr og Siggi Óla með einn, allir á svæði 2. Valur fór með einn mann í tarf á sv. 7 og felldi sá veiðimaður tarf um hádegi. Veiðimaður með Reimari milli Þrælahálss og Eyvindarfjalla þar var 100 dýra hjörð. Veiðimenn með Sigga Aðalssteins felldu á Tungunni inn af Þuríðarstaðadal. Tvær kýr felldar á svæði 5 seint í gær, veiðimenn með Sævari og Páli Leifss. Veiðm. með Sigga Eymunds felldi einnig kýr á svæði 8. 02.08.09 |
|
|
Hilmar Stefánsson með sína fyrstu hreinkú. Felld á Vesturöræfum. Leiðs. og ljósm. Sig. Aðalsteinss.
|
|
1. ágúst 2009 (mynd)
Fyrsti dagur ágústmánaðar, fyrir hreindýraskyttur merkir sá dagur það að hefja má veiðar á kúm og kálfum er undir þeim ganga. Laugardagur og verslunarmannahelgi en veðrið á Austurlandi eins og síðustu daga, þoka og rigning í nótt en nú hefur heldur rofað til á víða á veiðislóð. Á svæði 2 eru nokkuð margir leiðsögumenn farnir til að fella kýr. Óskar Bjarna með tvo, Jón Hávarður með einn, Björn Ingvars. með einn, Siggi Aðalsteins með einn og Albert með einn. Gunnar Gutt fer með einn tarfamann. Á svæði 5 fer Sævar með þrjá veiðimenn í tarfa og Stebbi Kristmanns með tvo í kýr. Ómar fer einnig þangað með einn í tarf. Siggi Eymunds fór á sv 8 með einn tarfamann.
Lesa meira... 01.08.09 |
|
31. júlí 2009
Þokan lá frekar lágt yfir Austurlandi í nótt en nú er heldur að létta til. Tarfaveiðimenn eru víða í startholum og sumir sem ætluðu að vera búnir að veiða fyrir helgina og trúlega komast heim í faðm fjölskyldunnar. Svona eru nú veiðar það gengur ekki allt upp og spilar veðrið þar oft stóra rullu. Nú er farnir á stað eftirtaldir leiðsögumenn með skyttur. Magnús Karlsson farin á stað á sv. 6, Eiríkur farinn á sv. 1 og einnig Reimar. Emil fór á sv. 2. og Siggi Aðalsteins fer á stað einnig á sv. 2 er þokan lyftir sér. Sævar bjóst við að fara á sv 5 ef þokunni létti nægjanlega mikið og einnig Sigvaldi á sv. 7 og Sigurður Eymundss á sv. 8. Á morgun þann 1. ágúst má svo byrja að fella kýrnar.
Lesa meira... 31.07.09 |
|
30. júlí 2009
Þokan er heldur að lyfta sér á Héraði og einnig á Fjörðunum. Skytturnar bíða og vona að skyggni verði betra í gær. Rúnar ætlaði á stað með tvo veiðimenn á sv.7 ef létti til. Eiríkur fer á sv. 2 með einn, Siggi Aðalsteins með tvo menn og Ómar með einn. Sævar ætlar með tvær skyttur á sv. 5. Skúli Sveins fer með mann á sv. 3 . Magnús Karlsson fer á svæði 6 með tvo menn. Viðar Péturss. fer með einn mann á sv. 6
Lesa meira... 30.07.09 |
|
|
Þórður Bogason t.h. með tarf felldan á sv 8. og leiðsögumaður hans Sigurður á Borg.
|
|
29. júlí 2009 (mynd)
Enn er fremur þungskýjað á Austurlandi en rigningin hefur minnkað frá í gær og víða orðið þurrviðri. Norðaustlægar áttir í kortunum. Ómar farinn á stað á sv. 2 með þrjár skyttur. Siggi Aðalst fer með einn veiðimann einnig á sv. Eiríkur Skjaldar ætlar einni með einn veiðimann á 1 eða 2 fer eftir skyggninu. Einnig fara þeir á stað sem ekki náðu í gær á öðrum svæðum. Maggi Karls á sv. 6, Sævar á sv. 5, og Siggi á Borg á sv.8. en þar fer einnig Siggi Eymunds með einn veiðimann.
Lesa meira... 29.07.09 |
|
28. júlí 2009
Þoka og rigning á Héraði. Örugglega erfitt veiðiveður nema létti til er líður á daginn. Sennilega bjartara á Suðurfjörðunum og á svæðum 8 og 9. Menn eru í startholum ef léttir til. Magnús Karlss ætlar með mann á sv. 6. Reimar, Albert og Ómar eru einnig til búnir að fara á sv.2 ef léttir til og með þeim fjórar skyttur. Bjartara inn til landsins og ofangreindir farnir með veiðimenn á sv.2. Sigurður á Borg fer með eina skyttu á sv. 8. Sævar farinn á stað á sv. 5 með tvær skyttur þar var ekkert veður né skyggni í gær en hann vonaði að létti meira til er liði á dag.
Lesa meira... 28.07.09 |
|
27. júlí 2009
Norðaustan áttin að sækja í sig veðrið hér fyrir austan. Nokkrir veiðimenn ætla sér að fella tarfa í dag og tóku daginn snemma til að sleppa við þokuna sem örugglega á eftir að sækja á er líður á dag. Reimar, Albert Jenss. og Ómar fóru á svæði 2 með eina skyttu hver. Sævar fór á sv. 5. með einn veiðimann og Sigurgeir á sv. 4 með einn. Þorri fór með skyttu á svæði 6 seinnipart dags.
Lesa meira... 27.07.09 |
|
26. júlí 2009
Rólegt yfir veiðum í dag. Sævar fór með einn mann á sv. 5 og Sigurður Eymundss. með veiðimann á sv. 8., Eiríkur með veiðimann á sv. 1. Veiðimaður með Sævari veiddi á Barðsnesi þar voru nokkri þokkalegir tarfar. Siggi Eym. fór ekki með mann eins og hann ætlaði þar sem þoka var í fjöllum. Nú lítur út fyrir norðan og norðaustlægar áttir næstu daga þannig að þokan á örugglega eftir að tefja fyrir veiðum. Annar er þá oft bjart á sv. 8 og sv. 9. Veiðmaður með Eiríki felldi á svæði 1 utan við Sandfell. 26.07.09 |
|
25. júlí 2009
Ómar farinn á stað á svæði 2 með tvo veiðimenn. Stefán Kristm. farinn með einn veiðimann á sv. 5 og Rúnar Ásg. með einn á svæði 7. Þorsteinn Aðalst. farinn með veiðimann á sv. 5. Bjart og fallegt veður um mest allt Austurland. Sævar farin í Sandvík á sv 5 með einn veiðimann, Einar Axelsson farin á sv. 2 með einn, Eiríkur Skjaldar með einn veiðimann á sv. 1
Lesa meira... 25.07.09 |
|
24. júlí 2009
Bjart og fallegt veður á Austulandi virðist vera gott veiðiveður á öllum veiðisvæðum - en enginn enn skráður á veiðar í dag. Veðurspár hafa verið mjög villandi síðustu daga og sett strik í reikninginn. Menn hafa hugsanlega frestað komu sinni þessvegna.
Lesa meira... 24.07.09 |
|
|
María Gunnarsdóttir við tarf sinn felldan á sv.2 í Gerðisslakka í Fljótsdal. Leiðsögumaður hennar var Einar Axelsson.
|
|
23. júlí 2009 (mynd)
Kalt á Héraði en ekki mikil úrkoma. Stillt veður en hiti fór niður undir frostmark á heiðum uppi. Reimar farinn á stað með veiðimann á sv. 2, einnig er Siggi Aðalsteins þar með tvær skyttur og Einar Axelsson með einn veiðimann.
Lesa meira... 23.07.09 |
|
22. júlí 2009
Þá eru fyrstu sjö dagar tímabilsins liðnir búið er að fella 23 tarfa sem er mun minna en fellt var fyrstu en þá voru felldir 43 tarfar. Sennilega hefur eitthvað að segja að tarfakvótinn er nú lægri en í fyrra en einnig hefur þokutíð spillt fyrir. Ekki virðast margir ætla til veiða í dag. Siggi Aðalsteins er að fara með tvo veiðimenn á sv.1. og Ómar fer með einn á sv. 2. Stefán Gunnarss fer með einum veiðimanni á sv. 7. Sævar og Páll Leifsson fóru um hádegið á stað á svæði 5 með tvo veiðimenn.
Lesa meira... 22.07.09 |
|
21. júlí 2009
Þokkalegt veður til hreindýraveiða, úrkomulaust að mestu en þokubakkar víða. Dagbjartur með veiðimann á sv. 3, Reimar með einn á sv. 2, Sævar með einn á sv. 5 og Páll Leifss. með annan á sv. 5.
Lesa meira... 21.07.09 |
|
20. júlí 2008
Siggi á Borg farinn með veiðimann af stað á svæði 8.
Lesa meira... 20.07.09 |
|
19. júlí 2009
Siggi á Borg farinn á stað á svæði 9 fann ekkert í gær. Jóhann Steindórsson ætlar með tvo menn á svæði 6 í Breiðdal. Ekki fleiri lagðir á stað en veður er að verða þokkalegt en þó enn þoka á fjöllum sums staðar.
Lesa meira... 19.07.09 |
|
18. júlí 2009
Hægviðri og gott veður á hreindýraslóðum en þoka enn frekar neðarlega víða í fjalllendi. Menn verða sennilega að bíða átekta fram eftir degi til að fá betra skyggni. Albert ætlar á sv 7 með tvo menn. Siggi á Borg fer á svæði 9 með 1 mann. Hafliði Hjarðar ætlar á sv. 1 með einn mann. Sennilega bætast fleiri tilkynningar við er líður á dag
Lesa meira... 18.07.09 |
|
17. júlí 2009
Rólegt yfir hreindýraveiðimönnum í dag. Menn eru að bíða eftir því að þokunni létti víðast hvar. Stefán Kristmannss. fór með veiðimann á sv. 3 og felldu þeir tarf utan við Eyland í Hjaltastaðarþinghá úr ríflega 40 tarfa hópi. Reimar fór með einn veiðimann á sv 1/2. Fleiri ekki tilkynnt sig til veiða. Trúlega verður meira um að vera um helgina ef veður verður gott. 17.07.09 |
|
16. júlí 2009
Enginn enn skráð sig á veiðar í dag - Þoka og rigning á Héraði.
Lesa meira... 16.07.09 |
|
|
Jón Frímannsson 77 ára og leiðsögumaður hans, Einar Axelsson. Sagði Jón að þó tarfurinn hefði mátt vera stærri þá væri hann nógur í matinn fyrir sig og sína, felldur í sól og blíðu í Fljótsdalnum.
|
|
15. júlí 2009 (mynd) Upphafsdagur veiða
Á fyrsta degi veiðitímabilsins voru felldir 5 tarfar. Einar Axels fór með mann í Fljótsdalinn á svæði 2 og felldi sá veiðimaður tarf út 10 tarfa hópi skammt frá Þuríðarstöðum. Skúli Sveins. var með mann á svæði 3 og felldu þeir tarf í Hjaltastaðarþinghá skammt frá Klúku. Á svæði 4 voru tveir leiðsögumenn og sex veiðimenn en ekki tókst að fella nema einn tarf og var hann felldur að norðanverðu við fjörðinn af veiðimanni með Sigurgeir. Ekkert var fellt á sv. 5. Á svæði 6 var felldur tarfur í Skriðdalnum veiðimaður með Magnúsi Karlss. Á svæði 7 felldi veiðimaður með Sigurði á Borg skammt frá Snjótindi. Norðaustanáttin var stíf undir kvöldið og víða komin rigning og þoka.
Lesa meira... 14.07.09 |
|
15. sept. 2008 Lokadagur.
Síðasti dagur veiðtímabilsins. Á svæði 1 fóru Eiríkur Skjaldar og Sveinn Ingimars. með síðustu tarfamennina á sv. 1 og 2. Á svæði 2 fóru Siggi Aðalst. Gunnar Gutt, og Siggi Óla. Á svæði 3 fóru Skúli Sveins og Ólafur Örn en þar var ekki búið að finna kýrnar í morgun, þannig að líklegt er að þar verði eitthvað eftir af kvótanum. Á svæði 5 fór Sævar með þrjá menn í kýr. Á svæði 7 fór Albert með síðasta tarfamanninn. Á svæði 8. fór Stefán Helgi með þrjá veiðimenn. Á svæði 9 fór Siggi á Borg með þrjá menn og Halldór átti einnig von á mönnum til sín. Samkvæmt skráningu voru 35 dýr ófelld í morgun. Sennilega liggur það ekki fyrir fyrr en í fyrramálið hve mikið verður eftir af kvótanum. Veður gott nema á sv. 7 og 8 þar sem gekk á með rigningarskúrum.
