Útsending greiðsluseðla staðfestingargjald.
Búið er að senda út greiðsluseðla 25% staðfestingargjalds til þeirra sem fengu úthlutað hreindýraveiðileyfum og ættu þeir að berast mönnum á næstu dögum. Upphæðin birtist einnig í heimabanka viðkomandi. Greiða verður fyrir 1. apríl, þ.e. síðasti mögulegi greiðsludagur er 31. mars. Ef greiðsla berst ekki fyrir þann tíma missir viðkomadi leyfið og því er úthlutað til næsta manns í biðröð. Þeir umsækjendur sem eru með skráð lögheimili erlendis ættu að fylgjast sérstaklega með kröfum í sínum heimabönkum. Einnig er ekki víst að greiðsluseðill berist mönnum ef heimilisfang er ekki rétt skráð í þjóðskrá eða hjá póstinum. Menn þurfa að vera vakandi yfir þessu og hafa samband í tíma ef þeir vita ekki hvernig þeir eiga að borga ef seðillinn berst ekki. 03.03.10 |
|
Hreindýraveiðileyfi - biðlisti - fimm skipta listi!
Af þeim 3.737 gildu umsóknum sem bárust um hreindýraveiðileyfi nú í ár voru 33 á svokölluðum fimm skipta lista sem kynntur er hér á síðunni. Af þeim 33 fengu 16 af þessum lista úthlutun í útdrættinum þannig að eftir standa 17 og verða þeir teknir fram fyrir biðlista. Hér að neðan er tafla sem sýnir hvernig fimm skipta umsóknir dreifðust á svæði, hvernig úthlutanir fóru og hversu margir fara fram fyrir á biðlista.
Lesa meira... 22.02.10 |
|
Byrjað að senda út tölvupósta vegna úthlutunar!
Seinnipart sunnudagsins 21. feb. hófst sending tölvupósta vegna útdráttar hreindýraleyfa. Þeir sem settu inn netfang með umsókn sinni ættu því að skoða tölvupóstinn sinn - stundum setja síur póstinn í ruslpóstinn og ættu umsækjendur einnig að athuga slíkt. Einnig er sendur tölvupóstur á þá sem ekki fengu úthutað um númer þeirra í biðröðinni - í þeim pósti kemur einnig fram hvort einhverjir af óhappalistanum eru þar fyrir framan í hverjum biðlista fyrir sig og hefur því áhrif á númer á biðlistum. Látið vita sem fyrst ef leyfishafi þiggur ekki úthlutunina. 21.02.10 |
|
Netslóð - útdráttur hreindýraleyfa - útsending!
straumur.nyherji.is/exms/Viewer/?peid=d0b181d1-515e-4654-9ce2-0fdeb9156065
Dregið verður laugardaginn 20. febrúar í húsnæði ÞNA á Egilsstöðum og hefst útsending kl. 14:00
19.02.10 |
|
Útdráttur hreindýraveiðileyfa
Frestur til að sækja um hreindýraveiðileyfi rann út á miðnætti 15. febrúar. Alls bárust um 3.800 umsóknir um þau 1. 272 dýr sem leyfi verða gefin út fyrir. Dregið verður um hreindýraveiðileyfin laugardaginn 20. febrúar kl 14:00 í húsakynnum Þekkingarnets Austurlands á Egilsstöðum. Hægt verður að fylgjast með útdrættinum á veraldarvefnum og má nálgast slóðina hér á vefnum og á vef Umhverfisstofnunar - ust.is þegar nær dregur.
Lesa meira... 18.02.10 |
|
Ekki lengur hægt að sækja um hreindýraveiðileyfi - umsóknarfrestur er útrunninn.
Lokað var fyrir hreindýraumsóknir á miðnætti þann 15. feb. 16.02.10 |
|
Úthlutunarreglur hreindýraleyfa
Síðasti dagur til þess að sækja um hreindýraveiðileyfi er 15. febrúar næstkomandi. Dregið verður úr gildum umsóknum laugardaginn 20. febrúar. Þau nýmæli verða nú að þeir sem hafa ekki fengið úthlutað leyfi síðustu fimm umsóknir sínar fara fram fyrir í biðröð fái þeir ekki úthlutað nú. Farið er eftir reglum um úthlutun sem eru nú aðgengilegar.