Lesa meira... 15.09.08 |
|
|
Björn Davíðsson „VF1G“ 42. kg kýr felld á Vöðlavíkurheiði sv.5. Leiðsögumaður: Sævar Guðj.
|
|
14. sept. 2008 (mynd)
Næstsíðasti dagur veiðitímans. Á svæði 1 fóru Eiríkur Skjaldar og Siggi Aðalst. með þrjá veiðimenn. Á svæði 2 fóru Bjarni, Gunnar Gutt og Dagbjartur með einn mann hver í kýr og Helgi Jens með einn í tarf. Á svæði 3. fóru Ólafur Örn og Skúli Sveins. með 6 veiðimenn. Á svæði 5 fór Sævar. Á svæði 7 fóru: Stefán Gunnarss. og Jónas Bjarki. Á svæði 8 fóru Albert með tvo í tarfa og Skúli Ben með einn í kýr. Á svæði 9 fór Halldór með menn í kýr og Siggi á Borg með mann í tarfa. Þegar þetta er ritað þá er búið að tilkynna um veiðar á tveimur törfum á sv. 1. og einum á svæði 2. Á svæði 2 er búið að tilkynna um veiðar á tveim kúm. Á svæði 5 voru felldar þrjár kýr og einn tarfur. Á svæði 7 var felld ein kýr og á svæði 8 tveir tarfar. Á svæði 9 voru felldar fjórar kýr. 14.09.08 |
|
13. sept. 2008
Gott veiðiveður á sv. 1 og 2 en lakara annars staðar og versnar eftir því sem sunnar dregur.Á svæði 1 fóru Eiríkur Skjaldar, Siggi Aðalst. og Alli. Á svæði 2 fóru Helgi Jenss. Bjarni, Óskar, Einar Axelss, Reimar og Þórarinn Rögnv. Ekki mikið eftir þannig að þessir síðustu dagar verða rólegir. Á svæði 3 fóru Dagbjartur, Skúli Sveins og Ólafur Örn. þar var þoka með köflum. Á svæði 8 fóru Albert og Stefán Gunnars. Halldór er á svæði 9.
Lesa meira... 13.09.08 |
|
|
Þórir Schöith með tarf sinn felldan á sv.1. Leiðsögum. Björn Ingvarsson.
|
|
12. sept. 2008 (mynd)
Nú er veðrið betra á veiðislóð. Margir halda til veiða í dag. Á svæði 1 fara Stefán Geir, Snæbjörn, Eiríkur Skjaldar., Alli í Klausturseli og Siggi Aðalst. samtals með 9 veiðimenn. Á svæði 2 fara nokkuð margir veiðimenn. Danni með tvo, Reimar með tvo, Maggi Karls. með tvo, Einar Eiríks með þrjá, Össur með tvo, Skúli Ben., Gunnar Gutt. með einn, Einar Axelss með einn og Sæmundur með einn. Á svæði 3 fer Skúli Sveins með einn í kýr. Á svæði 4 fóru Ólafur Örn með tvo menn og Óli Gunnar með tvo, eru það síðustu veiðimennirnir á sv. 4 þetta árið. Á svæði 5 ætlaði Sævar ef þokunni myndi létta. Á svæði 6 er veiðum lokið fyrir nokkru. Á svæði 7 fóru Guðmundur Valur, Guðm. á Þvottá, Stefán Gunnars, Jónas Bjarki, Þorri Magg. og Albert. Á svæði 8 fór Siggi Eymunds. Á svæði 9 fóru Siggi á Borg og Halldór Guðm.
Lesa meira... 12.09.08 |
|
11. sept. 2008
Þoka og rigning var það veður sem mætti hreindýraveiðimönnum í morgun. Haldið var til veiða á svæði 2. Sæmundur, Skúli Ben, Reimar, Siggi Aðalst. Einar Eiríkss. og Danni fóru þangað með 13 veiðimenn. Á svæði 1 fór Alli í Klausturseli. Lítið gekk framan af degi en heldur hefur létt til er líður á daginn. Á svæði 9 fór Siggi á Borg og einnig Halldór. Betri veðurspá á morgun og sennilega verður þokkalegt veiðiveður víða um svæðið.
Lesa meira... 11.09.08 |
|
10. sept. 2008
Þoka og rigning fáir á veiðum. Siggi Aðalsteins fór á svæði 2 og einnig Skúli Ben. Alli og Sveinn Ingimarss. fóru á svæði 1 að leita tarfa en þar fannst ekkert fyrir þoku. Ein kýr veiddist á svæði 2 inn við Hafursárufs þegar rofaði til í þokuna. Menn vonast eftir betra veðri á morgun en spáin fyrir föstudaginn virðist nokkuð góð og það gæti líka orðið sæmilegast veður um helgina ef langtímaspár ganga eftir. 10.09.08 |
|
9. sept. 2008
Þá er síðasta vika þessa veiðitímabils hafin. Þoka í morgun á svæðunum frá svæðum 9 - 4 en skárra á svæði 1 og 2. Ekki skráðu margir sig til veiða í dag. Á svæði 1 fóru Siggi Aðalst, Snæbjörn og Eiríkur Skjaldar í tarfa. Á svæði 2 fóru Alli, Ómar, Reimar, Guðmundur P. og Óskar, þeirra veiðimenn ætluðu að fella kýr. Á svæði 3 fóru Skúli Sveins og Óli Örn með menn í kýr. Á svæði 7 fór Albert með mann í kýr. Veðurútlit ekki gott næstu daga - gæti orðið þokufullt og rigning.
Lesa meira... 09.09.08 |
|
8. sept. 2008
Þegar þessum veiðidegi líkur eru aðeins eftir 7 dagar af veiðitíma. Nokkuð er enn eftir að fella og virðist að veðrið gæti leikið menn grátt nú næstu daga á svæðum þar sem þokusælt er. Nokkrir farnir til veiða í dag. Á svæði 1 fóru: Siggi Aðalsteins, Óskar Bjarna og Reimar. Á svæði 2 fóru Guðmundur Péturss, Snæbjörn, Eiríkur, Ómar og Agnar. Á svæði 3 fór Jón Egill. Á svæði 5 fóru Friðrik og Sævar. Á svæði 7 fóru Jónas Bjarki og Albert. Á svæði 8 fór Skúli Ben og á svæði 9 Siggi á Borg.
Lesa meira... 08.09.08 |
|
7. sept. 2008
Margir stefna á veiðar í dag enda gott veður. Jón Hávarður, Eiríkur, Hákon, Siggi Aðalst. fóru á svæði 1. Á svæði 2 fara Helgi Jenss, Gunnar Gutt., Einar Axelss, Þórarinn Rögnv. Snæbjörn, Reimar og Tóti. Á svæði 5 fara Þorsteinn, Óli Gunnar, Páll Leifss. og Friðrik. Á svæði 7 virðist rólegt í dag. Á svæði 8 fara Siggi á Borg, Siggi Eymunds og Stefán Helgi. Hugsanlega eiga fl. eftir að hringja sig inn. Skúli Sveins fór á sv. 4 með einn mann. Björn Ingvars á sv. 3 með einn mann.
Lesa meira... 07.09.08 |
|
|
Ólafur Þór Jóhannsson með 116 kg tarf felldan í Veturhúsaskarði á sv. 7. Leiðsögumaður Guðmundur Valur.
|
|
6. sept. 2008 (myndir)
Margir stefna á veiðar í dag eins og ætíð á laugardögum. Á svæði 1 fara Snæbjörn, Siggi Aðalst. Benni Óla, Andrés og Skúli Ben. Þeirra veiðimenn ætla að veiða tarfa. Á svæði 2 eru: Siggi Óla, Danni, Þórarinn, Maggi Karlss. Helgi Jenss, Einar Axelsson, Hákon, Jón Hávarður, Ómar, Emil, Sæmundur og Bjarni Bergþóss. Með þeim eru yfir 20 veiðimenn sem flestir ætla að fella kýr. Á svæði 4 ætlaði Björn Ingvarsson með tvo menn og einnig Skúli Sveins. Á svæði 5 í Sandvík fóru: Þorsteinn Aðalst, Sigurgeir, Sævar, Friðrik og Stebbi Kristmanns. Með þeim eru 12 veiðimenn. Jón Egill fer á sv. 6 með einn mann. Á svæði 7 eru: Sigvaldi, Þorri, Stefán Gunnarss og Albert og með þeim 12 veiðimenn. Á svæði 8 er Siggi á Borg og einnig Stefán Helgi. Á svæði 9 eru Halldór og Gísli Sigurbergs. Mikið verður fellt í dag ef vel gengur.
Lesa meira... 06.09.08 |
|
|
Pétur Örn Gunnarsson við 97 kg. tarf felldan í Múladal á sv. 7. Leiðsögum. Stefán Gunnarsson
|
|
5. sept. 2008 (mynd)
Gott veiðiveður á öllum veiðisvæðum eftir því sem frést hefur. Nokkuð margir stefna í tarfaveiðar á svæði 1 í dag. Þangað fóru: Jón Egill, Sveinn Ingimars, Reimar, Eiríkur, Siggi Aðalsteins og Bjarni. - með þeim eru 14 veiðmenn. Á svæði 2 fóru Danni, Ómar og Einar Axelsson. með fjóra menn í kýr ( hvar eru þessir menn sem eiga eftir að fella kýr á sv.2?) Á svæði 3 ætluðu Skúli Sveins og Björn Ingvars með tvo menn í kýr. Á svæði 4 fóru Óli Gunnar og Ólafur Örn. með menn í kýr. Á svæði 5 fóru Sigurgeir og Sævar með 6 menn. Á svæði 6 fór Magnús Karlsson með tvo í tarfa. Á svæði 7 fór Albert með einn í tarf og Stefán Gunnars með annan í tarf. Sigurður Eymundsson fór á sv. 8 með tvo í tarfa og einn í kýr. Halldór Guðmundsson fór á svæði 3 með menn í tarfa.
Lesa meira... 05.09.08 |
|
4. sept. 2008
Nú er að létta til víða og þá léttist einnig brúnin á hreindýraveiðimönnum. Enn eiga margir eftir að fella sín dýr og í hönd fer næstsíðasta helgi veiðitímans. Margir stefna á veiðar í dag og veður verður sennilega gott á öllum svæðum. Á svæði 2 eru farnir Ómar með þrjá menn, Gunnar Gutt með tvo menn, Bergur með einn. Á svæði 1 fóru Alli í Klausturseli með tvo í tarfa, Sæmundur með tvo í tarfa, Ólafur Örn með einn í tarf og Siggi Aðalsteins með þrjá í tarf. Á svæði 3 fór Björn Ingvars með einn í kýr, Skúli Sveins með einn í kýr á sv. 4. Sigurgeir með tvo í tarfa á sv. 5 og Sævar með þrjá í kýr. Á svæði 6 fór Rúnar með einn í tarf og Maggi Karls með annan. Á svæði 7 fór Þorri með þrjá í kýr og Jóhann Steindórs með einn í tarf. Albert fór með einn í tarf á svæði 8 og Skúli Ben. með tvo í tarfa. Á svæði 9 ætlaði Halldór á stað með menn í kýr ef þokunni létti.
Lesa meira... 04.09.08 |
|
|
Kolbrún Júlía Erlendsdóttir við fallegan tarf felldan í Geithellnadal á sv. 7. Leiðsögum. Guðm. Valur.
|
|
3. sept. 2008 (myndir)
Heldur léttara yfir í morgun. Menn farnir á stað til veiða á allmörgum svæðum. Á svæði 2 fóru: Reimar með þrjá, Magnús Karlsson með þrjá, Siggi Óla með einn, Siggi Aðalsteins með þrjá, Snæbjörn með einn, Einar Axelss. með einn. Flestir veiðimenn í kýr. Á sv. 1 fór Gunnar Gutt. að leita að törfum. Á svæði 5 fóru Sævar, Sigurgeir og Óli Gunnar með 8 menn í kýr. Á svæði 7 fóru Stefán Gunnarss. með einn í kýr, Guðm. Valur með tvo í tarfa og Þorri með tvo í kýr og einn í tarf. Á svæði 8 fór Skúli Ben. með þrjá í tarfa og á sv. 9 Siggi á Borg með einn í kýr og annan í tarf.
Lesa meira... 03.09.08 |
|
|
Kári Agnarsson við sitt fyrsta fellda hreindýr, kýr felld vestan Snæfellsskála á sv.2. Leiðsögum. Ómar Ásgeirss.
|
|
2. sept. 2008 (mynd)
Þokkalegt veiðiveður ætti að verða á svæðum 7, 8, og 9 en sennilega erfiðar á svæðum 3, 4, 5. Á svæðum 1 og 2 er þokan að lyfta sér og farið að sjá til sólar af og til. Margir þeirra sem fóru á veiðar í gær eru komnir á stað aftur og vonast til að betur gangi í dag. Á svæði 2 fer Siggi Aðalst. með þrjá menn, Eiríkur Skjaldar með tvo, Pétur með einn, Einar Axelsson með tvo, Ómar með einn, Reimar með einn og kannski eiga fleiri eftir að fara ef birtir til. Dýrin trúlega komin í Fellaheiðina en þó var enn hjörð inn við Snæfell í gær. Á svæði 1 fara Siggi Óla með tvo, Jón Egill með einn og Bergur með einn. Allir í tarfa. Á svæði 7 fer Jóns Bjarki með einn í kýr, Siggi Arnþórs með tvo í tarfa, Rúnar með einn í kýr og Kristján Vídalín með einn í kýr. Á svæð 8 fer Stefán Helgi með þrjá í kýr og Siggi á Borg með einn í kýr.
Lesa meira... 02.09.08 |
|
|
Gunnar R. Ólafsson með 112 kg tarf felldan á Búlandsdal sv. 7. Leiðsögum. Skúli Ben.
|
|
1. sept. 2008 (myndir)
Þá eru 15 dagar eftir af veiðitíma. Fyrsti dagur septembermánaðar upp runninn. Þoka gæti hamlað veiðum en norðaustanáttin virðist samt fremur hæg. Á svæði 1 fer Siggi Aðalst, Eiríkur Skjaldar og Siggi Óla að leita að törfum. Á svæði 2 eru fáir búnir að tilkynna sig en gæti fjölgað er líður á dag. Þangað fara Ómar Ásg. Bergur Jóns, Reimar, Snæbjörn, Pétur Jónss. Einar Axelsson og Jónas Bjarki þeirra veiðimenn ætla að veiða kýr. Á svæði 7 fer Albert með einn í kýr og Skúli Ben með tvo í tarfa. Friðrik með einn í tarf á sv. 6.
Lesa meira... 01.09.08 |
|
31. ágúst 2008
Nokkuð vel gekk að veiða en þokan var erfið á svæði 5. Á svæði 1 voru felldir þrír tarfar og var það úr sömu hjörð og daginn áður út í Laxárdalshnjúk. Veiðimenn með Reimari og Stefáni Geir. Ein kýr var felld á sv. 1, veiðim. með Eiríki Skjaldar. Á svæði 2 voru felldir tveir tarfar og sjö kýr. Leiðsögumenn voru: Bergur, Ómar, Tóti Borgars, Siggi Aðalst, Danni, Einar Eiríks og Agnar. Dýrin voru á leið út, kringum við Miðfell og út við Bessastaðavötn. Á svæði 3 fór Skúli Sveins með ein mann í kýr og náðu þeir í Loðmundarfirði. Á svæði 6 fór Jónas Bjarki og náðu þeir tafi undir Bratthálsi. Á svæði 8 voru felldir tveir tarfar á Lónsheiði og ein kýr sunnar. Á svæði 7 var felld ein kýr og einn tarfur. Á svæði 9 voru felldar 5 kýr, tvær á Heinabergsdal og þrjár á Borgarhafnarheiði. 26 dýr því felld í dag. 31.08.08 |
|
|
Einar Hilmarsson við tarf sinn felldan á Laxárdal sv.1. Leiðsögum. var Jón Hávarður Jónsson.
|
|
30. ágúst 2008 (mynd)
Miðað við þann fjölda leiðsögumanna sem tilkynnt hafa sig til veiða og veiðimannafjölda sem þeir eru með þá verður biðraðastemning á veiðisvæði 1 og 2 í dag. Ekki ákjósanlegt að veiða við slíkar aðstæður. Þá verða menn að sína hver öðrum biðlund og sýna fagmennsku við veiðarnar eins og ávallt. Á svæði 1 fara menn í tarfa: Jón Egill með þrjá menn, Reimar með þrjá menn, Snæbjörn með þrjá menn, Benni Óla með tvo menn, Einar Axelsson með tvo menn, Jón Hávarður með tvo menn og Andrés Elísson með tvo menn. Á svæði 2 stefna menn frekar í kýrnar. Þangað eru eftirtaldir leiðsögumenn búnir að tilkynna sig. Tóti Borgars, Þórarinn á Víðivöllum,Einar Eiríkss, Magnús Karlss. Guðmundur P, Pétur í Teigi, Danni, Siggi Aðalsteins, Þorvaldur Ágústss, Emil Björnsson, Sveinn Ingimars, Gunnar Gutt, Ómar Ásgeirss, og Eiríkur Skjaldar. Með þessum leiðsögum eru um þrjátíu hreindýraveiðimenn. Á svæði 3 ætlaði Skúli Sveins með einn mann, á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo menn í kýr. Á svæði 6 ætlaði Jónas Bjarki með einn. Á svæði 8 fer Siggi Eymunds með einn í kýr og á svæði 9 er Halldór Guðm. með þrjá menn í kýr.
Lesa meira... 30.08.08 |
|
29. ágúst 2008
Föstudagur. Örugglega hafa margir hugsað sér að halda til veiða í dag. Veður er ekki hagstætt, nokkur vindur, lágskýjað og gengur á með rigningardembum. Enn eru aðeins búnir að tilkynna sig til veiða leiðsögumenn á sv. 1 og 2. Á svæði 1 eru farnir. Guðmundur P. með einn í kýr, Alli með tvo í kýr, Eiríkur með tvo í kýr, Danni með tvo í kýr, Snæbjörn með einn í kýr, Árni Jónsson með tvo í kýr og einn í tarf. Benni Óla ætlaði á sv. 1 með tvo menn. Ef suðaustanrigningin gengur hratt yfir gæti létt til á veiðisvæðum 7 og 8 er líður á daginn. Erfitt gæti verið öðrum svæðum. Fleiri hafa bæst við er líður á dag. Á svæði 2 fer Tóti Borgars með tvo í kýr og einnig Ragnar Arnars. og Árni Vald með þrjá menn í kýr. Á svæði 5 ætluðu Sævar og Sigurgeir að horfa eftir kúm ef þokan leyfið - með þeim 6 veiðimenn í kýr. Rúnar Ásg. fór með tvo menn á svæði 6 í tarfa.
Lesa meira... 29.08.08 |
|
28. ágúst 2008
Þokufullt í morgun á Héraði og sennilega enn þoka inn á fjörðum líka. Gæti valdið mönnum erfiðleikum við veiðarnar. Margir stefna á veiðar í dag og svo verður örugglega einnig um helgina. Á svæði 1 eru farnir Danni með þrjá veiðimenn, Alli í Klausturseli með tvo í tarfa, Reimar með þrjá í tarfa og Snæbjörn með einn í tarf. Á svæði 2 eru farnir margir leiðsögumenn og margir veiðimenn. Guðmundur P. með þrjá í kýr, Ómar með tvo í kýr og tarf, Eiríkur Skjaldar með einn í kýr, Bjarni með tvo í kýr, Siggi Aðalst með þrjá í kýr, Sæmundur með tvo í kýr. Á svæði 5 fer Stebbi Kristmannss með einn í tarf og Sævar og Sigurgeir tilbúnir með menn í kýr ef þokan hörfar. Á svæði 7 ætluðu að fara: Skúli Ben og Jónas Bjarki með tvo í tarfa, Helgi með einn í tarf, Rúnar með einn í tarf, Guðmundur á Þvottá með einn í tarf. Á svæði 8 fer Albert Jenss. með tvo veiðimenn, Siggi á Borg með einn í kýr og Siggi Eymunds með einn í kýr. Á svæði 9 fer Halldór með tvo í kýr. Veðurspá ekki góð fyrir morgundaginn. Gæti orðið þokufullt og rigning.
Lesa meira... 28.08.08 |
|
27. ágúst 2008
Margir á veiðum í dag enda veður gott. Á svæði 1 fóru Ragnar Arnarson og Árni Vald. með tvo í tarfa, Sveinn Ingimars með tvo í tarfa og Reimar með tvo í tarfa. Tarfahjörð komin saman við kýrnar í Eiríksstaðahneflum í gær. Á svæði 2 virðast hjarðirnar vita í sig vindáttarbreytingu voru komnar vestur undir Þrælaháls og Eyvindarfjöll. Þangað fóru eftirtaldir leiðsögumenn: Siggi Óla með einn í tarf, Siggi Aðalst með einn í kýr, Magnús Karls með einn í kýr, Pétur í Teigi með þrjá í kýr, Björn Ingvarsson með tvo í kýr, Einar Axelsson með einn í kýr, Sævar fór á sv. 5 með tvo í kýr, Friðrik með einn í kýr, Óli Gunnar með tvo í tarfa og Þorsteinn Aðalsteinss með einn. Stefán Kristmanns með einn mann á sv. 3 í Loðmundarfjörð. Skúli Ben með tvo menn í kýr á sv. 7 og Jónas Bjarki einnig. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með tvo í tarfa og Sig. Eymundss með einn. Á svæði 9 er Siggi á Borg með einn í kýr.
Lesa meira... 27.08.08 |
|
26. ágúst 2008
Biðst afsökunar á að ekki tókst að koma inn veiðiféttum fyrr en nú undir kvöld. Hef þetta því í styttra lagi. Komnar eru eftirfarandi fréttir um felld dýr. Á svæði 2 voru felldar 8 kýr, á svæði 1 ein kýr og þrír tarfar, á svæði 3 tvær kýr, á svæði 4 tvær kýr, á svæði 7 ein kýr, á svæði 8 einn tarfur og á svæði 9 tveir tarfar. 27.08.08 |
|
|
Helga Rakel Guðrúnardóttir við hreinkú sem hún felldi á sv. 1. Leiðsögumaður var Skúli Ben.
|
|
25. ágúst 2008 (mynd)
Lokadagur 6 viku veiðitímans. Nokkuð margir stefna á að veiða í dag. Á svæði 1 eru farnir: Sæmundur Gíslason með þrjá í tarfa, Ragnar Arnarsson með tvo í tarfa, Siggi Aðalst. með tvo í tarfa, Pétur í Teigi með einn í tarf. Á svæði 2 eru Magnús Karls., Snæbjörn, Alli í Klausturseli, Guðmundur P, Skúli Ben og Bjarni Bergþórss. samtals með 11 menn í kýr og Tóti Borgars með einn í tarf. Siggi á Borg með einn í kýr ætlaði að reyna á 9 ef þokan lyfti sér.
Lesa meira... 25.08.08 |
|
|
Veiðimaðurinn Gísli Gíslason t.h. í miðjunni Víðir burðarm. og t.v.Sigurgeir Jóhannsson leiðsögumaður. Tarfurinn var felldur í hlíðum Skúmhattar í Vöðlavík á sv. 5. Hann vóg 108 kg.
|
|
24. ágúst 2008 (mynd)
Silfrið var Íslendinga í Peking - menn fara seinna til veiða í dag en oft áður vegna þess að margir hafa kosið að horfa á leikinn. Einnig hefur nostalgíudansleikurinn í Valaskjálf kannski dregið til sín í gærkveldi. Fáir komnir á stað þó klukkan sé að nálgast hádegi. Á svæði 2 er aðeins einn leiðsögumaður búinn að tilkynna sig til veiða, Bjarni er þar með þrjá menn í kýr. Vonandi fara fleiri á stað því tíminn styttist og mörg dýr ófelld þó vel hafi gengið. Á svæði 1 fer Siggi Aðalsteins með einn mann í taf. Á svæði 5 er Sigurgeir farinn á stað með tvo menn í tarfa og Sævar einnig en með þrjá menn í kýr. Árni Jónsson með einn mann í tarf á sv. 6. Guðmundur Valur á svæði 7 með með þrjá menn tvo í tarfa og einn í kýr.
Lesa meira... 24.08.08 |
|
23. ágúst 2008
Fallegt og bjart veður víða á Austurlandi. Menningarnótt í Reykjavík framundan en uppskeruhátíð og hreindýraveisla á Héraðshátíðinni Ormsteiti. Margir á veiðum í dag og örugglega ekki slæmt að vera á fjöllum í blíðviðrinu. Á svæði 1 fóru Eiríkur með tvo menn í tarfa, Benni Óla með þrjá í tarfa, Ómar með einn í tarf og Einar Eiríks með einn í tarf. Á svæði 2 fóru Þórir með tvo, Pétur í Teigi með einn, Siggi A. með einn, Bjarni með einn, Jón Hávarður með einn, Össur með einn, Árni Vald. með einn, allir þessir veiðimenn ætla að veiða kýr. Þórarinn Rögnvalds með þrjá, tvo í kýr og einn í tarf. Á svæði 3 fór Tóti með þrjár í kýr og felldur þeir nú um hádegi fyrir utan og ofan Gilsárdal, þar var um 170 dýra hjörð. Á svæði 4 fer Skúli Sveins með einn í kýr og Ólafur Örn með tvo. Þangað fer einnig Dagbjartur með einn í tarf. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo í tarfa, Þorsteinn með tvo í tarf og kýr og Stebbi Kristmanns með þrjá í tarfa. Árni Jónss. með einn í tarf á svæði 6. Á svæði 7 fer Ragnar Eiðsson með tvo í tarfa og einn í kýr og Guðm. Valur með tvo menn í kýr. Siggi á Borg á sv. 9 með manninn síðan í gær ef léttir til í tindum.