Lesa meira... 13.02.10 |
|
Hreindýr - Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti mánudaginn 15.feb.!
Umsóknarfrestur til að sækja um hreindýraveiðileyfi rennur út á miðnætti þann 15.feb. Hægt er að sækja um rafrænt fram að þeim tíma. Ekki er gott að treysta um of á síðustu klukkutíma eða mínútur því þá getur ýmislegt klikkað. Þeir sem eru að sækja um í fyrsta skipti og hafa ekki staðfest B réttindi sín hjá Umhverfisstofnun verða að senda staðfestingu í fax 591 2101 eða skannað með tölvupósti í netfangið joigutt@ust.is 09.02.10 |
|
Fjöldi umsókna eftir svæðum 2007 0g 2008
Svæði
| Fjöldi umsókna
| Kvóti 2008
|
| Kýr
| Tarfar | Kýr | Tarfar
|
| 1 og 2 | 912
| 749 | 491(5)
| 316(94)
|
| 3 | 79
| 43
| 35
| 10
|
| 4 | 50
| 49
| 23
| 19
|
| 5 | 201
| 151
| 68
| 55
|
| 6 | 0
| 117 | 0
| 35
|
| 7 | 162
| 250
| 60
| 70
|
| 8 | 83
| 76
| 38
| 53
|
| | 9 | 73
| 43
| 35 | 25 |
| | Samt: | 1560 | 1478 | 750 | 583
|
|
| Samt:
| 3038
| Samt.
| 1333
|
|
Svæði
| Kvóti 2007
| Fjöldi umsókna 2007
|
| Kýr
| Tarfar | Kýr | Tarfar
|
| 1 og 2 | 384(5) | 361(60) | 781
| 664
|
| 3 | 30
| 5
| 104
| 47
|
| 4 | 18
| 14
| 43
| 37
|
| 5 | 55
| 45
| 176
| 136
|
| 6 | 0
| 30 | 0
| 105
|
| 7 | 40 | 60 | 161
| 237
|
| 8 | 25 | 35
| 63
| 62
|
| | 9 | 25 | 10 | 80 | 32 |
| | Samt: | 577 | 560 | 1408
| 1320 |
|
| Samt:
| 1137
|
|
|
|
26.01.10 |
|
Fjöldi umsókna eftir svæðum 2009
Svæði
| Kvóti 2009
| Fjöldi umsókna
|
| Kýr
| Tarfar | Kýr | Tarfar
|
| 1 og 2 | 547(11) | 200(66) | 1014 | 631 |
| 3 | 40
| 20
| 115 | 77 |
| 4 | 27
| 13
| 37 | 44 |
| 5 | 83
| 40
| 240 | 160 |
| 6 | 10
| 25 | 43 | 106 |
| 7 | 100 | 60 | 264 | 263 |
| 8 | 91 | 35
| 107 | 58 |
| | 9 | 27 | 15 | 65 | 36 |
| | Samt: | 925 | 408 | 1886 | 1376 |
|
| Samt:
| 1333
| Samt.
| 3262 |
| 26.01.10 |
|
Tapað - fundið!
Á veiðisvæði 5 fannst veiðitaska (sjá mynd). Eigandi töskunnar getur haft samband við Marinó Stefánsson netfang: marino@va.is.<br> 21.01.10 |
|
Verð hreindýraveiðileyfa 2010
Tarfar sv. 1 og 2. Kr. 125.000 Tarfar sv. 3, 4, 5, 6, 7, 8, og 9 Kr. 90.000 Kýr sv. 1 og 2. Kr. 70.000 Kýr sv. 3, 4, 5, 6, 7, 8 og 9 Kr. 50.000 Tekur gildi er Umhverfisráðuneyti hefur auglýst í Stjórnartíðindum. 21.01.10 |