Lesa meira... 23.08.08 |
|
|
R.Þórlindur Magnússon með myndalega 50 kg. kýr fellda á sv. 5. í Njörvadal. Leiðsögum. Sævar Guðjónsson
|
|
22. ágúst 2008
Gott veiðiveður - og nú eru margir búnir að tilkynna sig til veiða. Ómar fer á svæði tvö með einn í kýr, Benni Óla með tarfamenn á sv 1, Siggi Aðalsteins með tvo menn í kýr á sv. 2, Skúli Ben með tvo í kýr á svæði 2. Eiríkur Skjaldar með þrjá tarfamenn á sv. 1, Bjarni Bergþórss. með tvo tarfamenn á sv. 1, Jón Hávarður með einn í kýr á sv. 2, Snæbjörn með tvo í kýr á sv. 2, Ragnar Ólafss. og Árni Valdimarss með þrjá í kýr á sv 2, Alli með tvo í kýr á sv. 2, Tóti Borgars með einn í kýr á sv. 2, Einar Axelss. með einn í tarf á sv. 2, Skúli Sveins með einn í kýr á sv. 2, Ólafur Örn með tvo menn á sv. 4 í kýr, Dagbjartur með einn í tarf á sv. 3. Sigurgeir með einn í kýr á sv. 5, Sævar með tvo í tarfa og einn í kýr á svæði 5. Siggi á Borg á svæði 9 með einn í tarf. Stefán Gunnarss með tvo í kýr á sv. 8.
Lesa meira... 22.08.08 |
|
21. ágúst 2008
Miðað við veðurkort og útlit himinhvolfsins er blíðviðri á öllum veiðisvæðum, hægviðri og heiðskýrt. Margir stefna á veiðar í dag. Á svæði 2 eru margir að fara til veiða. Eftirtaldir leiðsögumenn búnir að tilkynna sig. Einar Eiríks með einn, Magnús Karls með tvo, Danni með einn, Guðmundur Péturss. með tvo, Siggi Óla með einn, Árni Jónss. með tvo, Skúli Ben með einn, allir þeirra veiðimenn eru að veiða kýr. Þórir er með þrjá, tvo í kýr og einn í tarf. Jónas Bjarki með einn í tarf. Á svæði 1 fara menn með tarfaveiðimenn. Pétur í Teigi með tvo, Snæbjörn með þrjá og Siggi Aðalst. með tvo. Á svæði 3 fer Dagbjartur með tvo menn í kýr. Á svæði 7 Þorri með tvo menn í tarfa. Sævar og Sigurgeir fara á svæði 5 með fimm menn og einni Þorsteinn Aðalst með einn. Á svæði 8 fer Stefán Helgi með einn mann.
Lesa meira... 21.08.08 |
|
20. ágúst 2008
Væntanlega hafa fleiri veiðimenn verið á gæsaveiðum í morgun en þeir sem stefna á að veiða hreindýr í dag. Nú er stytt upp og þokunni að létta á hreindýraslóðum. Margir farnir til veiða. Á svæði 1 fóru Kolbeinn, Pétur í Teigi og Björn Birgisson með veiðimenn í tarfa. Á svæði 2 eru farnir margir leiðsögumenn, flestir með veiðimenn sem ætla að veiða kýr. Siggi Aðalst. með þrjá, Danni með þrjá, Ómar með tvo, Benni Óla með einn, Eiríkur með einn, Einar Eiríks og Össur saman með fjóra, Óskar Bjarna með einn. Sigurgeir fer með einn á sv. 5 og Sævar með tvo. Óli Örn ætlaði með einn mann á svæði 4. Guðmundur Valur fór með einn mann á sv. 7 í tarf og Siggi á Borg með þrjá í kýr á svæði 8
Lesa meira... 20.08.08 |
|
|
Eiður Pétursson við myndarlegan tarf felldan í Hofsbót á svæði 7. Leiðsögumaður var Guðmundur Valur bóndi á Lindarbrekku.
|
|
19. ágúst 2008 (mynd)
Fallegur veiðidagur runninn upp. Sennilega er þokan samt að stríða mönnum á Fjörðum og syðstu svæðunum. Lágskýjað á Héraði en gott veiðiveður. Á svæði 2 eru farnir: Þórir með tvo í tarfa, Einar Axelsson með tvo í kýr, Árni Jónsson með tvo í kýr, Bjarni Bergþórss. með tvo menn í kýr og tarf, Vignir Jón með einn í kýr og Jón Egill með einn í kýr. Á svæði eitt fara Snæbjörn með einn í tarf, Siggi Aðalst. með einn í tarf, Eiríkur með einn í tarf, Björn Birgiss, Tóti Borgars. og Pétur Jónss með þrjá menn í tarfa. Guðmundur Valur á sv. 7 með tvo menn, Stefán Helgi með þrjá menn í kýr á sv. 8.
Lesa meira... 19.08.08 |
|
18. ágúst 2008
Rólegur mánudagur á veiðislóð. Nokkur hópur veiðimanna er þó á svæði 2 þar sem menn hafa verið að veiða kringum Axarvötn og inn við Þrælaháls. Eftirtaldir leiðsögumenn eru á sv. 2. Guðm.Pétursson með 3 menn, Alli með tvo, Siggi Aðalsteins með tvo, Vignir Jón með tvo, Ómar með tvo, Jón Egill með tvo, Tóti Borgars með þrjá og Siggi Óla með einn. Á svæði 3 er Dagbjartur með tvo menn í kýr og Stebbi Kristmanns með tvo á sv. 4 í kýr og tarf. Ekki verið að veiða á öðrum svæðum.
Lesa meira... 18.08.08 |
|
17. ágúst 2008
Vegna tæknivandamála féll út að koma inn veiðifréttum dagsins. Rólegra var yfir veiðunum en dagana á undan, aðeins var verið að veiða á svæði 2. Þar voru felldar 10 kýr og 6 tarfar. Dýrin voru þar innan við Snæfell og einnig var hjörð niður með Axará og við Þrælahálsinn. 18.08.08 |
|
|
Hrafnhildur Hjaltadóttir og leiðsögumaður hennar Reimar Ásgeirsson við 78 kg tarf sem Hrafnhildur felldi á sv. 2
|
|
16. ágúst 2008 (mynd)
Virðist ætla að verða rólegra í dag eftir atgang gærdagsins. Menn eru að byrja að tilkynna sig á veiðislóð. Á svæði 2 eru farnir: Magnús Karlss, Hafliði Reyniss, Guðm. Péturss., Siggi Óla og Einar Eiríkss allir með menn í kýr. Reimar er að fara með einn í tarf. Fleiri eiga örugglega eftir að bætast við. Sigurgeir er farinn á sv. 5 með einn í kýr. Bætist vel í hópinn á sv. 2 er líður á morguninn. Agnar með 2 menn í kýr og tarf, Össur með tvo í kýr, Helgi Jenss. með tvo í kýr, Einar Axelsson með tvo í kýr, Jón Egill með tvo í kýr, Emil með tvo í kýr, Stefán Geir með tvo í kýr, Danni með einn í kýr, Pétur Jónss. með einn í kýr, Danni með einn í kýr. Sævar og Óli Gunnar með þrjá tarfamenn á svæði 5 og Þórir með einn í tarf. Ólafur Örn á svæði 3 með einn í kýr og Óttar með annan í kýr. Þorri er á svæði 7 með menn í 3 menn í tarfa og kýr. Albert reiknaði með að fara á sv. 8 með menn í tvo tarfa. Benni Óla fór á sv. 1 og Siggi á Vaðbrekku með menn í tarfa.
Lesa meira... 16.08.08 |
|
|
Ingimundur Sigurmundsson við tarf sinn felldan suðvestan við Þrælaháls á sv. 2. Leiðsögumaður hans var Björn Ingvarsson.
|
|
15. ágúst 2008 (mynd)
Þá er veiðitímabilið að verða hálfnað. Margir á veiðum í suðvestan - sunnan áttunum sem ríkja nú á hreindýraslóðum. Á svæði 1 fara Eiríkur Skjaldar með einn í tarf, Benni Óla með einn í tarf og Stefán Geir með einn í tarf. Á svæði 2 eru farnir: Siggi Aðalst.með tvo, Danni með einn, Gunnar Gutt með einn, Þorsteinn Jóhannss. með tvo, Helgi Jenss. með þrjá, Ómar með þrjá, Guðm. Péturss með einn og Snæbjörn með einn. Allir þessir menn eru að fara að fella kýr. Tóti Borgars með tvo menn í kýr og tarf. Kolbeinn með þrjá menn tvo í kýr og einn í tarf. Björn Ingvarss með tvo í tarfa. Á svæði 3 fóru: Skúli Sveinss. með einn í kýr og Óttar með tvo í kýr og einn í tarf. Á svæð 5 fer Þórir með þrjá í kýr, Ríkharð með einn í kýr, Sigurgeir með einn í kýr og Sævar með einn í tarf. Á svæði 7 fer Þorri Magg. með þrjá menn í tarfa, Valur á Lindarbrekku með tvo í tarfa, Guðmundur Kristinss. með tvo í tarfa og Albert með einn í kýr. Stefán Gunnarsson fer með einn tarfamann á sv. 8 og Stefán Helgi sömuleiðis með tvo tarfamenn á 8. Siggi á Borg fer með einn mann í kýr á sv. 9.
Lesa meira... 15.08.08 |
|
|
Fallegur tarfur veiddur á sv.8, 14. ágúst . Tv. Þór Jónsteinsson, leiðsögumaðurinn Stefán Gunnarsson Th . Veiðimaður Elvar Jónsteinsson
|
|
14. ágúst 2008 (myndir)
Gott veður á öllum veiðisvæðum eftir því sem ég hef heyrt. Margir stefna til veiða í dag. Á svæði 1 og 2 er loksins komin landátt þó enn sé hún hæg. Spáir suðlægum vindáttum a.m.k. næstu fjóra daga. Eftirtaldir leiðsögumenn farnir á stað á sv. 2. Hákon Aðalst með tvo í tarfa, Einar Axelsson með tvo menn, Siggi Aðalst með þrjá í tarfa, Siggi Óla með tvo í kýr, Þorsteinn Aðalst. með tvo í kýr, Ómar með einn í kýr, Gunnar Gutt. með einn í kýr Þórarinn Rögnvaldsson með tvo í kýr, Alli í Klausturseli með tvo menn í kýr og Einar Eiríks með tvo í kýr, Kolbeinn með einn í tarf, Stefán Geir með einn í tarf og Björn Ingvars með þrjá í tarfa.Jón Egill fór á sv. 1 með þrjá í tarfa, Snæbjörn fór einnig þangað með tvo menn í tarfa og Eiríkur með einn. Á svæði 3 fóru Dagbjartur og Skúli með einn hvor í kýr. Á svæði 5 fer Sigurgeir með tvo í kýr, Andrés með einn í kýr, Stebbi Kristmanns með einn í tarf, og Ríkharð með einn í tarf. Á svæði 7 fer Þorri með einn í tarf, Rúnar með einn í tarf og Sigurður Arnþórss. með einn í tarf. Á svæði 8 fer Skúli Ben með tvo í kýr og á svæði 9 Sigurður á Borg með tvo menn í tarf og kú. Ólafur Örn fór með einn mann í kýr á sv. 4 e.h. og felldur þeir kýr framan í Gagnheiði. Þeir sem fóru á sv. 3 eru búnir að fella tvær kýr í Breiðuvík.
Lesa meira... 14.08.08 |
|
|
Víðir Örn Jónsson með kú sem felld var á svæði 3. Þetta er fyrsta hreindýrið sem hann fellir. Leiðsögumaður hans var Skúli Sveinss.
|
|
13. ágúst 2008 (mynd)
Já það er fjör........ sögn Eiríkur Fjalar á sínum tíma - það verður fjör í hreindýraveiðum á sv. 2 í dag. Á svæðið eru farnir eftirtaldir leiðsögumenn. Emil, Jón Egill, Reimar, Ómar, Eiríkur Skjaldar, Snæbjörn, Þorsteinn J., Siggi á Vaðbrekku, Helgi Jenss. Kolbeinn Ara, Einar Axelss., Guðmundur Pétursson og Gunnar Gutt. með þessum leiðsögumönnum eru ríflega 20 veiðimenn. Flestir ætla að fella kýr. Stefán Geir ætlaði á svæði 1 með einn mann. Á svæði 3 fer Stebbi Kristm. með tvo og Skúli Sveins með þrjá. Skúli Ben fer á sv. 8 með þrjá menn og Siggi á Borg með tvo á svæði 9. Óskar Bjarna og Jón Hávarður bættust í hópinn á sv. 2 með menn í kýr. Óli Gunnar fór með tvo menn í tarfa á svæði 4. Sævar fór undir kvöld með þrjá menn í tarfa í Norðfirði.
Lesa meira... 13.08.08 |
|
12. ágúst 2008
Fimmta vika tímabilsins byrjuð. Virðist ætla að verð gott veiðiveður í dag og sennilega þokkalegt á öllum svæðum. Menn á Héraði bíða eftir sunnanáttinni og vona þá að dýrin komi inn á hefðbundið veiðisvæði kringum Þrælaháls og Eyvindarfjöll. Dýrin virðast oft vita slíkar veðurbreytingar í sig og eru farin að renna inn heiðina þau sem voru í Fellaheiðinni. Á svæði 2 eru farnir: Stefán Geir með tvo í tarfa, Siggi Óla með tvo í tarfa, Reimar með einn í tarf, Emil með einn í kýr, Guðmundur Péturss með tvo í kýr og Þorsteinn Jóhannss. með tvo í kýr. Siggi Aðalst. fór með einn tarfamann á sv. 1 og Jón Egill með annan. Sævar og Óli Gunnar fóru með fjóra tarfamenn á sv. 5. Albert Jenss og Helgi Jenss. fóru með þrjá tarfamenn á sv. 7. Stefán Gunnars með einn mann í kýr á sv. 7 og Sigurður Arnþórsson með tvo í kýr á sv.7. Siggi á Borg fór með einn tarfamann á sv. 9
Lesa meira... 12.08.08 |
|
11. ágúst 2008
Margir stefna á að fella hreindýr í dag. Víða þokuslæðingur og gengur á með skúrum. Hæg norðaustlæg átt á veiðisvæðunum. Á svæði 2 fara margir til veiða. Dýrin trúlega utar og austar en síðustu daga. Eftirtaldir leiðsögumenn farnir á stað á svæði 2: Guðmundur Péturss. með einn í kýr, Ómar með einn í kýr, Jón Egill með menn í kýr og tarf, Snæbjörn með mann í kýr, Tóti Borgars með mann í kýr, Eiríkur með tvo menn í kýr, Danni með tvo í kýr, Einar Axelsson með tvo í tarfa, Benni Óla með tvo í tarfa og Siggi Óla með þrjá í tarfa. Á svæði 3 fór Skúli Sveinss með tvo í kýr. Á svæði 5 fór Stefán Kristmannsson með tvo menn. Siggi Aðalst. fór á sv. 1 með einn í tarf og Reimar með annan í tarf. Á svæði 7 eru Helgi og Albert Jenss. með tvo menn hvor í tarfa og kýr. Stefán Gunnarsson fer einnig á 7 með einn mann í tarf. þar er einnig Guðmundur Valur með tvo tarfamenn. Magnús Karlsson ætlaði á sv. 6 með einn mann og Jóhann Steindórsson með þrjá tarfamenn. Á svæði 8 fór Stefán Helgason með einn tarfamann.
Lesa meira... 11.08.08 |
|
10. ágúst 2008
Vegna tæknivandamála skráðist ekki inn hverjir fóru til veiða í dag. Hér verður þó getið um þann árangur sem náðist við veiðarnar í dag. Á svæði 1 var felldur einn tarfur, veiðimaður með Benna Óla. Á svæði 2 voru felldar 5 kýr, veiðimenn með Tóta, Sigga Aðalst, Bjarna Bergþ. Snæbirni Óla og Agnari Eiríks. Veitt var utar á Fljótsdalsheiðinni en í gær en þó mikið af dýrum kringum Miðheiði norðan við Vegufs. Veiðimaður með Skúla Ben felldi tarf út undir Hengifossá. Á svæði 4 var felld ein kýr í Seyðisfirði veiðimaður með Óla Erni. Á svæði 6 voru felldir tveir tarfar, Maggi Karls og Jóhann Steindórs voru þar með veiðimenn og á svæði 7 felldi veiðimaður með Helga Jens. tarf í Hofsdal og veiðimenn með Val á Lindarbrekku og Rúnari Ásg. felldu tvær kýr á Hraunum. Fleiri hafa ekki tilkynnt veiðar. Í lok morgundags verður tekið saman hve mikið hefur verið fellt. 11.08.08 |
|
|
Jarþrúður H. Jóhannsdóttir og leiðsögumaður hennar Sigurður Guðjónsson við tarf felldan í Geithellnadal á sv. 7.
|
|
9. ágúst 2008 (myndir)
Fiskidagurinn mikli á Dalvík og Hinsegin dagar í höfuðborginni. Ljóst er að einhverjir kjósa frekar að vera í autsfirskri náttúru á heindýraveiðum. Fallegt veður en þokan gæti strítt mönnum á sumum svæðum. Margir búnir að tilkynna sig á veiðar. Á svæði 2 fara eftirtaldir: Einar Eiríkss. með tvo í kýr, Guðmundur Péturss. með einn í tarf, Jón Egill með einn í kýr, Skúli Ben. með tvo í kýr, Ómar Ásg. með tvo í tarfa og einn í kýr, Siggi Aðalst og Bjarni B. með tvo í tarfa., Magnús Karlss. með tvo í tarfa, Alli í Klausturseli með þrjá. Emil Björns með einn í kýr. Gunnar Gutt með einn í kýr, og Snæbjörn með tvo menn í kýr og tarf. Á svæði 1 fara Eiríkur Skjaldar, Benni Óla í tarfa og Danni í kýr. Á svæði 3 fer Þórhallur Borgarsson með einn í tarf og Jón Egill fór seinni partinn með annan. Óli Örn fór á sv 4 með einn mann. Á svæði 5 fer Óli Gunnar með einn í kýr og Sævar með tvo í tarfa. Reimar fer á sv. 6 með einn í tarf, Guðmundur Valur fer á sv. 7 með tvo í tarfa og Jónas Bjarki með einn. Siggi á Borg fór með einn veiðimann á sv. 7 í tarf og Stefán Helgi með tvo í kýr á sv. 8.
Lesa meira... 09.08.08 |
|
|
Tarfur felldur í botni Geithellnadals. Veiðimaður Steinarr Steinarrsson og aðstoðarmaður hans og alnafni. Leiðsögum. var Albert Jenss.
|
|
8. ágúst 2008 (myndir)
Föstudagur. Margir halda á hreindýraveiðar. Veður fallegt á Héraði og einnig á fjörðum, hægviðri og skýjað. Á svæði 2 eru eftirtaldir leiðsögumenn með veiðimenn. Jón Hávarður með þrjá, Aðalsteinn í Klausturseli með þrjá, Siggi Aðalsteins með einn, Emil Björns með einn, þeirra veiðimenn ætla að fella kýr. Hafliði Reynis með einn, Ómar með einn, þeirra veiðimenn ætla að fella tarfa. Jón Egill, Benni Óla, Ólafur Örn, Danni og Hákon Aðalsteinss. ætluðu á sv. 1. í þrjá tarfa og þrjár kýr. Á svæði 3 er Skúli Sveins með einn mann í kýr, á svæði 5 er Sævar með einn og Óli Gunnar með annan veiðimann. Á svæði 6 fer Reimar með tvo veiðimenn. Á svæði 7 er Skúli Ben með einn veiðimann í tarf og Albert með annan í tarf.
Lesa meira... 08.08.08 |
|
|
Einar Ólafsson t. v. með 91 kg tarf felldan á sv. 2 Leiðsm. E. Har.
|
|
7. ágúst 2008 (myndir)
Enn einn veiðidagurinn upp runninn. Veður milt og stillt á Héraði. Þokan eitthvað að trufla menn er sunnar dregur. Mikið fjör verður á svæði 2 í dag eins og í gær. Margir þar á veiðum. Eftirtaldir leiðsögumenn farnir á stað og fóru menn upp fá Klausturseli og einnig upp úr Fljótsdalnum norður á Vegufs. Dýrin á svipuðum slóðum og í gær. Flestir eru að veiða kýr. Ómar Ásg. með tarfamann. Guðmundur P. með þrjá, Magnús Karls. með tvo. Siggi Aðalst. með þrjá, Alli í Klausturseli með þrjá, Tóti Borgars með þrjá, Helgi Jenss. með einn - allir þessir veiðimenn ætla að veiða kýr. og Einar Har. er með tvo sem ætla að veiða kýr og tarf. Stefán Geir er með þrjá veiðimenn einnig á sv. 2. Á svæði 5 fór Sævar með tvo menn í kýr og tarf. Danni fór á svæði 1 í kýr og einnig Jón Egill með einn í tarf. Skúli Ben fór með tvo í tarfa á sv. 8 og Siggi Eymunds með einn í tarf. Siggi á Borg fór á sv. 9 með einn í kýr. Ekki verið að veiða á öðrum svæðum.
Lesa meira... 07.08.08 |
|
|
Sigurður Orri Steinþórsson t.v. við sinn fyrsta fellda tarf sem var felldur í Klausturselsheiði á sv. 2. Leiðs. E. Har.
|
|
6. ágúst 2008 (mynd)
Margir farnir á stað til veiða. Á svæði 2 eru farnir Guðmundur Péturss, Þórarinn Rögnvaldss, Magnús Karlsson, Þorvaldur Ágústss. og Stefán Geir - allir eru þeir með menn sem ætla að veiða kýr. Einar Har. er einnig þar með tarfamann. Reimar ætlar á sv. 1 með tarfamann. Fleiri eiga eftir að fara á stað er líður á dag. Skúli Ben. á svæði 7 með einn í kýr, Sævar með þrjá á svæði 5. Siggi Aðalsteins. með einn mann á tvö í kýr og Jón Egill með einn. Einar Axelsson með einn mann á sv. 2 í tarf, Aðalst. Aðalsteinss. með tarfamann á sv. 2, Gunnar Gutt með mann í kýr á sv 1. Sigvaldi með þrjá tarfa menn á sv. 7. Sig. Eymundss með einn tarfaman á sv. 8. Skúli Sveins og Stefán Kristm. með tvo í kýr á sv 3. Veður stillt og frekar hlýtt í dag ætti að vera þokkalegt á öllum veiðisvæðum.
Lesa meira... 06.08.08 |
|
|
Jónatan Sigtryggsson felldi þessa myndarlegu hreinkú í Klausturselsheiðinni 5. ágúst s.l. Hún reyndist vera 54 kíló, geld. Jónatan er sá sem krýpur, en félagi hans sem er að fara að gera að heitir Kristján Eldjárn. Emil Björns. var leiðsögumaður þeirra
|
|
5. ágúst 2008 (mynd)
Margir stefna á veiðar í dag. Á svæði 8 fer Siggi á Borg með tvo veiðimenn í tarfa, á svæði 7 er Sigvaldi með tvo í tarfa. Sævar fer á svæði 5 með tvo í tarfa. Sigurgeir fer á sv. 4. með tvo í tarfa, Skúli Sveins og Stebbi Kristm. fara á sv. 3 í kýr samtals með þrjá menn. Og svo er það hópurinn á sv. 2 Eftirtaldir leiðsögumenn farnir á stað. Ómar Ásg., Reimar, Jón Egill, Siggi Aðalst. Guðmundur Péturss, Ólafur Örn, Tóti Borgars, Emil Björnss, Einar Har, Ívar Erlendss, Þorvaldur Ágústss. og Óskar Bjarnas. farnir á sv. 2 Veiðimenn sem fylgja þessum leiðsögumönnum eru um 20. Menn dálítið óráðnir um hvar best sé að leita að kúnum á svæðinu. Á svæði 1 fóru Benni Óla og Stefán Geir. Meira síðar.
Lesa meira... 05.08.08 |
|
|
Davíði Ingason með tarf sinn felldan á sv. 2 tv. og leiðsögumaður hans Ívar Erlendsson
|
|
4. ágúst 2008 (mynd)
Frídagur verslunarmanna en ekkert frí hjá þeim sem ætla sér að veiða hreindýr í dag. Siggi á Borg fór með einn mann á sv. 8 og felldu þeir tarf eftir stuttan tíma austan við Almannaskarð. Albert fer á sv. 7 með einn mann í kýr. Skúli Sveinss. farinn á sv. 3 með tvo í kýr. Á svæði 2 fara: Siggi Aðalsteins með tvo í kýr, Siggi Óla með tvo í kýr, Hákon Aðalst. með einn, E. Har. með tvo menn og Ívar Erlends með einn. Tóti Borgars með einn í tarf og Reimar með einn í kýr. Alli í Klausturseli fer á sv. 1 í kýr og Eiríkur Skjaldar og Stefán Geir í tarfa. Erfitt að segja hvar dýrin eru á svæði 2 í dag en þó sennilega á svipuðum slóðum og í gær í Fellaheiðinni.
Lesa meira... 04.08.08 |
|
3. ágúst 2008
Norðaustan og austanátt á veiðisvæðum hreindýraveiða. Sennilega bjartara eftir því sem sunnar dregur. Sleppur við þoku að mestu á sv. 2 en þó getur hún hamlað veiðum þar sem hæst er. Siggi Aðalst fer á sv. 2 með þrjá og einnig Siggi Óla með tvo. Magnús Karls fer á sv. 6. og Albert á sv. 7. Jón Hávarður ætlar á sv. 3 með einn mann í tarf Tóti Borgars farinn á sv. 2 með þrjá menn, Alli í Klausturseli fer með einn, Jón Egill með einn, Eiríkur Skjaldar með tvo. Flestir stefndu á Fellaheiðina kringum Miðheiðarháls. Stefán Kristmanns og Emil Björns ætluðu að kíkja á sv. 4 Mjóafjörð.
Lesa meira... 03.08.08 |
|
2. ágúst 2008
Þá eru menn farnir á stað á hreindýraveiðar, eins og vaninn er um helgar þá ætla margir sér að veiða í dag. Á svæði 8 fer Albert með tvo menn, á svæði 6 fer Reimar með einn mann og Maggi Karls með tvo sem ætla allir að veiða tarfa. Sævar og Páll Leifss. fara á sv. 5 með samtals fjóra menn. Á svæði 2 fara: Jón Egill með tvo menn í kýr, Jón Hávarður með þrjá í kýr, Einar Eiríks með tvo í kýr, Snæbjörn með tvo í kýr, Eiríkur Skjaldar með tvo í tarfa, Hjörtur Friðriks með tvo í tarfa og Siggi Aðalst með þrjá í kýr. Semsagt nóg um að vera á svæði 2. Þar eru dýrin yst á Fellaheiðinni innan við Sandvatn og norður undir Tindfelli ofan Teigarsels.
Lesa meira... 02.08.08 |
|
1. ágúst 2008
Þá er kominn ágústmánuður og heimilt að byrja veiðar á hreinkúm. Margir ætla á veiðar en ekki er víst að veðrið verði alls staðar hagstætt. Enn er þoka á Héraði og ekki gott að segja hvort hún lyftir sér af Fellaheiðinni þar sem dýrin eru. Margir ætla á stað. Á svæði 8 fer Siggi Eymunds með þrjá menn. Albert fer á sv. 8 með þrjá menn. Bíð með að setja inn þá sem hugsa sér til hreyfings á sv. 1 og 2 þar til ég fæ nánari fréttir þar um. Á svæði 2 fara: Jón Egill með tvo í kýr, Snæbjörn einnig með tvo í kýr, Reimar með einn í tarf, Ómar með tvo veiðimenn á sv. 2 kýr og tarfur, Siggi Aðalst með þrjá. Guðmundur Pétursson með tvo veiðimenn, kýr og tarfur. Fleiri eiga örugglega eftir að fara ef léttir betur til. Einnig leituðu Jón Hávarður á sv. 2 og Eiríkur Skjaldar á sv. 1 Sævar fór á sv. 5.
Lesa meira... 01.08.08 |
|
31. júlí 2008
Enginn enn farinn á veiðar, þoka á veiðislóð á Héraði. Heldur að létta til, orðið bjart niðri á fjörðum og varið að sjá í gegn um þokuna á Héraði. Siggi Eymunds farinn á stað á sv. 8 með einn mann, Sævar með tvo á svæði 5, Jóhann Steindórs fer með þrjá á svæði 6 nú upp úr hádegi. Siggi Aðalst fer á stað um leið og þokan fer með einn á sv. 2.
Lesa meira... 31.07.08 |
|
|
Steinar Sveinsson við 80 kg tarf felldan á sv. 2 nærri Sandvatni. Vopnið var Sako 6,5/55 Sierra 120 gr kúla. Leiðsögum. Ragnar Arnarson/Árni Vald.
|
|
30. júlí 2008 (mynd)
Fáir búnir að tilkynna sig á veiðar. Reimar fer á sv. 2 með eina skyttu, Ragnar Arnarss og Árni Vald. með tvo menn á sv. 2. Sigurgeir fer með einn á sv. 5. Ómar ætlaði að fara á svæði 6. Þoka á Egilsstöðum en gæti verið bjart ofar. Bjart niðri á Fjörðum að mestu en þoka inn á sumum Fjörðum. Norðaustlæg átt en eiginlega logn. Þeir sem ætla að byrja fyrsta daginn í kúnum eru örugglega að verða spenntir en sennilega verður ekki gott að veiða alls staðar fyrir þokunni.
Lesa meira... 30.07.08 |
|
29. júlí 2008
Það styttist í Verslunarmannahelgina - virðist vera að rólegt sé yfir veiðimönnum í dag, fáir búnir að tilkynna sig á veiðar. Siggi Eymunds fer með einn á sv 8 og Siggi á Borg með einn á sv. 7. Ómar ætlaði með veiðimenn á svæði 6 eða 7 eftir því hvernig þokan myndi haga sér. Þorri með sinn mann enn á svæði 7. Alskýjað á Héraði en þar er enginn á veiðum. Tóti Borgars fór með einn mann á svæði 2 og Sigurgeir fer með einn á sv. 5.
Lesa meira... 29.07.08 |
|
28. júlí 2008
Mánudagur. Fáir á veiðum eins og oft strax eftir helgarnar. Á veiðar eru farnir á sv. 8. Siggi á Borg og Sigurður Eymundss. hvor með sinn manninn. Eitthvað að birta til á suðursvæðunum. Á svæði 1 eru Reimar með einn veiðimann og Eiríkur Skjaldar með annan. Þorri Magg. fór á svæði 7 með einn mann. Skúli Ben í startholunum á sv. 7. með sínar skyttur frá helginni - ef þokunni léttir. Sigurgeir lagði af stað á sv. 5 með tvo veiðimenn en var hræddur um að þokann truflaði.
Lesa meira... 28.07.08 |
|
27. júlí 2008
Sunnudagur en fáir á veiðum. Þoka hamlar veiðum í suðaustanáttinni á Fjarðasvæðunum. Siggi Eymundus ætlaði að kíkja með einn á svæði 8. Á svæði 2 eru farnir Snæbjörn með tvo menn, Siggi Aðalst. með tvo og Tóti Borgars með einn mann. Mikill hiti á Héraði. Í gær voru tarfarnir við Miðheiðina og stefndu flestir hópar út heiðina. Það styttist í að megi byrja veiði á kúm en það er 1. ágúst eins og flestir vita. Þar sem þann dag ber upp á föstudag má búast við að margir stefni til veiða.
Lesa meira... 27.07.08 |
|
26. júlí 2008
Enn einn veiðidagur runninn upp, hlýtt og kyrrt veður á hreindýraslóðum en þokan var að stíða mönnum á svæði 4 og 5 í gær og verður sennilega einnig í dag. Bjartara á Héraði og ætti að verða gott veður til veiða. Nokkrir leiðsögumenn höfðu samband í gærkveldi og eiga væntanlega fleiri eftir að bætast í hópinn er líður á dag. Siggi Aðalsteins ætlaði að kíkja á sv. 1 en gæti endað á sv. 2 ef tarfarnir finnast ekki fyrir norðan. Dagbjartur fer á sv. 4 með einn og Sigurgeir með sína þrjá síðan í gær ef birtir upp. Albert fer með einn mann á svæði 7. Siggi á Borg er farinn á stað með eina skyttu á svæði 9, Snæbjörn með tvær á sv 1 og Eiríkur Skjaldar með einn. Einnig er Danni með einn veiðimann á sv. 2 og Helgi Jensson með tvo. Jón Sigmar fer á sv. 3 með einn mann. A svæði 5 fóru Sævar með einn og Óli Gunnar með annan. Skúli Ben ætlar með tvo á svæði 7 ef birti þokunni.
Lesa meira... 26.07.08 |
|
25. júlí 2008
Frekar rólegt yfir veiðmönnum í dag. Frábært veður á sv. 1 og 2 en þoka gæti spillt fyrir á Fjarðasvæðunum. Fáir á veiðum í dag. Reimar er á sv. 2 með tvær skyttur, Siggi Aðalst. með einn á sv. 1, Sigurgeir fór með þrjá menn á sv. 4 og stefndu þeir í Mjóafjörð. Þar sem er föstudagur og gott veður bjóst ég við fleirum á hreindýraslóðir. Eftir hádegið bættust við tveir leiðsögumenn sem fóru með þrjá veiðimenn á sv. 5. Óli Gunnar og Þorsteinn Aðalst. fóru í Hólmatindinn. Tveir tarfar voru felldir þar. Ríkharð fór inn á Þórdalsheiði með einn á sv. 5 en þar var ekkert að sjá enda kom þokan fljótt. Sigurgeir fann ekkert í Mjóafirði enda þoka. Siggi A. fór á sv. 2 eftir að hafa ekkert séð á 1 og felldi hans maður tarf við Langavatn.
Lesa meira... 25.07.08 |
|
24. júlí 2008
Enn er bjart og fallegt veður á Austurlandi - sunnanvindur og sólríkt á Héraði og einnig á öðrum veiðisvæðum. Oft hafa fimmtudagar verið rólegir, fáir virðast kjósa að fara til veiða á þeim dögum. Ekki margir búnir að skrá sig til veiða - Reimar fer á svæði 1 með tvo menn þar sem tarfar fundust í gær kringum Sandfell. Fleiri eiga sennilega eftir að fara á stað er líður á morguninn. Einar Axelsson fer með tvo menn á Fljótsdalsheiðina. Þar eru dýrin inn á hefðbundið svæði kringum Þrælaháls og Kofaöldu. Snæbjörn Óla fer einnig með einn veiðimann. Þorsteinn Aðalst. fer með einn mann á svæði 5.
Lesa meira... 24.07.08 |
|
|
Sigursteinn Sigurðsson með 80 kg hornprúðan tarf felldan í Sléttuskarði á sv. 5 Leiðs. Sævar Guðjónss.
|
|
23. júlí 2008 (mynd)
Miðvikudagur runninn upp bjartur og fagur á öllum veiðisvæðum eftir því sem ég best veit. Menn að tygja sig til veiða. Einar Axelsson fer á svæði 2 með 3 menn, Dagbjartur fer á sv. 4 með einn. Pétur í Teigi fór með tvo menn á svæði 1, Benni Óla með einn. Þorri fór með einn mann á svæði 6 og felldu þeir tarf á Breiðdalsheiði. Veiðimaður Benna Óla felldi tarf austur af Sandfelli á svæði 1 þar sem nokkuð stór tarfahjörð var og menn Péturs sína tarfa norðar á svæðinu við Dritfell. Veiðimaðurinn á sv. 4 kláraði einnig að veiða í Mjóafirði. Ekki enn neinar fréttir af Fljótsdalsheiðinni þegar þetta er ritað. Veiðimenn Einars felldu tvo tarfa í gærkveldi norðan við Axarvötn. Mikið af dýrum á því svæði. Undirritaður gleymdi að setja inn að Sævar fór með tvo menn á svæði 5 og felldir voru tveir tarfa í Hellisfirði. jgg 23.07.08 |
|
22. júlí 2008
Þriðjudagur til þrautar stendur skrifað. Þeir sem leggja á stað á veiðar verða örugglega þrautseigir í að ná sínum törfum í dag. Siggi Eymunds farinn á sv. 8 með einn mann, Skúli Ben á sv. 2 með einn mann, Rúnar Ásg. með einn á sv. 7. Fleiri ekki farnir enn. Veður gott á Héraði og hreindýrin komin innarlega á Fljótsdalsheiðina. Þoka niður í miðjar hlíðar á syðstu svæðunum. Nú er búið að fella 43 tarfa á þessari fyrstu viku.
Lesa meira... 22.07.08 |
|
|
Gunnar A.Guttormsson (79 ára) við 102 kg hornprúðan tarf sem felldur var á sv. 3 í Eiðaþinghá, leiðsögumaður hans var Jón Egill.
|
|
21. júlí 2008 (mynd)
Virðist ætla að verða rólegt yfir veiðunum í dag. Mánudagar hafa oft verið svoleiðis. Þokkalegt veður á veiðisvæðum. Fáir búnir að tilkynna sig til veiða. Skúli Sveins er á sv. 4 með tvo menn, Siggi Óla á sv. 2 með einn mann, Jón Hávarður fer einnig á sv. 2 með annan og Reimar Ásg. með tvo. Sigurður Aðalst. með einn mann á svæði 2. Jón Egill fór með mann á sv. 3 undir kvöldið.
Lesa meira... 21.07.08 |
|
20. júlí 2008
Sólin skín og örgugglega í vændum einn sólríkasti dagur sumarsins hér á Austurlandi. Ekki ský á himni og sennilega kjósa margir að liggja í sólbaði á pallinum í dag. Sumir ætla þó að nýta þetta góða veður til hreindýraveiða. Á svæði 1 eða 2 fara Eiríkur Skjaldar, Siggi Aðalsteins og Jón Hávarður með þrjár skyttur. Skúli Sveins er áfram á svæði 4 í Mjóafirði. Á svæði 7 fer Skúli Ben. með einn mann og Albert Jenss. með annan. Fleiri ekki búnir að tilkynna enda nóg eftir af deginum.
Lesa meira... 20.07.08 |
|
|
Sveinn Hannesson við tarf sinn felldan í Klausturselsheiði, í baksýn tarfur veiðflélaga hans Ólafs Sigurjónssonar. Leiðsögumaður var Jón Hávarður Jónsson
|
|
19. júlí 2008 (mynd nýtt)
Þá eru menn að tygja sig á stað til veiða. Skúli Ben lagður á stað á sv. 9 með eina skyttu og einnig Siggi á Borg, á svæði 4 fer Skúli Sveins með tvo veiðimenn, Stefán Kristmanns verður á sv. 5 með tvo veiðimenn og Ríkaharð með einn. Þeir sem ætla á svæði 1 og 2 eru nokkrir, Jón Hávarður með 2, Helgi Jens. með 1, Siggi Aðalst. með 1, Reimar með einn og örugglega bætas fleiri við er líður á dag. Bjart og gott veður virðist ætla að verða er líður á daginn og einnig spáir vel fyrir sunnudaginn. Jónas Bjarki fór á svæði 6, Albert Jenss á svæði 7, Jón Egill á svæði 3, hver með einn mann. Sigurður Eymundsson er á svæði 8 með einn mann.
Lesa meira... 19.07.08 |
|
18. júlí 2008
Fjórði dagur tímabilsins runninn upp. Frekar rólegt yfir veiðunum aðeins tveir leiðsögumenn búnir að tilkynna sig á veiðar með sína veiðimenn, Ólafur Örn farinn á sv. 2 og Jón Egill á sv. 1. Í gær var góður þurrkur á Héraði og þó einn dagur geri ekki mikið fyrir blautar slóðir er það þó betra en rigningin. Hreindýrin virðast hafa fært sig innar á sv 2 og frést hefur af kúm inn í Eyvindarfjöllum. Tarfarnir eru þó örugglega utar og erfitt að finn þá. Menn eru pollrólegir á öðrum svæðum en góð veðurspá er fyrir helgina og þá lifnar örugglega yfir þessu. Ómar að fara með mann á sv 6 og Rúnar einnig farinn á stað með einn veiðimann á sv. 7.
Veiðimaður Jóns Egils felldi tarf á svæði 1 norður undir Þjóðfelli. Einnig var felldur tarfur á svæði 6.
Lesa meira... 18.07.08 |
|
|
Veiðimaðurinn Agnar Ásgeirsson t.h. ásamt leiðsögumanni sínum Magnúsi Karlssyni. Greinilega nógur gróður þar sem þessi tarfur var að bíta í Hallormsstaðaskógi.
|
|
17. júlí 2008 (mynd)
Fjórir leiðsögumenn hafa tilkynnt sig á veiðar í dag. Reimar fór á svæði 2 með tvo menn, Maggi Karls með einn, líka á sv. 2. Rúnar ætlar á stað á sv. 6. Þrír tarfar felldir á svæði 2, einn innan við Hallormsstað og tveir við Húsaárkvíslar. Einn tarfur felldur á sv. 6 á Öxi. 17.07.08 |
|
16. júlí 2008
Siggi á Borg með einn mann á svæði 9 og Magnús Karls með einn mann á sv. 6. Ekki fleiri á veiðum. Veiðimaðurinn á svæði 6 felldi sinn tarf í um 1000 m. hæð í Skúmhattartindi í Skriðdal. Ekki enn komnar fréttir frá svæði 9. Til úskýringar - ekki er getið um nöfn þeirra veiðimanna sem á veiðum eru nema þeir sendi inn myndir og veiti heimild til nafnabirtinga. Leiðsögumenn nota veiðifréttir aftur á móti einnig til að vita hverjir voru á veiðum og hafa þá oft samband hver við annan að kveldi eða morguninn eftir til að fá fréttir. 16.07.08 |
|
15. júlí 2008
Nú er klukkan orðin rúmlega 10 að kvöldi fyrsta veiðidag. Búið er að fella 6 tarfa. Eins og kemur fram á forsíðu var fyrsti tarfurinn felldur á svæði 8 á Lónsheiði. Veiðimaður með Albert Jenss. Veiðimaður með Ómari Ásg. felldi tarf á svæði 6 í Breiðdal. Einar Axelss. Siggi Aðalst, Jón Egill og Reimar fóru með menn á svæði 2 og náðu þær skyttur sínum törfum. Jón og Reimar fóru með sína menn á Fellaheiðina og þar eru slóðir mjög blautar. Siggi fór með sinn mann í skógarveiðar í Fellum en Einar var austan Lagarfljóts innan við Hallormsstað. Allt þokkalegir tarfar sem voru felldir.
Lesa meira... 09.07.08 |
|
15. sept. 2007 Lokadagur
Þegar þetta er ritað um hádegi þann 15. september þá er búið að fella 1123 hreindýr af 1137 dýrum sem útgefinn kvóti var. Aðeins er því eftir að fella 3 tarfa og 11 kýr. Á svæði 7 er Albert með síðasta tarfamanninn, á svæði 4 er Ólafur Örn með tvo síðustu veiðimennina, á svæði 2 er Snæbjörn með tarfamann og Einar Eiríkss. með einn í kýr. Á svæði 3 fór Dabjartur með tvo veiðimenn. Í kvöld kemur í ljós hvort eitthvað bætist við af felldum dýrum. Ljóst er að sá árangur sem búið er að ná er nánast ótrúlegur. Ef verða eftir innan við 10 dýr af kvótanum er það mjög vel viðunandi.
Lesa meira... 15.09.07 |
|
|
Gunnar A. Guttormsson (78 ára) t.h. veiðimaður/leiðsögumaður og leiðsögumaður hans Aðalsteinn Aðalsteinsson (Danni) (75 ára) með fallegan tarf 96 kg felldan á svæði 1.
|
|
14. sept. 2007 ( mynd nýtt)
Næstsíðasti dagur veiðanna. Létt hefur til á veiðislóðum en köld norðanátt er ríkjandi. Hvítt í fjöllum eftir hret gærdagsins. Sólin er samt farin að ylja þeim veiðimönnum sem farnir eru á stað. Veður ætti að haldast gott í dag og bjartviðri á öllum svæðum. Á svæði 1 fóru Benni Óla og Danni með tarfamenn. Á svæði tvö eru Siggi Aðalst, Bjarni Bergþórs. og Hjörtur F. Ólafur Örn fór á svæði 4 með þrjá síðustu mennina þar í kýr. Á svæði 3 fara Jón Egill og Tóti Borgars. en þar er eftir að veiða hlutfallslega mest. Sigurður Eymundss. fer með síðasta tarfamanninn á sv. 8. Á svæði 7 fer Albert með tvo tarfamenn, Þorri með tvo menn í kýr og tarf og Skúli Ben. með mann í kýr. Á svæði 6 fer Reimar með síðasta tarfamanninn. Veiðum er lokið á svæði 5 og 9.
Lesa meira... 14.09.07 |
|
|
Sigríður Sigþórsdóttir með fyrstu hreinkúna sem hún fellir. Með henni á myndinni er leiðsögumaðurinn Stefán Krismannsson. Kýrin var felld á sv. 5
|
|
13. sept. 2007 (mynd nýtt)
Það styttist í að veiðitímabilinu ljúki og ekki ætla veðurguðirnir að vera mönnum hliðhollir þessa síðustu daga. Hætt er við að ekki náist að fella það sem uppá vantar. Veður var skaplegt í morgun en versnaði er líða tók á daginn. Á svæði 1 fór Reimar með einn tarfamann. Siggi kíkti á sv. 2 en varð frá að hverfa vegna veðurs. Á svæði 5 fór Stefán Kristmannsson með tvo veiðimenn í kýr og náðu þeir að fella áður en veður versnaði. Andrés var þar líka með síðasta manninn í kýr en ekki hefur frést um árangur. Á svæði 4 fór Ólafur Örn með þrjá síðustu mennina. Á svæði 8 er Siggi á Borg með einn tarfamann. Síðasta leyfið á sv. 9 var einnig felld. 13.09.07 |
|
12. sept. 2007
Fáir á veiðum í dag, þoka og rigning á öllum veiðisvæðum. Kyrrt veður á Héraði en úrkoma og farið að slydda á heiðum uppi. Á svæði 1 fóru Alli, Danni og Siggi Aðalst. Á svæði 2 fóru Bjarni Bergþórs, Einar Eiríkss og Reimar. Skúli Sveinss. og Jón Egill fóru á sv. 3. en þar er erfitt skyggni eins og á fleiri svæðum.
Lesa meira... 12.09.07 |
|
|
Örn Valdimarsson og Kári Grétarsson með tarfa sína sem þeir felldur á svæði 2, leiðsögumaður var Emil Björnsson.
|
|
11. sept. 2007 (mynd nýtt)
Þá eru aðeins fimm dagar eftir af veiðitímabilinu og eftir er að fella um 90 dýr. Verið er að reyna að koma út þeim leyfum sem skilað hefur verið síðustu daga en veðurspá virðist setja þar strik í reikninginn og stuttur tími er einnig eftir til að ná dýrunum. Farið er niður biðlistann og hringt í þá sem eru næstir. Ótrúlega fáir á veiðum í dag. Á svæði 2 fóru Siggi Að. Jón Egill og Snæbjörn. Á sv. 2 eru Einar Axelsson og Eiríkur Skjaldar. Það eru því aðeins tíu veiðimenn þar í dag sem er furðulegt þar sem veður er gott. Á svæði 3 er Þórhallur Borgars. með einn mann. Á svæði 5 eru Sigurgeir, Þorsteinn Aðalsteins og Andrés. Á svæði 9 er Sigurður á Borg sem kláraði með einum tarfamanni á sv. 8 snemma í morgun.
Lesa meira... 11.09.07 |
|
10. sept. 2007
Síðasti mánudagur tímabilsins. Ekki margir á veiðum en mjög gott veður til veiða á sv. 1 og 2 og þokkalegt á öðrum svæðum. Helst þoka á svæði 7 og 8. Á svæði 1 fóru Danni, Siggi A. Snæbjörn og Jón Egill. Á svæði 2 eru Guðm. Péturss, Bergur Jónss. Reimar, Ómar, Eiríkur Skjaldar, Einar Eiríkss. og Siggi Þór. Á svæði 3 er Jón Sveinsson. Sigurgeir ætlaði á sv. 5 og líka Þorsteinn. Á svæði 8 fóru Siggi Eymunds og Sigurður á Borg.
Lesa meira... 10.09.07 |
|
9. sept. 2007
Síðasta vika veiðitímabilsins er hafin, enn er eftir að fella um 150 dýr og það á þeim 7 dögum sem eftir eru. Fáir hafa tilkynnt sig á veiðar í dag. Veður á Héraði frekar leiðinlegt ef miðað er við síðustu daga, hvasst í morgun og rigningarskúrir með köflum. Þoka víða í fjöllum og gæti hún hamlað veiðum á svæðunum á Fjörðunum. Á svæði 2 fóru: Ómar, Einar Eiríkss, Reimar og Bjarni Bergþórss., samtals með 9 veiðimenn. Jón Egill og Danni stefndu á svæði 1 með menn í tarfa. Á svæði 3 fór Skúli Sveinss. Á svæði 4 er Björn Ingvarss. með tvo menn. Sigurgeir er á svæði 5 með tvo menn. Á svæði 7 er Þorri. Sigurður á Borg er á svæði 8 með tvo menn.
Lesa meira... 09.09.07 |
|
8. sept. 2007
Þá er komið að lokadegi næst síðustu veiðivikunnar. Margir ætla að veiða í dag og veður er mjög gott en þoka gæti sett strik í reikninginn á fjarðasvæðum þegar líður á dag. Á svæði 1 fóru Raggi Arnars, Siggi Aðalst., Hjörtur, Eiríkur, Danni, og Jón Hávarður. Á svæði 2 fóru: Siggi Óla, Ómar, Einar Axelss, Helgi Jenss, Bjarni, Alli í Klausturseli, Einar Eiríkss., Snæbjörn og Reimar. Á svæði 4 fór Björn Ingv. og Ólafur Örn, Á svæði 3 fóru Dagbjartur og Skúli Sveinss. Á svæði 5 er Sigurgeir. Þorri, Albert, Jónas Bjarki og Stefán Gunnars. fóru á svæði 7. Á svæði 9 er Halldór. Á svæði 8 fóru Sigurður Eymundss. Siggi á Borg og Skúli Ben. Magnús Karlsson fór á svæði 6. Yfir 40 veiðimenn ætla sér að veiða í dag og verður allt að ganga upp til að það náist.
Lesa meira... 08.09.07 |
|
7. sept. 2007
Nú er komin stíf vestanátt og víða orðið þokkalegt veiðiveður, þó gæti mistur hamlað útsýni á svæði 2. Á svæði 2 eru farnir: Ómar, Guðmundur P, Emil, Óskar, Ragnar Ólafss., og Hjörtur F. Á svæði 1 eru: Reimar, Jón Egill og Siggi Aðalst. Á svæði 4 fór Björn Ingvarss., á svæði 7 eru: Albert, Skúli Ben, Jónas Bjarki, Guðmundur Valur og Þorri ætlaði á stað seinni partinn. Á svæði 8 er Sigurður á Borg og á sv.9 er Halldór Guðm.
Lesa meira... 07.09.07 |
|
6. sept. 2007
Þá er enn einn veiðidagurinn runninn upp. Í morgun var suðaustanátt með þoku og rigningu á mörgum veiðisvæðum. Þeir sem farnir eru á svæði 2 eru eftirtaldir leiðsögumenn.: Ómar, Alli, Þorvaldur Ágústss, Þórarinn Rögnvaldss., Árni Jónsson, Danni, Reimar og Skúli Ben fóru á sv. 2. Jón Egill, Benni Óla og Siggi Aðalst. fóru á sv. 1. Enn er verið að leita á sv. 3 að kúnum. Á svæði 4 fór Dagbjartur með einn mann. Jónas Bjarki fór á sv. 7 og á sv. 9 er Halldór. Gott veðurútlit á morgun fyrir flest svæði.
Lesa meira... 06.09.07 |
|
5. sept. 2007
Nokkuð margir á veiðum í dag, veður gott á öllum veiðisvæðum. Engar kýr finnast á sv 3 eins og er sem er ekki gott en vonandi koma þær í ljós fljótlega. Dýrin á sv. 2 komin inn á betra veiðisvæði á Fljótsdalsheiðinni. Á svæði 2 eru í dag: Jón Egill, Ómar, Árni Jónss., Siggi Óla, Emil, Magnús Karlss, og Bjarni. Á svæði 1 eru Jón Hávarður, Alli, Benni Óla, Danni, Eiríkur, Siggi Aðalst, Björn Ingv. og Reimar. Á svæði 6 fór Jónas Bjarki og á svæði 7: Guðmundur Valur, Þorri, Skúli Ben og Stefán Gunnarsson. Á svæði átta fór Stefán Helgi. Á svæði 9 eru Sigurður Guðjónss. Halldór Guðmundss. og Gísli.
Lesa meira... 05.09.07 |
|
|
Kristján Þórðarson með myndarlegan tarf felldan á sv. 1 Leiðsögumaður var Benedikt Ólason
|
|
4. sept. 2007 (myndir nýtt)
Hvasst víða á veiðisvæðum en bjart og fallegt veður. Nokkuð margir leiðsögumenn fóru á stað á svæði 2. Siggi Aðalst., Bjarni, Einar Axelss, Bergur, Jón Egill, Ómar, Stefán Geir, Össur, Einar Eiríkss. og Alli í Klausturseli. Um 25 veiðimenn á svæðinu. Á svæði 7 er Guðmundur Valur og á svæði 9 er Sigurður á Borg. Ekki verið að veiða á öðrum svæðum
Lesa meira... 04.09.07 |
|
3. sept. 2007
Fyrsta frostnóttin á láglendi hér á Austurlandi var í nótt. Heiðskýrt veður og logn en nú um hádegi er komin sterk sunnanátt á Héraði. Dýrin á sv. 2 eru á töluverðu skriði upp í vindinn þannig að trúlega er stefna þeirr yfir Miðheiði inn að vötnum. Nokkuð margir eru á veiðum á sv.2. Þar eru Siggi Aðalst., Bjarni, Ómar, Reimar, Jón Egill, Bergur, Ragnar, Árni Vald, Stefán Geir og Maggi Karls. Á svæði 1 fóru Snæbjörn og Eiríkur. Engar kýr sjást nú á sv. 3 þrátt fyrir að hafi verið flogið í morgun. Þar ætla Dagbjartur og Skúli Sveins að halda áfram að leita. Á svæði 5 fór Sigurgeir og stefndi í Viðfjörð. Á svæði 7 eru Guðmundur Valur og Jónas Bjarki.
Lesa meira... 03.09.07 |
|
2. sept. 2007
Fyrsti dagur næst síðustu veiðivikunnar. Það gránaði í fjöll víða á Austurlandi og haustið minnir þannig á sig. Eftir norðanskotið í gærkveldi hefur norðanáttin gengið niður og orðið rólegri eftir því sem líður á daginn. Margir eru á veiðum á sv. 2, eftirtaldir leiðsögumenn hafa skráð sig til veiða: Danni, Þórir, Siggi Aðalst. Bjarni, Emil, Gunnar Gutt, Pétur, Björn Ingvars, Tóti, Stefán Geir, Jón Egill, Einar Eiríks, Agnar, Árni Jónss, Ragnar,Árni Vald, Siggi Óla, og Jón Hávarður. Með þeim eru milli 30 og 40 veiðimenn. Á svæði 1 eru: Snæbjörn, Benni Óla, Reimar og Eiríkur. Á svæði þrjú fóru Skúli Sveins og Jón Sigmar. Á svæði 4 er Dagbjartur. Á svæði 5 eru Sigurgeir og Sævar. Á svæði 6 eru Jói Steindórs og Magnús Karls. Á svæði 7 eru Sigvaldi og Stefán Gunnarss. Á svæði 9 eru Halldór og Siggi á Borg.
Lesa meira... 02.09.07 |
|
|
Kolbrún Júlía Erlendsdóttir með fallegan tarf sem hún felldi í Fossárdal á sv. 7. Leiðögumaður var Guðmundur Valur á Lindarbrekku.
|
|
1. sept. 2007 (mynd ný)
Kominn er fyrsti dagur septembermánaðar og lokadagur 7. viku veiðitímans. Margir ætla sér að veiða í dag og fjöldi leiðsögumanna hefur skráð sig til veiða á sv. 2.: Siggi Aðalst. Guðmundur P., Einar Eiríks, Emil Björns, Björn Ingvarss., Þórir, Stefán Geir, Alli í Klausturseli, Siggi Óla, Tóti Borgars, Eiríkur Skjaldar. Bjarni Bergþórss., Ragnar Arnars. Árni Vald. Pétur Jónsson og Danni. Milli 30 og 40 veiðimenn eru því á svæði 2. Snæbjörn og Jón Egill fóru á svæði 1. Á svæði 5 stefndu menn í Sandvík og þangað fóru Sævar, Sigurgeir, Andrés og Stebbi Kristmanns. með 12 veiðimenn. Á svæði 7 fóru Guðmundur Valur, Sigvaldi, Sigurður Gunnars og Þorri Magg. Á svæði 8 eru Sigurður á Borg og Stefán Helgi með veiðimenn. Ef vel gengur að veiða þá verður þetta örugglega metdagur veiðitímabilsins hingað til.
Lesa meira... 01.09.07 |
|
31. ágúst 2007
Síðasti dagur ágústmánaðar - þoka og rigning á veiðisvæðum hreindýra. Virðist samt vera að birta heldur á svæði 2. Nú fara menn að streyma til veiða enda komin helgi og biðraðastemningin, sem ekki er það sem menn óska sér á veiðum, veður í algleymingi nema dýrin hafi dreift sér. Á svæði 2 eru farnir: Siggi Óla, Emil Björnss, Björn Ingvarss, Bjarni Bergþórss, Þorsteinn Jóh. Guðmundur P. Stefán Geir, Siggi Aðalst. Danni og einhverjir eiga örugglega eftir að bætast við. Jón Egill ætlaði að kíkja á skyggnið á sv. 1. Veiðimenn á svæðinu verða um 20 talsins. Siggi á Borg að fara á svæði 8 en á öðrum svæðum hafa menn ekki tilkynnt sig til brottfarar enda víða þoka og erfitt skyggni.
Lesa meira... 31.08.07 |
|
30. ágúst 2007
Ekki er búið að viðra vel til veiða nú að morgni 30. dags ágústmánaðar. Í morgun var þoka og mikil úrkoma á Héraði og sennilega ekkert skyggni á öðrum svæðum. Á svæðum 1 og 2 eru leiðsögumenn komnir með sína veiðimenn til veiða vitandi það að nýta þarf hvern dag ef nást á að klára kvótann. Á svæði 1 fóru: Jón Egill og Reimar. Á svæði 2 eru nokkurð margir leiðsögumenn: Eiríkur Skjaldar, Siggi Óla, Siggi Aðalsteins, Einar Axelss., Guðmundur P., Ómar, Þorsteinn Jóhannss. Árni Jónsson, Sæmundur og Einar á Urriðavatni. Skyggni er að lagast og að mestu er stytt upp.
Lesa meira... 30.08.07 |
|
29. ágúst 2007
Það styttist í lok ágústmánaðar og þar með styttist einnig veiðitímabilið. Á svæði 1 eru farnir: Snæbjörn, Siggi Aðalst, Eiríkur og Helgi Jens- alls með 8 veiðimenn. Á svæði 2 er lítið að gerast Guðmundur P, Ómar og Stefán Geir eru þar með einn veiðimann hver sem er ótrúlegt miðað við hve mikið er eftir að veiða. Á svæði 3 er Skúli Sveins með einn veiðimann. Á svæði 5 eru Sigurgeir og Þorsteinn með þrjá menn. Á svæði 8 er Siggi á Borg með einn veiðimann. Ekki fleiri búnir að tilkynna sig til veiða.
Lesa meira... 29.08.07 |
|
28. ágúst 2007
Bjart og fallegt veður er enn á hreindýraslóðum. Það eru nokkuð margir farnir til veiða. Á svæði 2 fara: Tóti Borgars, Guðmundur P., Stefán Geir og Gunnar Gutt. Á svæði 2 eru farnir Jón Hávarður, Siggi Aðalst., og Reimar. Skúli Sveinss og Jón Egill eru á sv. 3. Sigurgeir er farinn á 5 með tvo menn. Jóhann Steindórsson fór á sv. 6 með tvo menn. Á svæði 7 er Sigurður Arnþórsson og Jónas Bjarki. Á svæði 8 fóru Stefán Helgi og Siggi á Borg.
Lesa meira... 28.08.07 |
|
27. ágúst 2007
Glansbjart veður og hægur vindur á öllum veiðsvæðum. Alltof fáir á veiðum miðað við hve veðrið er gott. Á svæði 1 eru: Danni, Snæbjörn og Sigurður Aðalst með alls 7 veiðmenn. Á svæði 2 eru eftirtaldir: Gunnar Gutt, Alli í Klausturseli, Guðm. Péturss, Stefán Geir, Tóti Borgars, Jón Hávarður Helgi Jenss. og Reimar Ásgeirs. samtals með 16 veiðimenn. Á svæði 3 eru Jón Egill og Skúli Sveins. Á svæði 5 er Óli Gunnar með einn og á svæði 6 er Maggi Karls með tvo. Á svæði 7 eru Guðmundur Valur, Albert, og Sigurður Arnþórss. Á svæði 8 eru Stefán Helgi og Siggi á Borg.
Lesa meira... 27.08.07 |
|
|
Þórður Arnarson með gullfallegan tarf felldan í Búlandsdal á sv. 7, um 110 kg. Leiðsögumaður var Guðmundur Valur.
|
|
26. ágúst 2007 (mynd ný)
Þá er þriðja síðasta veiðivikan runnin upp. Gott veður virðist ætla að verða í dag og víða að létta til. Á svæði 1 fara Danni, Sigurður Aðalsteins og Eiríkur Skjaldar. Á svæði tvö eru farnir: Guðmundur Péturss, Einar Axelss. Jón Hávarður, Reimar og Þorvaldur Ágústss. Á svæði 5 er Sævar með þrjá menn. Á svæði sjö fara: Skúli Ben, Guðmundur Valur, Jónas Bjarki, Ragnar Eiðss. Albert og Helgi. Sigurður Eymundss. fer á sv. 8 með einn mann og Halldór á svæði 9 með einn í kýr.
Lesa meira... 26.08.07 |
|
|
Einar Hilmarsson með fallegan 93 kg tarf felldan við Kollseyrudal á sv. 1. Leiðsögumaður hans var Jón Hávarður Jónsson.
|
|
25. ágúst 2007 (mynd)
Lítur út fyrir gott veiðiveður í dag á flestum ef ekki öllum veiðisvæðum. Á svæði 1 stefna menn í tarfa. Þangað far eftirtaldir leiðsögumenn: Jón Hávarður, Siggi Aðalst., Jón Egill, Hafliði Reynis, Björn Ingvarss. og Eiríkur Skjaldar. Á svæði 2 eru að fara: Þórhallur, Einar Eiríkss, Guðmundur Péturss, Ómar Ásgeirss. og fleiri eiga örugglega eftir að bætast við. Jón Sigmar er að fara á svæði 3 með þrjá menn. Á svæði 7 fara Guðm. Valur, Ragnar Eiðsson og einnig Albert. Skúli Ben er á sv. 8. Halldór Guðmundss fer á sv. 9. Fleiri eiga örugglega eftir að skrá sig til veiða. Á svæði tvö hafa bæst við Helgi Jens., Stefán Geir, Þórir, Bjarni Bergþ. og Þorvaldur Ágústss Lítur út fyrir gott veður næstu daga eins og veðurspá er nú -menn þurfa að drífa sig til veiða þar sem ekki er á vísan að róa með gott veður.
Lesa meira... |
|
|
|